Úrval - 01.08.1956, Blaðsíða 17
LEYNDARDÖMUR ARALDANNA
15
Þannig var bannfæringu Cho.
corua gamla um síðir aflétt. Nú
er kóbalti blandað saman við
kúafóður víða um heim þar sem
skortur er á því í jarðvegin-
um; blandan er í hlutfallinu
1:2.000.000. Ekki er nákvæm-
lega vitað hvert er hlutverk kó-
baltsins í næringu dýranna, en
nokkur vísbending fékkst í
fyrra, þegar samsetning „vaxt-
arvítamínsins“ B12 var loks á-
kvörðuð. I kjarna hinnar stóru
B12-sameindar fundu vísinda-
menn eina kóbaltfrumeind.
Kóbalt er eitt hinna svoköll-
uðu „aralda“ (trace elements),
sem eru nauðsynleg jurtum og
dýrum í örlitlum skömmtum;
önnur aröld eru zink, kopar,
mangan, bór, járn og joð. Menn
hefur lengi grunað, að efni þessi
væru lífsnauðsynleg, en margt í
sambandi við gildi þeirra fyrir
heilbrigði jurta og dýra hefur
aðeins nýlega komið á daginn.
Ferskjuræktendur í Kaliforníu
urðu einu sinni fyrir þungum
búsifjum af sjúkdómi í laufi og
ávöxtum trjánna. Sumir vís-
indamenn töldu, að hann væri
að kenna skorti á járni, og vökv-
uðu nokkur sjúk tré með járn-
súlfati í tilraunaskyni með þeim
árangri að trén læknuðust. Aðr-
ir vísindamenn reyndu sömu að-
ferð, en án árangurs. I Texas
voru föturnar, sem notaðar
voru til að vökva trén, úr gal-
vaníseruðu járni, og uppgötvað-
ist þar, að örlítið af zinki leyst-
ist úr fötunni og barst með
vatninu, svo að það var zinkið,
sem læknaði trén.
Um svipað leyti kvartaði á-
vaxtaræktandi nokkur yfir því,
að útvarpsstöð í nánd við bú-
garð hans sendi frá sér svo
sterkar útvarpsbylgjur, að þær
skemmdu trén hans. Hann reisti
vírgirðingu kringum trén til
þess að trufla bylgjurnar og brá
þá svo við, að þau. laufguðust
að nýju. Vísindamenn voru nú
reyndar ekki þeirrar skoðunar,
að útvarpsbylgjurnar væru
sökudólgurinn, heldur hefði
skort zink í jarðveginn og regn-
ið hefði skolað af vírgirðingunni
nægilegu zinki til þess að lækna
trén.
Frekari tilraunir vísinda-
manna sýndu brátt, að ýms tré
og jurtir sýktust, ef zink skorti
í jarðveg þeirra. Nú eru þannig
sjúk tré úðuð með zinki, eða
zinkhúðaður smánagli rekinn í
stofn þeirra.
Skömmu eftir síðari heims-
styrjöld veittu vísindamenn því
eftirtekt, að þegar Bordeaux-
vökvi, sem inniheldur koparsúl-
fat, var notaður til að eyða ryð-
sveppum í tómatjurtum ánokkr.
um búgörðum í Flórída, urðu
þær stærri og gáfu meira af sér.
Jarðvegssérfræðing nokkurn,
sem mikið hefur rannsakað á-
hrif aralda, grunaði, að þetta
gæti verið koparnum að þakka.
Til að sannprófa þetta, bland-
aði hann koparsúlfati saman við
áburð og bar hann á 100 til-
raunareiti víðsvegar í stórum