Úrval - 01.08.1956, Síða 19
LEYNDARDÓMUR ARALDANNA
17
þess að skjaldkirtillinn geti
starfað eðlilega. Áður er þess
getið, að kóbalt sé eitt frum-
efnið í B12-vítamíni, og að kop-
ar sé nauðsynlegur til eðlilegrar
blóðmyndunar. Zink á sennilega
einhvern þátt í myndun insúl-
íns, og flúor er nauðsynlegt til
þess að menn fái sterkar tennur.
Rannsóknum á aröldum hef-
ur mjög fleygt fram síðan farið
var að „merkja“ atóm með
geislun, þ. e. gera þau geisla-
virk. Er þá hægt að rekja slóð
þeirra um líkama dýra og jurta
með geislamælum og komast
þannig að hvar þau safnast fyr-
ir og hvaða hlutverki þau gegna.
X „Fréttabréfi um heilbrigðismál",
sept.—okt. 1955, er fróðleg grein um
aröld eftir Níels Dungal prófessor.
Ræðir hann þar m. a. gildi fisks til
manneldis með tilliti til þess, að í
honum eru flest eða öll þau aröld,
sem mannsiíkaminn þarfnast. Um
þetta segir svo í grein Dungals:
„Kuldinn og myrkrið í þessum
löndum (þ e. Norðurlöndum) tak-
markar mjög neyzlu ávaxta og
grænmetis, svo að hætt er við að
menn skorti C- og D-vítamín. Hins-
vegar er gnægð af góðri eggjalivítu
í þessum löndum, svo að ef vítamín-
þörfinni er fullnægt, þá getur kjarn-
mikið og fulihraust fólk vaxið upp
á norðlægum breiddargráðum, þrátt
fyrir kulda og myrkur verulegan
tíma ársins. Við eigum fiskinum og
mjólkinni það að þakka, að við höf-
um hjarað gegnum eldgos og harð-
indi, hallæri og drepsóttir í þessu
landi allt fram á þennan dag. Við
höfum lengi viðurkennt mjóikina
sem lífgjafa okkar, en það er kom-
inn tími til að viðurkenna þann
merkilega þátt, sem fiskurinn á i
því að hér býr kjarngott fólk."
1 seinna Iagi.
Brezkur greifi, landkönnuður og áhugamaður um fornleifa-
rannsóknir, fékk löngun til að leita uppi gröf drottningarinnar af
Saba. Hann gerði út leiðangur til Arabíu. Þegar hann hafði
valið staðinn þar sem hann taldi nokkra von um að geta fundið
gröfina, hélt hann á fund Ibn Saud Arabíukonungs og bað
hann leyfis að grafa þar.
„Að hverju ætlið þér að leita? Oiíu?“ spurði Ibn Saud.
„Nei,“ sagði greifinn. „Ég ætla að Ieita að drottningurmi af
Saba.“
„Góði maður,“ sagði Ibn Saud. „Er það ekki nokkuð seint?“
— Leonard Lyons í „Magazine Digest".
—O—
Ungur leikritahöfundur bauð gagnrýnanda á lökaæfingu
á ieikriti eftir sig. Gagnrýnandinn sofnaði í sæti sínu þegar
skammt var liðið á leikinn og svaf vært það sem eftir var.
Þegar tjaldið var fallið, sagði leikritaskáldið: „Hvernig gaztu
fengið af hér að sofa þegar þú vissir, að ég bauð þér einmitt
til að heyra. dóm þinn?“
„Svefninn er lika dómur,“ sagði gagnrýnandinn.