Úrval - 01.08.1956, Blaðsíða 40
Um ekkert efni hafa spunnizt
jafn ævintýralegar sögur og
um hvalambrið.
Vogrek, sem er gulli verðmætara.
Grein úr „Eastern World“,
eftir David Gunston.
A F öllum þeim kynlegu reköld-
* um, sem berast um heims-
höfin, er hvalambrið án efa kyn.
legast. Það hefur meðal annars
verið kallað fljótandi gull og er
eitt furðulegasta efni sem til er
í heiminum, enda hafa spunnizt
um það meiri furðusagnir en um
flest önnur efni. Frá því að
menn urðu þess fyrst varir, hef-
ur það verið mjög eftirsótt og
talið hinn dýrmætasti varning-
ur. Það er að mörgu leyti ein-
kennilegt, að það skuli enn vera
í svo háu verði sem raun er á,
og að sjómenn skuli enn skima
eftir því á höfum úti og aðrir
ganga á fjörur í leit að því.
Allir vita núorðið að ambur
er einskonar vessamyndun í
sjúkum búrhval, ekki ósvipað
galli, en lengi framan af var
mönnum ókunnugt um uppruna
þess. Menn vissu um verðmæti
þess löngu áður en uppruni þess
var ljós, og það var notað í
margskonar tilgangi, sem nú
þætti meira en lítið undarlegur.
Fyrr á öldum voru búrhvalir
mjög algengir. Höfin í tempruðu
beltunum hafa verið krök af
þeim. Raunar hefur verið mikil
hvalamergð í öllum höfum
heims áður en menn tóku að
leggja stund á hvalveiðar fyrir
alvöru. Þessvegna hefur mynd-
ast miklu meira magn af ambri
á þeim tímum en nú, þegar búr-
hvalurinn er nærri útdauður. —
Stórir kekkir af þessu vax-
kennda efni hafa hrokkið út úr
gapandi gini hvalanna og borizt
sem reköld að ströndum fjar-
lægustu landa, svo sem Indlands
og Norður-Afríku. Enginn vafi
leikur á því, að ambrið hefur
rekið á fjörur í margar aldir
áður en menn veittu því athygli,
og enginn veit hver fyrstur upp-
götvaði þetta dökkgráa, ilmandi
efni og gerði tilraun til að not-
færa sér það. Þar sem hann hef-
ur að öllum líkindum verið frum-
stæður villimaður, hefur hann
sennilega í fyrstu reynt að
leggja sér það til munns. Eftir
því sem tímar liðu, hafa verið
gerðar ýmsar tilraunir með
þetta kynlega efni, sem öldur
hafsins skoluðu á land. Það hef-