Úrval - 01.08.1956, Side 43
VOGREK, SEM ER GULLI VERÐMÆTARA
41
magn, sem metið er á tugi
eða hundruð þúsunda króna.
Um síðustu aldamót var selt
amburstykki í Paris fyrir um
850 þús. kr., og amerískur fiski-
bátur, sem fann amburkökk á
hafi úti, fékk um hálfa aðra
milljón króna fyrir vikið. Árs-
framleiðslan af ambri er nú
orðin mjög lítil, stundum koma
aðeins fáein pund á markaðinn.
En sem betur fer er það ákaf-
lega notadrjúgt; t. d. þarf ekki
nema mjög lítið magn af því
sem bindiefni til ilmvatnsgerð-
ar. Ekki er unnt að rannsaka
raunverulega efnasamsetning
amburs til hlítar, en það er
gætt þeim eiginleika, að geta
bundið hvern þann ilm, sem
það kemst í snertingu við.
Óþarft er að geta þess, að oft
hafa verið sett á markaðinn
gerfiefni undir því yfirskini að
um ósvikið ambur væri að ræða,
en ambur má greina á auga-
bragði með einfaldri spiritus-
prófun. Ambursérfræðingar
vinna líkt og vínsmakkarar;
þeir flokka öll sýnishorn, sem
þeim berast í hendur. Meðan
nokkur búrhvalur er á lífi í
höfunum, munu menn keppast
við að afla þessa dýrmæta og
merkilega efnis. Og eins og nú
horfir, er líklegra að búrhval-
urinn verði fyrr útdauður en
hin kvenlega hégómagirnd,
sem hefur gert þetta efni svo
verðmætt og eftirsótt.
Fötin skapa manninn.
María litla, fimm ára, hafði verið niðri á baðströndinni all-
an daginn, enda var sól og blíða. Þegar hún kom heim, sagði
hún mömmu sinni, að hún hefði verið að leika sér við ókunn-
ugan krakka allan daginn.
„Var það strákur eða stelpa?" spurði móðir hennar.
,,Ég veit það ekki, mamma. Við vorum ekki i neinum fötum."
—• Pensacola Gosport.
Misskipt.
John Barrymore, leikarinn heimskunni, var á gangi á götu
þegar hann sá koma á móti sér spjátrung, sem hann hafði
enga löngun til að tala við. Hann ætlaði að forða sér yfir
götuna, en spjátrungurinn gekk í veg fyrir hann og heilsaði
honum gleiðgosalega:
„Góðan daginn, Barrymore. Þér eruð í sannleika fyrsti mað-
nrinn sem ég mæti í dag, sem talandi er við."
,,Jæja," sagði Barrymore. ,,Það er meira en ég get sagt."
— Wall St. Journal.