Úrval - 01.08.1956, Page 49

Úrval - 01.08.1956, Page 49
HVAÐ ER AÐ I FRAKKLANDI? 47 sem varð almenn og opinber á þriðja tug þessarar aldar, er bam þessa sama rómantíska tíðaranda? Já, og raunar einnig hin átakanlega dýrkun óþekkta hermannsins í gröf sinni undir Sigurboganum og hinar reglu- bundnu pílagrímsferðir þangað, sem daglega valda umferðar- truflunum á Champs Elysées, mestu umferðargötu Parísar —• og farnar eru til þess að minn- ast sigurdags fyrir fjörutíu ár- um — einnig hún er tímavillt, síðboiinn ávöxtur hinnar róm- antísku þjóðerniskenndar. Oft hef ég líka spurt sjálfan mig hvort þær sögusagnir sem sífellt blómstra og dafna í stjórnmálalífi Frakklands eða öllu heldur kringum stjórnmála- mennina, megi ekki einnig rekja aftur til aldamótaáranna. Char- les Maurras ogaðrir stjórnmála- rithöfundar, sem í byrjun ald- arinnar voru taldir hinir eigin- legu lærifeður ráðastéttanna, blésu sífellt að þessum glæðum. Með því til dæmis að rekja alla erfiðleika í stjórnmálum dags- ins til baktjaldamakks, sem frí- múrarar eða jesúítar eða ein- hver annar leynifélagsskapur hafði um hönd. Að kenna auð- mannaklíku prótestanta um eina erfiðleika og hinum alþjóð- lega gyðingdómi um aðra. Með öðrum orðum: að skjóta sér undan ábyrgð með því að skella skuldinni á einhvern aðila, sem ekkí var unnt að henda reiður á. Hin miklu landráðamálaferli sem nú standa yfir í París eru óhugnanlegt dæmi um þetta. Gyðingahatrið, sem náði há- marki sínu í Evrópu í Hitlers- Þýzkalandi, átti sér sterkar rætur í Frakklandi um aldamót- in, löngu fyrir daga Hitlers. Dreyfusmálið var þá nýlega afstaðið — og Gyðingar voru einn daginn sakaðir um að ganga erinda Þjóðverja og' annan daginn erinda Englend- inga. Sósíalistar höfðu litlu betra orð á sér. Jaurés var eins og kunnugt er stimplað- ur sem þýzkur undirróðurs- maður í næstum öllum blöð- um Fi'akklands rétt áður err styrjöldin 1914 brauzt út, og~ ekki eru nema tuttugu ár síð- an sagt var um Léon Blum að hann borðaði af silfurdiskum. Og það er enn til fólk sem trúir þessu. Ef andrúmsloftið í stjórnmálaheimi Parísar er um þessar mundir eitrað af hinum ótrúlegustu og raunar uppdigt- uðum sögum um stjórnmála- menn landsins, ástarævintýri þeirra, fjármálabrask eða leyni- makk við erlend ríki, þá er það einnig arfur frá slúðursöguhöf- undum breiðstrætanna um alda- mótin. En meðan franska þjóðin lifir þannig með fortíðina eins og fjötur um fót sinn og er nauðug knúin inn í tækniöid nú- tímans, vex upp ný kynslóð í landinu, sem tekur upp nýjar lífsvenjur og viðhorf í trássi við umhverfi og skóla •— og þess
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.