Úrval - 01.08.1956, Side 51

Úrval - 01.08.1956, Side 51
LIFI HIN HEILAGA SARA! 49 kirkju. Hvernig og hvenær lik- neskjan er þangað komin, veit enginn. Uppruni hennar er jafn- dularfullur og uppruni þess fólks, sem í þúsundatali kemur úr fjarlægustu löndum Evrópu til þess að votta henni ást sína og lotningu. I dómum sínum um þessa flökkuþjóð lætur Evrópumaður. inn ýmist stjórnast af róman- tískri tilfinningasemi eða fyrir- litningu. Hvorttveggja er jafn- fráleitt, eins og hver og einn getur sannfærzt um, sem kemur til Les-Saintes-Maries. Tatar- arnireru hvorki siðblindir (amo- ralische) né svallsamir; þeir eru blátt áfram náttúrufólk, sem hefur hvorki viljað né reynt að laga sig eftir siðum og háttum vestrænna þjóða. Við, sem komin vorum til hátíðar þess með yddaða blýanta, ljósmynda- vélar og segulbandstæki, urðum heilluð af þeim náttúrlega yndis- þokka, sem einkennir líf þessa fólks. Það lét hnýsni okkar og forvitni engin áhrif hafa á sig, það söng og dansaði og lék á hljóðfæri eins og andinn inngaf því. Ef einhversstaðar var sér- staklega glatt á hjalla, yfirgáfu mæðurnar börnin og ömrnurnar varðeldinn og slógust syngjandi og klappandi í hópinn. Benzín- brúsar komu í stað ketilbumbu og voru barðir með kreppt- um hnefum. í stað kastanjetta hringluðu menn tinskeiðum, sem þeir höfðu skömmu áður borðað með fiskisúpu, sitjandi á hækj- um sínum á jörðinni. Ef við blönduðum okkur hispurslaust saman við hópinn, heilsuðu þeir okkur með handabandi og gerðu okkur að þátttakendum í gleð- skap sínum. Ef við mættum þeim á götu, settu þeir sig ekki úr færi að selja okkur eitthvað. Því að útlendingar — Gadzés eins og þeir kalla okkur — eru að þeirra áliti til þess eins að pretta þá. Okkur er gjarnt að líta á tat- arana sem óábyrgan flökkulýð, er ekki sé hægt að taka alvar- lega. Segja má, að þeir gjaldi okkur í sömu mynt. Þeir gera sér mat úr meðaumkun okkar og senda börn sín klædd örg- ustu tötrum til að betla. Þeir spekúlera í hjátrú okkar á þann hátt, að bjóðast til að Iesa í lófa okkar gegn hæfilegri þóknun. Alltaf eru þeir sannfærðir um, að þeir muni með ósigrandi mælsku sinni geta teymt hinn auðtrúa Gadzé á eyrunum. Heima fyrir þekkjum við tatarana sem ketilbætara, körfugerðarmenn og teppasala, sem koma að dyrum okkar og falbjóða vöru sína og þjónustu. Og þessi kvnni hafa vakið tor- tryggni okkar. En í Saintes-Maries eru þeir allt öðruvísi. Þar lifa þeir — í sínum hópi — eftir eigin lög- um, sem eru mjög ströng. Sá sem heldur að stjórnleysi og siðlej^si ríki meðal tatara, fer villur vegar. Jafntítt og þeir komast í kast við lög gistiþjóða
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Úrval

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.