Úrval - 01.08.1956, Side 56
54
ÚRVAL
auðvelt er að útfella ostefnið
í kúamjólkinni, en erfitt í
brjóstamjólkinni. En fyrir áhrif
magasafans fellur ostefnið auð-
veldlega út í brjóstamjólkinni.
Annar munur á útfellingu ost-
efnis í brjósta- og kúamjólk er
sá, að í brjóstamjólkinni er hið
útfellda ostefni miklu fínkorn-
óttara en í kúamjólkinni, og
mun það vafalaust hafa áhrif
á meltanleik mjólkurinnar,
þannig að ungbörn eiga erfið-
ara með að melta kúamjólkina.
Þetta er sérstaklega þýðing-
armikið atriði þegar um ný-
fædd börn er að ræða, því að
næringarþörf (hitaeininga-
þörf) þeirra er 3—4 sinnum
meiri miðað við líkamsþyngd en
fullorðinna. Það torveldar ung-
börnum enn meir meltinguna,
ef kúamjólkin er gerilsneydd,
því að próteinin breytast (dena-
túrerast) við hitunina, því meir
sem mjólkin er hituð meira. Og
að gefa ungbörnum ógeril-
sneydda mjólk er alltof áhættu-
samt til þess að nokkurt vit sé
í að gera það.
Á hinn bóginn hefur fengizt
reynsla fyrir því, að ungbörn
þola. betur kúamjólk ef hún er
sýrð, og því tíðkast það orðið
nú, að kúamjólk sé sýrð með
sítrónusýru eftir að bætt hefur
verið í hana mjólkursykri; er
þá hrært duglega í henni fyrst
á eftir til þess að útfellingin
verði sem finkornóttust. Athug-
anir hafa leitt í ljós, að ung-
börn nýta þesskonar mjólk
næstum eins vel og móðurmjólk-
ina. Af því að erfiðleikum getur
verið bundið að tilreiða þannig
mjólk á heimilunum, hafa ný-
tízku mjólkurbú tekið upp á því
að framleiða ungbarnafæðu
(Babyfood, Baby OK o. s. frv.)
úr þurrmjólk, sem áður hefur
verið sýrð á náttúrlegan hátt.
Mjólkin er ákaflega þýðingar-
mikill þáttur í mataræði mann-
kynsins. í lítra af mjólk eru
650—700 hitaeiningar, 3—4 lítr-
ar fullnægja því hitaeininga-
þörf fullorðins, vinnandi manns.
Auk þess eru í mjólkinni A, B,,
b2, b,;, b12, c, d, e, f, h, k
og P-vítamín, og er hún því all-
góður vítamíngjafi.
Af þessum vítamínum eru A,
D, E, F og K-vítamín uppleys-
anleg í fitu og eru því í ný-
mjólk og þó einkum rjóma, en
lítið í undanrennu og enn minna
í áfum. Öll B-vítamínin og C,
H og P-vítamín eru uppleysan-
leg í vatni og eru því í nýmjólk
og undanrennu, en lítið sem
ekkert í rjóma.
Vítamínmagnið í mjólkinni er
allbreytilegt, einkum á það við
um A, B2 og D-vítamínin; tvö
hin fyrrnefndu eru mjög háð
fóðrinu sem kúnum er gefið og
D-vítamínið áhrifum sólarljóss-
ins. Þessvegna er drjúgum meira
af þessum vítamínum í mjólk-
inni á sumrum en á veturna.
Aftur á móti eru hin vítamínin
óháðari fóðruninni og magn
þeirra því ekki eins breytilegt.
Við gerilsneyðingu mjólkur-