Læknaneminn - 01.10.1994, Page 14

Læknaneminn - 01.10.1994, Page 14
SJUKRATILFELLI Valgerður Rúnarsdóttir Hér á eftir verður rakið sjúkratilfelli þar sem sjúklingur um fimmtugt var lagður inn á bráðamóttöku lyflæknisdeildar og fylgst með sjúkdómsgangi og afdrifum hans. í lokin verður rætt lítillega um sjúkdóminn. ÁSTÆÐA INNLAGNAR Slappleiki, hiti og niðurgangur. SJÚKRASAGA Sjúklingurinn sem er um fimmtugt, hafði verið í Evrópu og komið heim um viku fyrir innlögn. Ytra hafði ekki borið á veikindum. Daginn eftir heimkomuna fékk hann hins vegar 40 stiga hita, beinverki og vægan höfuðverk. Hann tók magnyl við þessum einkennum. Þremur dögum síðar fékk hann niðurgang sem byrjaði hastarlega og varði allt til innlagnardags og hafði þá staðið í 4 daga. Þetta var vatnskenndur niðurgangur sem kom í köstum oft á klukkustunden ekki að sj á slím eða bl óð með hægðum. Jafnframt fylgdu kviðverkir eins og pílur og þess á milli sviðaverkur um allan kviðinn. Ógleði og lystarleysi voru viðvarandi og uppköst ef hann reyndi að borða. Hann hafði því lítið nærst þessa 4 daga en reynt að drekka eftir getu. Hiti var hár og kölduköst komu öðru hverju. Tveimur dögum fyrir innlögn fékk hann bólgu í eða við vinstra augað en hún var gengin yfir við komu á sjúkrahús. Sjúklingurinn hafði leitað læknis og fengið loperamidum (imodium) töflur til að sporna við niðurganginum þremur dögum fyrir komu með litlum árangri. Hann hafði ekki borðað neitt óvenjulegt áður en veikindin hófust en fengið sér kjúkling með Höfundur er deildarlœknir á lyflœknisdeild Landspítalans. samferðarfólki fyrir heimkomuna. Enginn annar úr ferðahópnum hafði veikst og engin slfk veikindi voru hjá nákomnu fólki. Sjúklingurinn hafði ekki önnur einkenni um sýkingu en að ofan greinir svo sem frá hálsi, öndunarfærum eðaþvagfærum. Engin lyf voru önnur en segir í sjúkrasögu. FYRRA HEILSUFAR Almennt hraustur. SKOÐUN VIÐ KOMU Sjúklingurinn var almennt slapplegur að sjá og var með 39 stiga hita. Hann sagðist vera þyrstur og slímhúðir voru þurrar en húðteygja var eðlileg. Hann hafði ekki orthostatiska hypotensio, blóðþrýstingur var 130/70 og féll ekki við að standa upp. Hins vegar varð púls hraðari við það, jókst úr 80 í 112 slög á mínútu. I vinstra auga var svolítill roði með aukinni æðateikningu í hvítunni. Kviður var eðlilegur á að líta, gamahljóð voru lífleg og talsverð þreifieymsli voru um allan kviðinn, mest áberandi í vinstri fossa iliaca. Það voru hvorki sleppieymsli né þreifanlegar líffærastækkanir í kvið. Við endaþarmsskoðun voru engin eymsli en þunnar fölbrúnar hægðir komu á hanska sem voru jákvæðar á prófi fyrir blóði (hemoccult test). Á húð voru exemlík útbrot á enni, á hægra handarbaki og bak við eyru (aðspurður sagði hann það gamalt). Önnur skoðun var eðlileg s.s. höfuð, háls, hjarta- og lungnahlustun, bak, liðir og útlimir, og hann var í eðlilegum holdum. Álit Eftir sögu og skoðun var álitið að um iðrasýkingu væri að ræða af veiru eða bakteríu uppruna. 12 LÆKNANEMINN 2 1994 47. árg.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124

x

Læknaneminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.