Læknaneminn


Læknaneminn - 01.04.1999, Síða 39

Læknaneminn - 01.04.1999, Síða 39
vegna skemmda í corticospinal brautum eru algeng einkenni sem boða slæmar horfur komi þau í byrjun sjúkdómsins jafnvel þótt einkennin gangi til baka eft- ir fyrsta kast. Við corticospinal skemmdir verða sina- viðbrögð óeðlilega lífleg, þótt stundum framkallist þau ekki þrátt fyrir einkenni um corticospinal skemmdir. Skemmd í hnykilbrautum (cerebellar) leiðir til slingurs (ataxia) í útlimum, bol og kokvöðv- um. Bolslingur er slæmt einkenni sem oft lagast ekki (7). Talvandamál eru líka algeng hjá sjúklingum með MS; u.þ.b. 40% sjúklinga fá einhver slík einkenni (19). Verkir og sársaukafull húðskynjun eru algeng. Allt að 55% fá klínískt marktæka verki og 48% hafa langvarandi verki (20). Verkirnir eru oft vegna stjarfa og stjarfakrampa í lömuðum útlimum. Þvagfæra- vandamál koma fram einhvern tíma hjá um 80% MS sjúklinga (20,21) og kynfæravandamál hjá þremur fjórðu karla og helmingi kvenna. Þvagfæravandamál- in eru oftast erfiðleikar með að halda þvagi, en erfið- leikar með þvaglosun koma fram hjá einum tjórða þeirra. Hið síðara gelur leitt til nýrnabilununar vegna bakflæðis í langan tíma. Helmingur sjúklinga finnur fyrir óþægindum eða sviða við þvaglát. Vandamál tengd kynlífi eru margvísleg hjá báðum kynjum og hjá körlum er stinningarvandamál algengt (21). Huglæg einkenni eru sjaldgæf í byrjun en algeng síðar í sjúkdómsferlinu. Um helmingur sjúklinga fær huglæg einkenni, en þau hafa einungis áhrif á athafn- ir daglegs lífs (ADL) hjá 10% þeirra (20). Um getur verið að ræða persónuleikabreytingar, tilfinningalegt ójafnvægi og tilfinningaleka (emotional inconti- nence, felur í sér að hlátur og grátur koma um of og ef til vill á óviðeigandi hátt og tímapunkti), en einnig hömlunartap. Við langt genginn sjúkdóm er þung- lyndi algengt einkenni og 40% fá alvarlegt þunglyndi (22). Óeðlilegt gleðiástand er einnig þekkt, oft sam- fara mikilli vitrænni skerðingu. U.þ.b. 5% sjúklinga fá staðbundin flogaköst sem yfirleitt láta vel undan meðferð. Önnur áberandi einkenni eru þreyta og slappleiki sem er umkvörtunarefni allt að 80% sjúk- linga (7, 20). MS sjúklingar fá einnig stuttvarandi einkenni sem koma og fara, svo sem L’hermitte-einkenni, sem er tilfinning eins og rafmagnsstraum leiði niður bakið þegar höfuðið er sveigt fram og er merki um skemmd í hálsmænu. Önnur skyld einkenni eru til dæmis titr- ingur í augum (photopsia) við að hreyfa augum. Skyntruflanir, þvoglumælgi, máttleysi, tvísýni og slingur geta verið stuttvarandi og líkst þannig ein- kennum um tímabundna blóðþurrð í heila (TIA). Kippir í útlimum geta líka komið og farið á svipaðan hátt og líkst Jacksonian tlogum (7). Hjá sjúklingum með MS geta oföndun, sterkar til- finningar, mikil áreynsla og sótthiti framkallað ný einkenni og fyrri einkenni geta versnað við sömu að- stæður. Sýnt hefur verið fram á að afmýluð taug leið- ir verr við aukinn hita, sem skýrir þetta og eins það, að sjúklingar þola yfirleitt illa heit böð (7). SJÚKDÓMSGANGUR 0G H0RFUR Bakslög og elnun sjúkdómseinkenna er dæmigert mynstur fyrir MS. Algengt er að einkennin gangi lil baka að fullu eða mestu eftir fyrsta kast. Þetta skýrist hugsanlega af því að bjúgurinn í kringum skellurnar hverfur smám saman. Önnur skýring gæti verið sú, að MTK hafi aðlögunarhæfni (plasticity), eða hugsan- lega verður að hluta til endurnýjun á mýlildi tauganna (remyelinisation). Líklegast hafa margir þættir áhrif á ferlið. Eftir fyrsta kast og á milli kasta eru einkenna- laus tímabil sem geta staðið frá nokkrum mánuðum eða árum upp í jafnvel nokkra áratugi. Sumir fá að- eins eitt kast. Líkurnar á nýju kasti eru mestar fyrstu árin eftir fyrsta kastið en fara lækkandi eftir það. Með tímanum ganga einkennin síður að fullu til baka eftir köstin. Stundum valda margar lillar skellur á sömu taugabraut vaxandi einkennum, en í öðrum tilvikum Ieiðir ein stækkandi skella til aukinna varanlegra ein- kenna. Stöðug versnun á einkennum frá upphafi (pri- mary progressive gerð) er algengasta sjúkdómsform- ið í eldri einstaklingum. Hjá mörgum sjúklingum með bakslaga-elnunargerð þróast sjúkdómurinn yfir í stöðugt versnandi sjúkdóm um miðjan aldur eða fyrr (7). Karlkyns sjúklingar sem fá kraftminnkun sem upp- hafseinkenni og stöðugt versnandi sjúkdómsform hafa verri langtímahorfur en aðrir. Sjúklingar sem upphaflega fá sjóntaugarbólgu hafa betri horfur fyrstu ár sjúkdómsins en hinir, sem í upphafi fengu einkenni um kraftminnkun, en færni virðist verða svipuð eftir nokkur ár með MS. Besti mælikvarði á langtímahorfur virðist vera færni sjúklinga eftir 5 ár með sjúkdóminn (7). Rannsóknir hafa sýnt að um 20% kvenna með MS fá fyrstu einkennin á meðgöngu eða á fyrstu 6 mán- uðum eftir fæðingu, en aðrar rannsóknir benda á að köstin komi sjaldnar á meðgöngu en aukist á fyrstu 3- 6 mánuðum eftir barnsburð, sem jafni út meðaltjölda kasta við barnsburð (7,20). Þegar litið er á meðalaldur MS sjúklinga í IÆKNANEMINN • 1. tbl. 1999, 52. árg. 35
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Læknaneminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.