Læknaneminn


Læknaneminn - 01.04.1999, Blaðsíða 56

Læknaneminn - 01.04.1999, Blaðsíða 56
Hafa læknanemar einhvern tíma oröiö af vinnu á þínum vinnustaö vegna ósveigjanleika reglna ráöningarkerfis Félags læknanema? Veit þaö ekki 15% Mynd 4 Mynd 5 svöruðu höfðu boðið út stöður í gegnum kerfið. Mynd I sýnir að yfirgnæfandi meirihluti lækna hefur verið ánægður með þá afleysingu sem komið hefur í gegn- um ráðningarkerfið. 7% þeirra sem höfðu boðið út stöður í gegnum ráðningarkerfið höfðu ekki fengið afleysingu. Mynd 2 er ekki síður ánægjuleg fyrir okk- ur læknanema, en þar kemur fram að 86% lækna var þeirrar skoðunar að ráðningarkerfið hefði reynst sér vel eða oftast vel. Mynd 3 sýnir að læknar eru al- mennt ekki meðvitaðir um hina sk. 48 klst. reglu í reglugerð F.L. um ráðningar, þannig að ljóst er að ráðningarstjórar þurfa að kynna hana betur fyrir læknum. Mynd 4 sýnir að læknanemar hafa orðið af vinnu þegar læknar hafa haft hug á afleysingu en ekki viljað fá hvern sem er og þess' vegna ekki boðið út viðkomandi stöðu. Mynd 5 sýnir að læknar munu áfram nýta sér ráðningarkerfi F.L. í framtíðinni. Að- eins 2% þeirra sem svara ætia ekki að gera það. Þessi tímabæra könnun leiðir í Ijós svo ekki verður um villst að læknar eru almennt ánægðir með ráðn- ingarkerfi F.L., en það er einmitt alveg á skjön við það sem hinir óánægðu læknanemar hafa hingað til haldið fram. En við gerðum meira en að kanna hug lækna til ráðningarkerfisins - við héldum líka ráðstefnu fyrir læknanema þar sem umræðuefnið var ráðningarkerf- ið í víðum skilningi. Sú ráðstefna var haldin 22. mars og var mjög gagnleg, þótt við hefðum gjarnan viljað sjá fleiri þátttakendur. Aður höfðum við óskað eftir því að læknanemar sendu inn það sem þeim lægi á hjarta varðandi ráðningarkerfið. Slíkum ábendingum söfnuðum við svo saman, sendum þær öllum á tölvu- pósti og svo voru þessi mál rædd í umræðuhópum á ráðstefnunni. Það er ljóst að læknanemar vilja að ráðningarkerfið sé starfrækt og eru flestir sammála um að megintilgangur og grundvallarhugmyndir þess eigi fyllilega rétt á sér. Fólk var einnig sammála um að nauðsynlegt væri að kerfið sé í sífelldri endur- skoðun þannig að það sé sem réttlátast og vitaskuld voru þátttakendur á ráðstefnunni ekki alltaf á einu máli um alla hluti. Megin niðurstaða ráðstefnunnar var í raun sú að ekki væri ástæða til að breyta kerfinu í meginatriðum; það þjónaði sínum tilgangi í grundvallaratriðum vel. Niðurstaða viðhorfskönnunar sýndi að ekki er þörf á róttækum breytingum til að mæta þörfum lækna þar sem ekki var um að ræða umtalsverða óánægju. Nokkuð var rætt um ýmis útfærsluatriði og fyrir aðal- fund komu fram nokkuð víðtækar breytingartillögur frá ráðningarstjórum sem voru að mestu unnar upp úr niðurstöðum ráðstefnunnar. Iðulega hefur langur tími farið í rifrildi um ráðning- arkerfið á aðalfundum F.L. og aðalfundurinn sl. vor var í sjálfu sér ekkert öðruvísi hvað það snertir. Ekki komu aðrar breytingartillögur fyrir fundinn en þær frá ráðningarstjórum og er skemmst frá því að segja að breytingartillögurnar voru allar samþykktar, ýmist óbreyttar eða betrumbættar af fundarmönnum. Við teljum að reglugerðin hafi verið stórbætt á þessum aðalfundi. Hún var gerð skýrari, opnari þar sem við á, en um leið leitast við að loka fyrir glufur. Reynslan af þessum breytingum það sem af er skólaárinu 1999 - 2000 er nokkuð góð og breytingarnar á reglugerðinni hafa klárlega skilað árangri. Svo dæmi sé tekið hafa læknar lýst yfir ánægju með þá nýbreytni að geta boðið út svokallaðar blokkarstöður, þ.e. afleysingu í 52 LÆKNANEMINN • 1. tbl. 1999, 52. árg.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Læknaneminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.