Úrval - 01.11.1973, Page 12

Úrval - 01.11.1973, Page 12
10 ÚRVAL Þegar komið er til Pine Haven er eins gott fyrir lækninn að láta hendur standa fram úr ermum. Lungnaþembusjúklingurinn kem- ur fyrstur inn í bílinn. Næst er þreytuleg, bakveik kona og síðan áttræður maður með of háan blóð- þrýsting. Einn sjúklingurinn spyr, hvað hann skuldi lækninum mikið. Turpin hefur komist að raun um, að hann verður að setja eitthvað upp, annars koma sjúklingarnir ekki. Ef þeir hafa ekki peninga, borga þeir með grænmeti, villibráð eða prjónlesi. En það er sama hvað amar að sjúklingnum — gjaldið fyr ir læknishjálpina er aldrei hærra en einn dollar. Turpin læknir og Mollie kona hans bera mikla umhyggju fyrir sjúklingum sínum, ekki aðeins í þessu litla þorpi, heldur víða um heim. Þau eru sem sé stofnendur þekktrar alþjóðlegrar hjálpar- og lækningastofnunar, sem rekur 22 sjúkrahús og lækningastöðvar í þeim heimshlutum, þar sem þörfin er mest. Karlar og konur af 27 þjóðernum starfa í þjónustu þessar- ar stofnunar í mörgum löndum, svo sem Vietnam, Hong Kong, Mexíkó, Eþíópíu og Bandaríkjunum. Margt af þessu fólki hefur snúið baki við fé og frama til þess að geta helgað sig mannúðarmáli. Það eru ekki nema nokkur ár síð an Turpin var læknir í Kaliforníu þ'ar sem glæsileg framtíð virtist bíða hans. En hann hafði allt frá bernsku haft mikinn áhuga á líkn- arstörfum, og að því rak að hann og kona hans fóru að starfa í frí- tímum við líknarstofnun eina í fá- tækrahverfi bæjarins Tijuana. En þetta nægði ekki til að bæla niður óróleikann. Þá vildi svo til að einn sjúkling- urinn, liðsforingi í flotanum og ný- kominn frá Austurlöndum, sagði Turpin frá ástandinu í Hong Kong. Þúsundir flóttamanna streymdu inn í borgina og áttu hvergi höfði sínu að halla. Þeir sultu, sváfu á götun- um og voru auk þess margir veikir Farsóttir blossuðu upp og breiddust út. Seinna sá Turpin myndir af flóttafólkinu í blöðunum og las frá- sagnir sjónarvotta. Eitt kvöldið sagði hann við konu sína. „Mollie, við skulum fara til Hong Kong og reyna að hjálpa.11 — Hún starði á mann sinn. Honum var greinilega alvara. Undirbúningurinn tók marga mán uði. íbúar Suður-Kaliforníu brugð- ust skjótt við og gáfu peninga og lyf í stórum stíl, og hópur sjálf- boðaliða vann að því að skrá birgð- irnar og búa þær til flutnings. í fyrstu ferð sinni til Hong Kong heimsótti Turpin læknir hið al- ræmda gamla borgarhverfi þar sem tíu þúsund manns búa í aumustu hreysum. Þar var engin vatnsveita og engar skolpleiðslur. Það virtist ekki vanþörf á að koma á fót lækn- ingastöð í þessu hverfi. En Turpin skoðaði líka höfnina þar sem 135 þúsund Kínverjar búa í bátum og skipum sem liggja svo bétt saman, að ganga má þurrum fótum langt út á sjó. Fólkið, sem býr um borð í skipunum, hefur ímugust á þur1’- lendinu, kynslóðir fæðast, lifa og deyja í þessari fljótandi borg, þjáð- ar af fátækt, hungri og sjúkdómum.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.