Úrval - 01.11.1973, Blaðsíða 128
126
Paulus staulaðist að lokrekkju
sinni. En þar sat aðstoðarforingi
hans Vilhelm Adam. Báðir þögðu.
Loks sagði Adam: „Herra, þér ætt-
uð að leggjast til svefns, annars verð
ið þér ekki fær um að mæta erfiði
morgundagsins.“
Stuttu eftir miðnætti tókst Paul-
us að festa blund og Adam brá sér
á fund foringja 71. deildar og spurði,
hvort nokkuð nýtt væri að gerast.
„Rauður skriðdreki er hér í hlið-
arstræti og miðar byssu að okkur,“
sagði foringinn.
„Ég kom í flýti orðum til Schmidt
hershöfðingja. Hann taldi nauðsyn-
legt að hindra aðför skriðdrekans,
hvað sem það kostaði. Túlkurinn
átti að ganga til skriðdrekastjórans
með hvítan fána og bjóða samn-
inga.“
Adam sneri aftur til klefa síns og
starði þar á félaga sinn sofandi.
Samband hans við Paulus var nán-
ast litað tilbeiðslu og hann eygði
ekki lengur veilur í skapgerð hans.
Tiginn og heiðarlegur hafði Paul-
us gefið sig algjörlega á vald skip-
unum Hitlers. En með því hafði
hann misst stjórnar á eigin örlögum.
„ÖLLU LOKIГ
Foringinn reyndi að finna út eitt-
hvert kænskubragð til að bjarga
einhverju úr þessum óförum og
breiða yfir þær. Hann útbjó fjölda
af titlum og heiðursmerkjum til
handa elztu foringjum 6. hersins. Og
æðstur þeirra allra átti að vera Paul
us, sem hermarskálkur. Enginn
þýzkur hermarskálkur eða yfir-
hershöfðingi hafði komizt undan
hingað til. Og Hitler vonaði að Paul
ÚRVAL
us mundi skilja ábendinguna og
fremja sjálfsmorð.
En það gerði Paulus ekki.
Fyrir dögun fór túlkur hans út
og yfir myrkvað torgið að rúss-
neska skriðdrekanum, þar sem ung
ur sovézkur yfirliðsforingi stóð í
turninum, Tyodor Yelchenko að
nafni.
„Foringi vor vill tala við for-
ingja yðar,“ sagði Þjóðverjinn.
Yelchenko hristi höfuðið og sagði:
„Okkar foringi hefur annað að
gjöra. Hann er ekki við. Þér verðið
að semja við mig.“
Að fengnu samþykki þriggja rúss
neskra fulltrúa, fór hópurinn inn í
kjallarann í Univermag.
Schmidt bað þá Rússana að líta
á Paulus sem hvern annan einstakl-
ing, og fá hann til viðræðu út í
lokaða bifreið til að vernda hann
gegn hatursfullum Rauðliðum.
Yelchenko samþykkti þetta og
þeir fóru með hann niður í ganginn
og þar inn í klefa. Þar fór Yelchenko
inn og stóð augliti til auglitis við
Paulus óræstilegan en flekklausan
í fullum einkennisbúningi.
Rússinn eyddi engum tíma í forms
atriði. „Jæja, þessu er þá lokið,“
sagði hann sem kveðju. Hinn eyði-
lagði yfirmarskálkur leit í augu
hans og kinkaði kolli aumingjaleg-
ur.
Orrustunni um Stalingrad var
lokið. I fimm mánaða bardögum
voru 99 prósent borgarinnar í rúst-
um. Meira en 41 þús. heimili. 300
verksmiðjur og 113 sjúkrahús og
skólar, hafði verið eyðilagt. En þó
var hinn mannlegi tollur miklu
meiri. Orrustan var mesta blóðbað