Úrval - 01.11.1973, Blaðsíða 97
Hver á þessi hvarma ljósin blind?
Hver er þessi Jcsú píslarmynd?
Hver á þennan hása hrygluróm?
Hver fær þennan dapra skapadóm?
Hér er dánarbeður dýrðlegs manns,
Davíðs konungs þessa jökullands,
þjóðmærings, er háan hróður fann,
hetju ljóss, er tíu þúsund vann.
Hvað skal þá sú bryggilega raun?
Hvað? Eru þetta furstans sigurlaun?
Því er dimmt í þjóðhöfðingjans rann?
Því er engin hirð um slíkan mann?
Hér er guðlegt skáld, er svo vel söng,
að sólin skein í gegnum dauðans göng.
Hér er ljós, er lýsti aldir tvær.
Ljós, hví ertu þessum manni fjær?
Hér er skáld með drottins dýrðarljóð,
djúp, svo djúp sem líf í heilli þjóð, •—
blíð, — svo blíð, að heljarhúmið svart,
hvar sem stendur verður engilbjart.
Æska, elli, menn og mjúklynd fljóð,
man nú enginn Hallgríms dýru ljóð, —
ljóð, sem græða lík og ólík sár,
— ljóð, sem þíða freðin voðatár?
Frá því barnið biður fyrsta sinn
blítt og rótt við sinnar móður kinn,
til þess gamall sofnar síðstu stund,
svala ljóð þau hverri hjartans und.
ÚRVALSLJÓÐ
ð5
Komið nú með hjartnæm hryggðartár,
hreinsið þessi líkþrár fúasár. —
Nei, þess þarf ei. — Heimsins hjálp er sein, —
hann sá yðar, þér of seint hans mein.
Sjáið skáld, er söng um Kristí kvöl.
Köld sem jökull starir ásýnd föl.
Standið fjarri: Alit er orðið hljótt,
eilíft, heilagt. fast og kyrrt og rótt.
Signað höfuð sorgarþyrna ber, —
sjá, nú þekkist hann, sem dáinn er.
Oftast fyrst á þessum þyrnikrans
þekkir fólkið tign síns bezta manns.
Heita, blíða, hrausta, djúpa sál,
heill sé þér við guðs þíns dýrðarbál.
Hlýtt við þér, er hani dauðans gól,
hefur ljómað Kristí andlits sól.
Langt með Pétri sástu kvalarkvöld,
Kaífasar höll var sjálfs þín öld, —
sama ambátt: hrckahjátrú blind,
hjálpin sama: Jesú guðdómsmynd.
Heill þér, guðs vin, heill með böl og raun!
Herran sjálfur var þín sigurlaun.
Guðsmanns líf er sjaldan happ né hrós,
heldur tár og blóðug þyrnirós.
Trúarskáld, þér titrar helg og klökk
tveggja alda gróin ástarþökk.
Niðjar Islands munu minnast þín,
meðan sól á kaldan jökul skín.
(Matthías Jochumsson, 1835—1920).