Úrval - 01.11.1973, Blaðsíða 48
46
Síðan á miðjum sextugasta áratugn
um hefur þrek Fords stöðugt meir
verið helgað opinberum málum.
Hann hjálpaði við að hleypa af
stokkunum Sambandi-Stórborganna
og tók þátt í að skipuleggja Banda-
lag viðskiptajöfra til útvegunar
fleiri starfa til minnihlutahópa. Nú
nýlega hefur hann, samkvæmt
beiðni Nixons forseta, miðstöð sem
sameinar þjóðfélags-stofnanir og
sjálfboðaliða. Fyrir nokkrum mán-
uðum tilkynnti hann stofnun nefnd
ar um neytendamálefni, sem hefur
að takmarki að endurlífga Stjórn-
arskrifstofurnar fyrir betri við-
skiptahætti. Hann tekur einnig þátt
í óopinberri áætlun til að auka af-
skipti viðskiptajöfra í leit að betra
kerfi til læknisþjónustu og er mjög
áhugasamur um og tekur þátt í 42
miljarða kr áætlun sem hann vonar
að geti orðið „uppkast að fullkom-
inni endursköpun viðskiptahverfis
Detroit-borgar."
En Ford er fyrst og fremst við-
skiptamaður og er stoltur af. Hann
er harður, áleitinn stjórnandi sem
sækist eftir gróða og staðfastur verj
andi viðskiptafrelsis. Ford trúir því
að viðskiptahagsmunir rekist ekki
á þjóðfélagshagsmuni, þegar til
lengdar lætur. Margar af stöðum
hans eru tilkomnar vegna áhuga
hans á málefninu. í ræðu sem hann
hélt við Yale-háskólann árið 1969,
sagði hann. „Að ráða mann til
vinnu, vegna þess að hann vantar
starf, frekar en að starfið þarfnist
hans, er til þess eins að fullvissa
hann um að hann er einskis nýtur.
En, á hinn bóginn, að hjálpa manni
vegna þess að það er í manns eigin
ÚRVAL
þágu, er að líta á hann sem jafn-
ingja.“
Hin nýtilkomnu störf Fords, í
þjónustu hins opinbera, hafa skap-
ast vegna velgengni fyrirtækis hans.
Salan á síðasta ári náði met-upp-
hæð sem nam 1696.800 milljörðum
ísl. kr. og jókst um 23% frá árinu
1971. Hagnaðurinn, sem nam 73.080
milljörðum ísl. kr. var einnig sá
mesti er fengist hafði. Eins og Ford
sagði, og það brá fyrir lotningu í
röddinni:
„Við erum eins stórir í dag og
General Motors voru fyrir sex ár-
um.“ Svo undarlegt sem það er,
þrátt fyrir velgengni fyrirtækisins,
hefur Ford aldrei öðlast fulla við-
urkenningu, sem einn af duglegustu
og happsælustu framkvæmdastjór-
um sem uppi eru í dag. í 28 ár hef-
ur hann haldið valdataumum þriðja
stærsta iðnfyrirtæki Bandaríkjanna.
Þessi ár hefur hann haft algjörari
völd en nokkur framkvæmdastjóri
samkeppnisaðilanna. Jafnvel eftir
sölu hlutabréfanna, árið 1956, sem
breytti Fordfyrirtækinu í almenn-
ingshlutafélag, hélt Fordfjölskyldan
40% atkvæðavaldsins. Ekkert nema
bandalag, sem innihéldi hans eigin
skyldmenni, sem dá hann, getur á
áhrifaríkan hátt, hnekkt valdi hans.
Valdi Fords er ekki beitt í fjar-
veru hans. Vegna þess að ferðalög
hans og veisluhöld eru svo vendi-
lega auglýst, virðist hann eyða óhóf
legum tíma frá ástkærri skrifstofu
sinni. En það er rangt. Hann vinnur
langan vinnutíma. Það eina sem
hann lætur eftir sér, er að mæta
klukkan 9 á morgnana, um einni
klukkustund á eftir undirmönnum