Úrval - 01.11.1973, Side 106

Úrval - 01.11.1973, Side 106
104 ÚRVAL ón rússneskra varaliðshermanna væri enn ósnert á austurbakka Volgu — og enn aðrar varaherdeild ir væru á leið út úr Rússlandi til Frakklands og norður til Lenin- grad. Og sama daginn vörpuðu nazistar fyrstu eldsprengjum sínum yfir Stalingrad. Fljúgandi í V-stöðu köst uðu Stukas og Ju. 88 sprengjum yf- ir þéttbýlasta borgarhlutann, þar sem borgarstjórn hafði aðsetur sitt. Og ekki leið á löngu áður en eldur- inn gaus upp og Stalingrad var í björtu báli. Jarðskjálftinn, sem sprengjuregn inu fylgdi felldi fjölda húsa við Rauða torgið. Vatnsleiðslubygging- ar hrundu og allt komst á ringul- reið. Talsímakerfi borgarinnar gjör- truflaðist, og kallstöðvar þurrkuð- ust bókstaflega burt. Meðan sprengjuregnið stóð sem hæst, var borginni stjórnað frá og fólkið flutt í net loftvarnarbyrgja og kjallara, þar eð borgin sjálf of- anjarðar stóð í ljósum logum. í dagbók sinni þetta kvöld, gerði Wolfram von Richthofen grein fyr- ir gleði sinni með þessum orðum: „Við bókstaflega lömuðum Rússana" Það var satt. Af 500 þús. manns féllu um 40 þús. í loftárásunum 23. —24. ág. Það voru engar brýr yfir fljótið. Og daginn eftir þyrptist fólkið að aðallendingarstað ferj- unnar í þeirri von að komast yfir ána. En' Stukast-sprengjuþoturnar komu aftur. Hvergi var afdrep fyrir fólkið, sem beið á felustaðnum í tug um þúsunda og hreyfðist fram og aftur eins og pendúll í klukku. Sprengjurnar féllu og árbakkinn flaut bókstaflega í blóði, sem litaði fljótið rautt. Þeir miðuðu líka sprengjuregninu á ferjuna og Volga var líkust röð gjósandi hvera. Bráðlega var yfirborð vatnsins þakið dökkleitum dílum. Það voru lemstraðir líkamar, er bárust hægt með þungum straumi fljótsins til samfunda við Kaspíhafið. NYR STJÓRNANDI Að síðustu höfðu hersveitir Páls í norðri sameinast 4. herfylkinu í suðri og myndað þannig hálfhring um borgina með mönnum og her- gögnum. Ekkert nema áin og ferjan veitti nú vonir um bættan liðskost og líf fyrir borgina. Þeir sem eftir lifðu af 62. hersveit Rússa og reikuðu inn í borgina voru fremur í leit að skjóli en til andstöðu. Hershöfðing- inn Alexander Lopotin hafði al- veg misst alla trú á hæfni sína til að verja Stalingrad. En þegar hann tjáði Andrei Yeremenko yfirfor- ingja ótta sinn, var hann samstund- is settur frá störfum. En einmitt nú hafði Tsaritsa Gor- ge-vígið verið yfirgefið, en nýtt virki verið sett upp handan Volgu í Yamy-skógunum. Þar skutu þeir Krusjeff og Yere- menko á skyndifundi til að velja eftirmann Lopotins. Og sá, sem þeir völdu hét Vassili Ivanovich Chui- kow, þrekvaxinn maður, með glað- legt, hrukkótt andlit og tjásulegt svart hár. Hann gerði góðlátlega gys að þeim, sem voru óttaslegnir.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Úrval

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.