Úrval - 01.02.1975, Side 142

Úrval - 01.02.1975, Side 142
140 ÚRVAL brenni í garSinum við húsið, og kona hans hjálpaði honum. Ellin hafði beygt hné Michaels. Til þess að vega upp á móti hoknum hnjá- liðum var hann mjög beinn í baki og brjóstið var ekki innfallið, eins og á svo mörgum gömlum mönn- um. Yfir augu hans hafði færst hula áranna, og hvítan var orðin rauð. Bæði vetur og sumar var hann klæddur í ullarsamfesting og bretti rauðar skyrtuermar upp á samfestingarermarnar. Úlnliðir hans voru sverir, en hendurnar voru ekki annað en sinar og bein. Samfestingurinn og skyrtan voru opin í hálsmálið, og á beinaberu brjóstinu voru fáein hringuð, hvít hár. Hann var rauður í andliti, hátt og hvasst nefið þó allra rauð- ast. Kona hans var klædd í gamlan, svartan slopp, sem náði næstum niður á svera ökklana. Það var ekkert snið á þessum slopp; hann var aðeins hólkur utan um hana, og hafði svo oft verið bættur, að vafasamt var, að nokkuð væri eftir af upprunalega efninu. Hún var mjög gild og jafnvel enn ófríðari en maður hennar. Árin höfðu tálg- að utan af honum, en hlaðið utan á hana. „Guð sé með ykkur,“ sagði Jackie, um leið og hann kom inn í garðinn. „Móðir mín sendir ykk- ur svolítið af mjólk.“ „Guð og María sé með þér,“ sagði Michael Reece. Hann reis á fætur og setti hendur á mjaðmir. „Og ég kom með tvö egg,“ sagði Eilis. „Gæfan sé með ykkur,“ sagði frú Reece og tók við gjöfunum. „Vilj- ið þið koma inn og fá ykkur sæti í eldhúsinu og hvíla ykkur stund- arkorn?“ „Ég vildi heldur, að herra Reece segði okkur sögu,“ sagði Eilis og settist niður á brennihlaðann. „Sögu? Já, sögu skulið þið fá,“ sagði gamli maðurinn. Hann lét augun hvarfla um garðinn, síðan um akurblettinn og túnskikann umhverfis húsið, og loks út á haf- ið, þangað sem hvítt brimið braut á Skessunum. Hann horfði svo lengi á Skessurnar, að Jackie hélt, að hann hefði gleymt að segja sög- una. Svo strauk hann sinaberum höndum um brjóst sér og tók til máls, með lágri, söngrænni rödd, líkastri ljúfum sumarþey. „Ungu trén brotnuðu, og gömlu trén svign- uðu, tröllin voru komin í landið.“ Það fór hrollur um börnin af spenningi og tilhlökkun. „Hávaðinn í tröllunum heyrðist í þrjá daga, meðan þau voru á leið- inni frá hinum helmingi hnattar- ins. Fyrsta daginn var það eins og tifið í veggjatítlu, næsta dag eins og gargið í veiðibjöllu, þriðja dag- inn eins og öskrið í briminu úti við Skessurnar, reiðilegur og eyð- andi, svo allir fuglar á eynni dóu, allur nautpeningur varð óður af hræðslu, hestarnir skulfu og blóð- ið rann af þeim eins og svitinn, allir fiskarnir söfnuðust niður á hafsbotn af skelfingu, svo enginn fiskur veiddist við eyjuna í heila viku. Fergus, sonur Mananaan, guðs sjávarins, réði eynni á þessum dög- um. Hann átti fimmtíu sinnum
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164

x

Úrval

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.