Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 2023, Síða 3

Náttúrufræðingurinn - 2023, Síða 3
Sem nýjum formanni ritstjórnar Nátt- úrufræðingsins og varaformanni stjórnar Hins íslenska Náttúrufræðifélags var mér falið að skrifa leiðara í þetta tölublað Nátt- úrufræðingsins. Það er mér auðvitað mik- ill heiður en um leið sé ég hversu vel hefur verið haldið á því kefli sem mér er nú falið. Náttúrufræðingurinn er öflugt og faglegt tímarit sem þrátt fyrir háan aldur er bæði ferskt og nútímalegt. Mikilvægi Náttúru- fræðingsins er óumdeilt; vettvangur fyrir niðurstöður nýjustu rannsókna og yfirlit um stöðu á ýmsum sviðum náttúrufræð- anna á íslensku, skrifað fyrir bæði vís- indamenn og almenning. Á undanförnum árum hefur áhugi almennings á náttúrufræðum stórauk- ist og sjaldan hefur verið fjallað jafn- mikið um náttúrufræði. Vegna Covid19 eru hugtök eins og hjarðónæmi, veiru- stofnar og stökkbreytingar höfð á hrað- bergi. Vegna loftslagsbreytinga er rætt um kolefnishringrás, úrkomuákefð og súrnun sjávar með svipuðum hætti og hvernig best sé að sjóða hangikjöt. Að eldstöðvar á Reykjanessskaga séu byrj- aðar að rumska eftir langan svefn er ekki næg vitneskja, heldur er áhugi á að vita hversu frumstæð kvikan er, hvernig fyrri gos á skaganum hafa hagað sér og hvaða eldstöðvakerfi vakna næst. Almennt virðist fólk hafa skoðun á náttúruvernd, hnignun líffræðilegs fjölbreytileika, nýtingu náttúruauðlinda, fiskeldi, skóg- rækt, stýringu ferðamanna, dýravelferð, framandi ágengum tegundum og svo má lengi halda áfram að telja. Fjölmiðlar reyna að svala áhuga al- mennings og fjalla að einhverju leyti um náttúrufræðileg viðfangsefni, til dæmis með því að taka viðtöl við nátt- úrufræðinga. Þau skrif eru hins vegar oftast ekki á dýptina því sá tími sem blaðamenn hafa til að vinna efni er yf- irleitt stuttur. Þekking fjölmiðlafólks á viðfangsefninu er einnig oft takmörkuð og það er nær óheyrt að blaðamenn á Íslandi vinni sjálfir frétt úr vísinda- greinum. Þegar fréttir birtast um slíkar greinar er oft um að ræða þýðingar úr erlendum miðlum, eða þá að haft er samband við íslenskan sérfræðing og hann fenginn til að endursegja það sem í viðkomandi grein stendur. Hugsanlega skortir að almenningur geti svalað fróðleiksfýsn sinni enn betur með því að lesa sjálfur vísindagreinar. Mikið af útgefnu efni er í opnum að- gangi (meðal annars Náttúrufræðingur- inn) en vandinn felst í því að það þarf þjálfun til að lesa vísindagreinar sér til gagns. Við þá þjálfun skiptir sköpum að hafa vísindagreinar á því tungumáli sem manni er tamast. Þótt enskukunnátta Íslendinga sé almennt þokkaleg gerir flókið tæknimál og uppbygging ritrýnda vísindagreina það að verkum að of margir gefast upp á efni í alþjóðlegum fagtímaritum. Rit á borð við Náttúru- fræðinginn skipta því miklu máli. Þar er mikið af góðu og vönduðu efni á að- gengilegu máli eftir helstu sérfræðinga landsins, og þar við bætist mikil breidd í umfjöllunarefnum. Náttúrufræðingurinn er ekki bara vettvangur fyrir íslenskan almenning heldur líka mikilvægur vettvangur fyrir sérfræðinga til að miðla af þekkingu sinni, kynna niðurstöður rannsókna, virkja samtal við almenning og taka þátt í að búa til betra samfélag. Mikilvægi Náttúrufræðingsins Náttúrufræðingurinn 93 (3–4) bls. 91–92, 2023 91

x

Náttúrufræðingurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.