Náttúrufræðingurinn

Ukioqatigiit

Náttúrufræðingurinn - 2023, Qupperneq 8

Náttúrufræðingurinn - 2023, Qupperneq 8
INNGANGUR Samfelldar rannsóknir á andarstofnum Mývatns hafa staðið yfir síðastliðna fjóra áratugi og verður væntanlega fram haldið um nokkurt skeið. Í fyrstu voru rannsóknirnar stundaðar sem hluti af almennum og víðfeðmum könnunum á vistkerfi Mývatns og Laxár, sem dr. Pétur M. Jónasson var í forsvari fyrir.1 Fljótlega færðist áherslan yfir á að þróa aðferðir sem gætu nýst til þess að bæta niðurstöðurnar þannig að auðveldara yrði að túlka tölur um afkomu andar- stofnanna í samhengi við aðra þætti, bæði í vistkerfi Mývatns sjálfs og utan þess, til dæmis á vetrarstöðvum and- anna. Eins og kunnugt er hafa Mývatn og vatnakerfi þess löngum verið eft- irsótt til margvíslegra nota, svo sem búskapar, silungsveiða, raforkufram- leiðslu, námavinnslu og ferðamennsku. Fram undir 1970 var þó lítill skilningur á því hérlendis að þessi not gætu haft neikvæðar afleiðingar ef ekki væri farið með gát. Trú nýfrjálsrar þjóðar á fram- farir og tæknivæðingu var mikil. Hér er valin sú leið að lýsa mjög al- mennt vistkerfi Mývatns og breytileika þess í tíma. Síðan er rætt um stofnfræði vatnafugla, einkum anda, og leitað svara við þremur rannsóknarspurn- ingum: 1. Hvernig er árleg viðkoma ákvörðuð? 2. Hvernig er dreif (= út- breiðsla og þéttleiki) anda á varptíma ákvörðuð? 3. Hvernig er stofnstærð anda ákvörðuð á víðari grundvelli (út frá farleið, heildarstofni)? Mývatn og umhverfi þess er fágætt og í rauninni einstakt fyrirbæri. Þeir sem unnið hafa þar að vistfræðilegum rannsóknum eru oft minntir á þetta af öðrum fræðingum, sem eiga það til að gefa í skyn að stofnferlar og takmarka- þættir á þessum stað kunni að vera öðru- vísi en annars staðar. Að nokkru leyti skýrast undur Mývatns af sjaldgæfum eiginleikum Íslands. Landið er stór og afskekkt úthafseyja sem einkennist af jarðeldum, og lífríkið er að langmestu leyti til komið á síðustu 10 þúsund árum. Afleiðingarnar eru margvíslegar, meðal annars fátækleg landfána. Ýmsa dýrahópa vantar með öllu, svo sem mo- skítóflugur (Diptera, Culicidae), marga vatnafiska, svo sem karpa (Cyprinidae), og flest landspendýr, þeirra á meðal stúfur og læmingja (músategundir sem eru grasbítar – Muridae, Microtinae) sem eru mikilvægir liðir í vistkerfum nálægra meginlanda. Ísland er eitt af seinustu löndum sem maðurinn (Homo sapiens) nemur. Landfuglategundir eru fáar hér á landi en hins vegar eru hér margar tegundir sjófugla, vatnafugla og strandfugla, og einstaklingafjöldi sumra þessara tegunda er mikill. Hrafnsönd – Common Scoter. Ljósm./photo: Daníel Bergmann Náttúrufræðingurinn 96 Ritrýnd grein / Peer reviewed
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.