Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 2023, Side 13

Náttúrufræðingurinn - 2023, Side 13
toppandar.4, 18 Gráendur (Anas og Mar- eca spp.), skúfönd og duggönd virðast ekki hafa tekið þátt í þessari sveiflu og rímar það við þá hugmynd að afkoma þessara tegunda stjórnist af magni ryk- mýs.18 Þess má og geta að metár í töku duggandareggja (skúfönd og duggönd voru ekki aðgreindar) var 1942. Það ár töldu Mývetningar að rykmý hefði verið óvenju mikið og er því til stuðnings sagt að um sumarið hafi ungir menn á Gríms- stöðum rennt sér á skíðum á mýinu. Segja má að stofnsveiflur á mæli- kvarðanum 100 ár sé erfitt að kanna nema eftir á, og erfitt hlýtur jafnan að vera að sannreyna tilgátur um atburða- rás á svo löngum tíma. Hingað til hafa menn látið nægja að setja fram líklegar staðhæfingar. Til dæmis virðist senni- legt að bleikja og tilteknar andartegundir séu mjög háðar grænþörungateppinu sem lengi þakti botn Syðriflóa, svo og dýralífi. Hægt er að áætla þekju græn- þörunganna bæði af sýnum af staðnum og af loftmyndum. Gögn frá 1939, 1963 og 1979 sýna að þörungateppið rýrnaði um nær helming á tímabilinu 1963 til 1979.5 Eftir það hefur enn orðið rýrnun og síðustu fréttir herma að þessi undir- staða lífríkisins sé nær horfin. Fuglalífið við Mývatn vakti snemma athygli og athuganir jukust verulega upp úr miðri 20. öld.10, 19 Reglubundin vöktun margra fuglastofna í Mývatns- sveit hófst árið 1975. Markmið vöktun- arinnar var að safna nokkrum árlegum grundvallartölum fyrir eins margar tegundir og mögulegt var, og var áhersla lögð á tegundir sem voru annaðhvort al- gengar eða auðtaldar eða hvort tveggja. Byrjað var á vatnafuglum og hefur ár- lega verið safnað tölum um 21 tegund þeirra (18 andfugla, 2 brúsa og flór- goða). Augljóst forgangsverkefni var að vakta fæðutegundir sem eru undirstaða fuglastofna, og voru mýflugurnar fyrstar á dagskrá. Sérstök flugugildra var þróuð. Komust þær í gagnið árið 197720 og hafa flugugildrur staðið við Mývatn og Laxá í á sumrin, frá maí til september, á hverju ári upp frá því.21 Gildrurnar gefa svipaða vísitölu um ástand mýstofna og botn- sýni, en öflun hinna síðarnefndu er hins vegar mjög kostnaðarsöm. Einkum er athyglisvert að stofnbreytingar ríkjandi mýflugutegundar, Tanytarsus gracilentus, reynast háðar fæðutakmörkum22, 23 en stofnsveiflurnar hafa einnig áhrif á afkomu annarra botndýra.24, 25 Ungar flestra andartegunda byggja á rykmýi sem fæðu. Botnlæg smákrabbadýr, einkum kornáta, eru einnig mikilvæg og hefur verið fylgst með þeim með sér- hönnuðum krabbadýragildrum á hverju ári frá 1990.24 SPURNINGAR UM TAKMÖRKUN STOFNA Fræðin um takmörk dýrastofna eru víð- tæk og miðlæg í vistfræðinni.26–29 Rann- sóknir á þessu sviði snúast yfirleitt um stærð æxlunarstofna og viðkomu, og um breytileika þessara stærða milli ára. Oft eru rannsakaðir æxlunarstofnar að- eins brot af stærri heildarstofnum (e. metapopulations).30 Þetta á sérstaklega við um stofna farfugla, en aðeins í fá- einum tilvikum hefur verið sýnt fram á að stofntakmörk eigi sér stað á kvarða sem nær til heildarstofnsins. Þó hefur tekist að sýna fram á tengsl úrkomu (sem stjórnar útbreiðslu vatnasvæða á gresjum) og heildarstofnstærðar anda og kolhænu (Fulica americana) á gresjum Norður-Ameríku.31, 32 Mývatn er fremur afskekkt og ein- angrað svæði þar sem mikið er af vatnafuglum. Vatnalífið er vel þekkt og þar hefur nú verið fylgst lengi með líf- ríkinu. Í samanburði við önnur rann- sóknarsvæði eru hér hlutfallslega stórir hlutar af heildarstofnum allmargra 1. mynd. Einfaldaður fæðuvefur Mývatns og Laxár, þar sem lögð er áhersla á endur og fæðuuppsprettu þeirra á vatnsbotninum. – A simplified food web of Lake Mývatn and the river Laxá with particular reference to ducks and their benthic food base. Mývatn Laxá 101 Ritrýnd grein / Peer reviewed

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.