Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 2023, Síða 22

Náttúrufræðingurinn - 2023, Síða 22
Þessar minjar eru taldar vera um það bil 39 þúsund ára gamlar. Nýlegar rann- sóknir í La Roche-Cotard-hellinum í Frakklandi benda til mun eldri verka, 57 þúsund ára, jafnvel 75 þúsund ára. Þessi verk fundust árið 1846 þegar unnið var að gerð lestarteina. Skyndilega blasti við hellir og á veggjum hans leyndust teikningar sem augljóslega voru gerðar markvisst og af natni.3 Lengi var talið að þetta væru verk nútímamanna, en nú þykir víst að höfundarnir hafi verið Neanderdalsmenn þar sem nútímamenn numu ekki land í þessum hluta Evrópu fyrr en löngu síðar. Þetta eru sannar- lega byltingarkenndar niðurstöður. Neanderdalsmenn eru á hraðferð inn í nýjan heim. Ein helsta heimildin um rannsóknir á Neanderdalsmönnum, The Neanderthals Rediscovered eftir Dimitru Papagianni og Michael A. Morse, hefur ítrekað verið endurútgefin, endurbætt í ljósi nýrrar vitneskju. Nú virðist hún verðskulda enn eina yfirferðina. Skyldu Neanderdalsmenn hafa talað? Málfræðingar og mannfræðingar eru ekki á einu máli. Hinn kunni mál- fræðingur Noam Chomsky (áður hjá MIT- háskólanum) er viss í sinni sök: „Þess vegna bara við“.4 Rök hans eru einkum þau að hæfileikinn til að tala hafi orðið til seint og snögglega, án umtalsverðra breytinga á erfðum, og börn okkar nái tökum á flóknu tungu- máli á ótrúlega skömmum tíma; ann- aðhvort hafi tegund þá „málstöð“ sem til þarf eða ekki. Nútímafólk hafi skap- andi mál, en aðrar tegundir í besta falli einföld táknkerfi. Aðrir, svo sem mannfræðingurinn Stephen C. Levinson (áður hjá Max Planck-stofnuninni í Nijmegen), telja, með tilvísun til nýrra viðhorfa í erfða- fræði og beinarannsóknum, að mál- notkun hafi ekki einskorðast við Homo sapiens sapiens – það séu „ekki bara við“ sem höfum skapað mál.5 Hæfileik- inn til að tileinka sér „mannamál“ hafi líklega áunnist hægt og sígandi, í skjóli náttúruvals. Neanderdalsmenn hafi deilt FOXP2-geninu, sem kom við sögu í þróun talaðs máls, með nútímamönnum og talfæri þeirra hafi verið svipuð okkar. Ekki sé sjálfgefið að þeir hafi talað, og það verði líklega seint fullreynt, en telja megi yfirgnæfandi líkur á að svo hafi verið.1 Vitneskjan um endurtekna erfða- fræðilega blöndun Neanderdalsmanna og nútímamanna styður þá kenningu. Chomsky er laus við tepruskap og kreddur Viktoríutímans, en hann virð- ist hins vegar eiga erfitt með að ímynda sér bæði náið samlífi tegundanna og það sameiginlega vitsmunalíf sem því hefur væntanlega fylgt. Hann stendur fastur á sínu: Það eru „bara við“ − eins og önnur menni hljóti að vera af-dalamenn. AF ÖÐRUM DALAMÖNNUM Árið 1961 birti dagblaðið Tíminn viðtal við dr. Jens Ó. P. Pálsson (1926–2002) mannfræðing um rannsóknir hans á Íslendingum. Blaðamaðurinn spyr: „Þú hefur verið að gera mælingar á Dala- mönnum? ... Til hvers ertu að mæla þá?“ Jens svarar: Þær eru gerðar ... til þess að varpa ljósi á uppruna þjóðarinnar. ... Í Dalasýslu eru dökkhærðir og ljós- hærðir langhöfðar tiltölulega al- gengir, en það eru höfuðeinkenni „írsku týpunnar“, samkvæmt þeim rannsóknum, sem bandarískur mannfræðingur, Hooton að nafni, lét gera á Írlandi á sínum tíma.6 Þegar hér var komið sögu starfaði Jens við Mannfræðistofnunina í Mainz í Þýskalandi, sem átti sér vafasama fortíð. Earnest Hooton (1887–1954), sá sem Jens vísaði til, prófessor við Harvardháskóla, skipti mannkyni í nokkra kynþætti í bók sinni Upp af apanum (1931).7 Hauskúpur frá miðöldum, sem Vilhjálmur Stefáns- son hafði safnað á vegum Peabodysafns Harvardháskóla í kirkjugarði á Haf- fjarðarey á Mýrum sumarið 1905, vöktu töluvert umtal og blandaði Hooton sér í umræðuna.8 Að mati Hootons stóðu norrænir menn ofarlega í stigskipt- ingu mannkyns. Sumir kynþættir, sagði hann, væru nær öpunum en aðrir. Til marks um það væru meðal annars mæl- ingar höfuðbeina. Nú vitum við hins vegar að flokkun eftir kynþáttum á sér fyrst og fremst félagslegar rætur og er ekki reist á vísindalegum forsendum – og að Neanderdalsmenn eru í okkur öllum. Á undanförnum árum hafa höf- uðbeinin í Íslendinganýlendunni við Harvard aftur komist á dagskrá; nú er deilt um eignarhald beinanna og hvort Harvardháskóla beri að skila þeim til Ís- lands; senda þau heim.9 Rannsóknir á mannabeinum voru víða misnotaðar í þjóðhverfum, ras- ískum og pólitískum tilgangi á síðustu öld.10 Samt skyldu þær ekki vanmetnar. Þær hafa haldið velli undir nýjum for- merkjum og segja merka sögu, meðal annars um Neanderdalsmenn, og kyn- 3. mynd. „Steinaldar Clooney.“ Vaxmynd á Neanderdalssafninu í Mettmann, skammt frá Düsseldorf. Náttúrufræðingurinn 110

x

Náttúrufræðingurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.