Náttúrufræðingurinn

Ukioqatigiit

Náttúrufræðingurinn - 2023, Qupperneq 26

Náttúrufræðingurinn - 2023, Qupperneq 26
DAGBÓKARSKRIF OG FJÖLSKYLDUHAGIR Eftir rannsóknarferðina 1863 kom Harald Krabbe í stuttar heimsóknir til landsins sumrin 1870 og 1871. Hann hélt dagbækur um ferðir sínar og rannsóknir á Íslandi en það var þó ekki fyrr en um síðustu aldamót að ferðasagan var búin til prentunar og gefin út (2. mynd).6 Það gerði Ivan Katić sem þremur áratugum áður hafði fengið dagbækurnar í hendur frá eftirmanni Krabbe á KVL, Niels Ha- arlev (1919–1986). Ferðasagan er vel myndskreytt, prentuð á góðan pappír, og þar er auk þess að finna ýmsar upp- lýsingar um fjölskylduhagi. Þar segir frá því að í seinni ferðinni giftist hann íslenskri konu, Kristínu Jónsdóttur (1841–1910), dóttur Jóns Guðmunds- sonar, alþingismanns og ritstjóra Þjóð- ólfs, og konu hans, Hólmfríðar Þor- valdsdóttur. Hjónin eignuðust fjóra syni. Tveir þeirra urðu kunnir íslenskir embættismenn, Thorvald (1876–1953), verkfræðingur og síðar vitamálastjóri á Íslandi, og Jón (1874–1964), lengst af sendiráðsritari og síðast forstöðumaður sendiráðsins í Kaupmannahöfn. Hinir synirnir voru lögfræðingurinn Oluf (1872–1951) og læknirinn Knud (1885– 1961) sem báðir störfuðu í Danmörku. Harald lifði konu sína í sjö ár og lést árið 1917, 86 ára að aldri. Hjónin bjuggu alla ævi í Kaupmannahöfn. Í ferðabókinni er að finna margvíslegar heimildir um sníkjudýr. Meðal annars er þar endurprentuð yfirlitsgrein eftir Pál A. Pálsson, yfirdýralækni.7 Auk athugana á sullaveiki og ýmsum öðrum sjúkdómum í fólki og fénaði lýsa færslurnar veðri, matarveislum og viðurgjörningi, gjarnan hjá fyrirmennum þjóðarinnar en líka hjá öðrum þeim sem aðstoðuðu hann, fylgdu honum eða hýstu á ferðalögunum. Víða kemur fram áhugi Krabbe á jurtum. Hann fór iðulega í gönguferðir á kvöldin og skráði þá fræðiheiti og blóm- þroska jurta sem urðu á vegi hans. Þá nefnir hann allajafna hverjir útveguðu honum eða færðu efnivið til rannsókna á sníkjudýrum. Ekki einungis hunda og ketti heldur líka ýmsa villta fugla og spendýr, svo sem rottur og jafnvel blöðrusel (Cystophora cristata). Einnig kemur fram að hann hafði einsett sér að kryfja 100 fullorðna hunda á Íslandi. Það er nefnt sérstaklega þegar fram kemur að stuttu fyrir brottförina til Danmerkur afþakkar hann hund sem honum stóð til boða. Sá hundur hefði orðið númer 101. Greinilegt er að Krabbe hafði kapp- kostað að undirbúa rannsóknarferðina 1863 sem best. Það má meðal annars sjá af lista yfir skordýr – „Islands Insekter“ – sem hann hafði meðferðis (3. mynd). Skráin var gerð eftir upplýsingum þýska skordýrafræðingsins Otto Staudinger sem komið hafði til rannsókna á Íslandi 1856. SULLAVEIKI Á ÍSLANDI – ORSAKIRNAR ENN ÓÞEKKTAR Nýlega var fjallað um sullaveiki á Ís- landi í grein í Náttúrufræðingnum þar sem lífsferli sníkjudýrsins var lýst og saga útrýmingarinnar rakin í stórum dráttum.8 Áður en kunnugt varð um lífsferil ígulbandormsins vissu menn hvorki hvaða fyrirbæri sullir voru né hvort, og þá hvernig, hægt væri að verj- ast því að fá sullaveiki. Fengu því hundar á blóðvelli – öllu fé var slátrað heima á bæjum allt fram á 20. öld – iðulega að éta hrá, sollin líffæri sem flestum þóttu ókræsileg. Þannig viðhéldu hundar og grasbítar lífsferlinum og smit magnaðist upp þar sem smitaðir hundar héldu til og bandormsegg náðu að dreifast út frá hundaskítnum. Og þegar bandormsegg bárust óviljandi ofan í fólk þroskaðist eggið í sull. Það var raunar blindgata í lífsferli ormsins, nema ef svo ólíklega vildi til að hundur kæmist beint í inni- hald sulls úr manni. Sullirnir sprungu nefnilega stundum út í öndunarveginn og flæddu út úr fólki.9 Eldsmaturinn fyrir háa smittíðni sullaveikinnar um miðja 19. öld var mikill. Íbúafjöldinn var um 70 þús- und manns og fjöldi sauðfjár á bilinu 600–700 þúsund. Á sama tíma var fjöldi hunda í landinu talinn vera á bilinu 15– 20 þúsund, eða hundur á hverja þrjá til fjóra landsmenn.7 Ekki var að furða að 2. mynd. Rit sem Ivan Katić gaf út í Kaup- mannahöfn árið 2000.6 Þar eru meðal annars birtar dagbókarfærslur Haralds Krabbe frá Íslandsferðum hans árin 1863, 1870 og 1871. – Cover page of a boo- klet published by Ivan Katić in Copen- hagen 2000 with diary notes written by Harald Krabbe during his visits to Iceland in 1863, 1870 and 1871.6 Ljósm./Photo: Karl Skírnisson. Náttúrufræðingurinn 114
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.