Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 2023, Side 28

Náttúrufræðingurinn - 2023, Side 28
krufningar. Til dæmis segir í færslu frá 6. júlí eftir að hafa þegið góðgerðir á bæ á suðurlandi (Kópsvatni), „Vi fik Kaffe og den ene af de 2 Hunde.“ Daginn eftir kom hann á annan bæ í nágrenninu „hvor jeg fik en Hund“ og síðar sama dag „en Kat“. Væntanlega krufði Krabbe dýrin sem honum áskotnuðust á staðnum þótt hann geti þess hvergi sérstaklega. Er hann raunar spar á aðferðalýsingar. Við krufn- ingu er auðvelt að koma auga á spólu- orma og stóra bandorma þegar búið er að rista meltingarveginn upp og skola innihaldið niður í ílát (ormarnir eru allt frá nokkrum tugum sentimetra í nokkra metra á lengd) en ekki er ljóst hvernig Krabbe leitaði að ígulbandorminum sem ekki verður nema nokkurra millimetra langur. Kannski dugði honum stækk- unargler. Strax á þessum árum var farið að varðveita sníkjudýr í vínanda. Þegar heim til Hafnar var komið voru ormarnir, eða hlutar þeirra, litaðir og þeim komið fyrir í sérstöku gagnsæju, þéttfljótandi innsteypingarefni á smásjárgleri þannig að hægt yrði að skoða sýnin í smásjá (Innskotsgrein A). Meðan á dvölinni stóð 1863 krufði Harald Krabbe alls 100 hunda, eins og áður sagði, 31 kött og einn ref.4,5 Í hundunum fann hann fjórar tegundir bandorma, og voru 93% þeirra smitaðir af einni eða fleiri tegundum. Netju- sullsbandormurinn (Taenia hydatigena) var algengastur (fannst í 75% hund- anna), næstalgengastur var flóarband- ormurinn (Dipylidum caninum) (57%) (5. mynd), þá ígulbandormurinn (28%) en höfuðsóttarbandormurinn (Taenia multiceps) rak lestina (18%). Öllum þessum tegundum hefur nú verið út- rýmt á Íslandi.24 VIÐNÁMSAÐGERÐIR Fljótlega eftir rannsóknarferðina 1863 sendi Harald Krabbe dómsmálastjórn- inni skýrslu þar sem hann lagði til að ritað yrði alþýðlegt kver þar sem skýrt væri hvernig sullaveiki í mönnum og skepnum megi rekja til ígulbandorms- ins í hundum og hvaða varúðarreglum sé skynsamlegt að fylgja til að forðast veikina. Einnig gaf hann þau ráð að reynt yrði þegar í stað að fækka hundum innanlands, svipað og Leared hafði lagt til árið áður. Strax næsta ár gáfu íslensk stjórnvöld svo út bæklinginn Athugasemdir handa Íslendingum um sullaveikina og varnir móti henni eftir Krabbe.3 Pésanum var dreift ókeypis inn á öll heimili í landinu. Næstu áratugi skipulögðu yfirvöld víðtækar aðgerðir til að útrýma sulla- veiki í mönnum og dýrum. Upphaflega hafði Krabbe forystu í þessum verkum 4. mynd. Handskrifaður listi sem Harald Krabbe útbjó fyrir Íslandsferðina 1863 með heitum ýmissa skordýra. – Handwritten list of some insects in Iceland prepared by Harald Krabbe before his research trip to Iceland in 1863. Eftir/from: Krabbe 2000.6 Náttúrufræðingurinn 116

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.