Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 2023, Síða 30

Náttúrufræðingurinn - 2023, Síða 30
—Innskotsgrein A— TÝPUSÝNI – FRUMEINTÖK Sex smásjárgler (númer 326 til 331) með ýmsum líkamshlutum bandorms, Parict- erotaenia sternina (Krabbe, 1869), sem Harald Krabbe safnaði í Reykjavík sum- arið 1863 úr meltingarvegi kríu (Sterna paradisea; gamalt samheiti þess fugls, Sterna macrura, er ritað á glerin). Upp- haflegt heiti tegundarinnar var Taenia sternina n. sp. Krabbe, 1869. Hér eru á ferðinni frumeintök (oft nefnd týpusýni) og er lýsing tegundar- innar byggð á þessum sýnum. Frumein- tök á Dýrafræðisafninu í Kaupmanna- höfn eru auðkennd með rauðum punkti. Vitað er um 76 tegundir fuglaband- orma sem Krabbe lýsti sem nýjum tegundum fyrir vísindin þannig að algengt er að rekast á sýni merktum rauðum punkti í safninu. Kollegar við háskóla og dýrafræði- söfn skiptast oft á sýnum þegar unnið er að lýsingu tegundar. Vitað er að Krabbe heimsótti söfn í Evrópu, meðal annars í Berlín, til að stúdera þar sýni kolleganna. Jafnframt fékk hann send eintök til skoðunar á Dýrafræðisafnið í Kaupmannahöfn. Ljósm./Photo: Karl Skírnisson. Margir samverkandi þættir leiddu til þess að mönnum tókst ætlunarverkið, að útrýma ígulbandorminum og þar með sullaveiki á Íslandi. Sú niðurstaða hefur vakið heimsathygli og er oft tíunduð í fræðiritum. Það að búa á eyju, þar sem hægt er að takmarka innflutning hunda, skipti vissulega mestu máli í aðgerðum til að koma í veg fyrir endursmit. Inn- flutningur hunda til landsins var bann- aður frá 1906 allt fram til ársins 1989, og eftir það einungis leyfður að uppfylltum ákveðnum skilyrðum, innflutningi í gegnum einangrunarstöð, tilheyrandi eftirliti og lyfjum sem drepa ormasmit í hundum.24 Einbeittur vilji landsmanna til að losna við sullaveikina skipti þó sköpum. Margt hjálpaði í þeirri baráttu. Sauð- fjárhald breyttist eftir að aðgerðirnar hófust. Hætt var að færa frá og hafa ær í kvíum, sauðaeldi lagðist af, á tímabili var fé flutt lifandi úr landi og skipulagn- ing slátrunar breyttist. Sláturhús voru reist þar sem fé var slátrað, eingöngu á haustin, undir vökulu eftirliti sérþjálf- aðra starfsmanna sem leituðu skipulega að sullum og skráðu það sem þeir fundu þannig að hægt var að fylgja eftir með aðgerðum þegar vart varð við sulla- veikt dýr. Og búskaparhættir breyttust. Fólksflutningar úr sveitum á mölina jukust jafnt og þétt eftir því sem leið á öldina og fólk settist að í þéttbýli þar sem sjaldnast var að finna hunda eða sauðfé, aðalleikendurna í lífsferlinum.7,13 Harald Krabbe leit yfir farinn veg árið 1890 og ritaði þá yfirlitsgrein þar sem hann rekur í tímaröð hvernig þekk- ing á sullaveikinni kom fram og hvaða viðnámsaðgerðum var beitt á hverjum tíma. Ekki fer þó á milli mála óánægja hans með að tillögur hans um að fækka hundum í landinu höfðu ekki orðið að veruleika, því undir lok níunda áratugar- ins voru enn hátt í 10 þúsund hundar í landinu.18 Þótt hundunum fækkaði hægt skipti vitneskjan um að hundar mættu ekki komast í sollin líffæri greinilega sköpum, því að hratt og örugglega dró úr smitinu. Náttúrufræðingurinn 118

x

Náttúrufræðingurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.