Náttúrufræðingurinn

Ukioqatigiit

Náttúrufræðingurinn - 2023, Qupperneq 33

Náttúrufræðingurinn - 2023, Qupperneq 33
Síðustu fjórar greinarnar birtust á ár- unum 1880 til 1905 í Nordiskt Med- iciniskt Arkiv. Greina þær frá smiti af völdum fjögurra bandorma í mönnum í Danmörku (alls 451 manni) sem greinst höfðu með bandormasmit á síðustu áratugum 19. aldar, raunar allt fram til 1905. Algengastur var nautgripaband- ormurinn (Taenia saginata), sem fannst í 320 mönnum, smittíðnin 71%. Svína- kjötsbandormurinn (Taenia solium) var í öðru sæti, fannst í 17% tilvika; breiði bandormurinn (Dibothriocephalus la- tus) var í 8% einstaklinganna, en flóar- bandormurinn (Dipylidum caninum) var sjaldgæfastur (4%).1,36–38 Iðraormar húsdýra Árið 1872 birti Krabbe viðamikla yfir- litsgrein (55 bls.) um iðraorma í hús- dýrum.39 Þar skiptir hann iðraormum í fjóra hópa, bandorma, ögður, þráðorma og krókhöfða. Síðan fer hann yfir allar tegundirnar sem þá voru þekktar innan þessara hópa í níu tegundum húsdýra (hrossum, svínum, nautgripum, sauðfé, hundum, köttum, hænsnum, öndum og gæsum) og rekur algengi þeirra og skað- semi. Samantektin lýsir yfirgripsmik- illi og staðgóðri þekkingu. Til dæmis telur Krabbe upp 17 tegundir iðraorma í hænsnum, 15 í öndum og 13 í gæsum. Áratug síðar bætir hann hátt í þremur tugum nýrra tegunda á þessa lista.40 Greinarnar sýna berlega að Krabbe fylgdist náið með framþróun sníkju- dýrafræðanna. Tveimur árum áður hafði hann birt grein um skaðann sem iðraormar geta valdið í mönnum og dýrum.41 Skoðun bandormskróka og rannsóknir á lífsferlum Þegar árið 1862 birti Krabbe teikningar af krókum bandorma sem hann dró upp með hjálp teiknitúpu (sjá Innskotsgrein B).42 Þegar hér var komið sögu höfðu bandormafræðingar áttað sig á því að stærð og útlit króka var eins í lirfum og fullorðnum ormum sömu tegunda. Bar hann saman króka úr lirfustigum og fullorðnum bandormum hjá moldvörpu (Talpa europea), rauðref (Vulpes vulpes) og rádýri (Capreolus capreolus). Nokkrum árum síðar ritar Krabbe aðra grein þar sem farið er yfir lífsferla band- orma sem lifa í fuglum og fiskum.43 Lýsir hann meðal annars lirfum úr svartsnigl- inum Arion ater. Nokkrum árum síðar greindi Krabbe frá því að tekist hefði að staðfesta að hundalúsin, Trichodectes canis, gæti verið millihýsill flóarband- ormsins (Dipylidum caninum).44 Á Ís- landi er talið að mannaflóin (Pulex irritans), hafi fyrst og fremst gegnt því hlutverki.36 Tríkínur og tunguormar Fundist hafa fimm greinar frá árunum 1860 til 1867 í ritinu Tidsskrift for Vet- erinairer sem fjalla um tríkínu eða fleskorminn (Trichinella spiralis).45-49 Fyrsta greinin er almenns eðlis og lýsir því hvernig mönnum tókst með til- raunum að ráða lífsferil sníkjudýrsins, hluti greinarinnar fjallar raunar um tunguorminn (Pentastomum taenioides). Hinar greinarnar fjalla almennt um tríkínur og um rannsóknir á algengi þeirra í svínum og svínaafurðum, svo sem í reyktri skinku í Danmörku. 6. mynd. Dýrafræðisafnið í Kaupmannahöfn tók formlega til starfa 1862. Sýningarhlutanum var lokað við endurskipulagningu 2022 en til stendur að opna sýningar að nýju undir merkjum Náttúrgripasafns Danmerkur við Kaupmannahafnarháskóla 2025. – The Zoological Museum in Copenhagen was eastablished in 1862. Exhibitions were closed in 2022. The Museum will reopen as a part of the the Natural History Museum of Denmark, affiliated to the University of Copenhagen, in 2025. Ljósm./Photo: Karl Skírnisson. 121
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.