Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 2023, Page 57

Náttúrufræðingurinn - 2023, Page 57
og flétta þar og víðar á Tröllaskaga, sé fremur tengt mikilli hrörnun slíkra líf- vera samfara móðuharðindunum seint á átjándu öld. Á árunum 1987-2000, skoðaði höf- undur nánar þessi fyrirbæri og ritaði um þær ýtarlega MSc ritgerð í jarðfræði við Háskóla Íslands undir heitinu Frera- fjöll.27 Árið 1995 ritaði höfundur grein í Náttúrufræðinginn undir heitinu: Berg- hlaup eða urðarjöklar.28 Greinin vakti athygli og var gagnrýnd í orðræðu jarð- fræðisamfélagsins en þó var lítt eða ekki ritað gegn henni. Síðari tíma rannsóknir og greinaskrif erlendra vísindamanna hafa þó fremur styrkt þær tilgátur sem þar eru lagðar fram en hrakið.22,23, 25 Að auki ritaði höfundur um sífrerasvæði á Norð-Austurlandi í tímaritið Múlaþing 199629 og almennt um sífrera á Íslandi í „ráðstefnurit“ í Frakklandi vegna kynn- ingar á sífrera hérlendis.30 Á mynd 2 eru sýnd dæmi um urðarjökla í skálum að baki Hólabyrðu í Hjaltadal. Snjóalög eru mjög breytileg milli ára og sum árin sést lítið í virku urðarjöklana. Í ritgerðinni Frerafjöll,27 er gerð tölfræðileg greining á ýmsum þáttum er varða urðarjökla, urðartungur og urðarbingi á Tröllaskaga. Ekki er höf- undi kunnugt um að hliðstætt hafi verið unnið hérlendis þótt slík gagnameð- ferð hafi verið algeng erlendis.12–15, 31, 32, 33 Á mynd 3 er útbreiðslukort yfir urðar- jökla á Tröllaskaga smækkað úr rit- gerðinni Frerafjöll. Með betri og að- gengilegri loftmyndum hin síðari ár, koma í ljós miklu fleiri urðarbingir en áður sáust (meðan ritið Frerafjöll var í undirbúningi) og auðveldara er að greina virkni þeirra. Þegar hér er rætt um urðartungur og urðarbingi er óvíst um hvort í þeim leynist enn innri ís og í þeim hópi eru einnig jarðmyndanir sem telja má víst að séu orðnar íslausar á okkar tímum (e. relict rockglaciers). Hæð urðartungnanna yfir sjó var greind og þær flokkaðar eftir landfræði- legum austur-vestur beltum auk þess sem þeim var varpað, inn í langsnið eftir háhrygg Tröllaskaga (4. mynd). Með þessum teikningum er gerð tilraun til að sýna staðsetningu urðartungna og flokkun þeirra í einfaldri þrívídd. Í ritgerðinni Frerafjöll eru niðurstöður margskonar greininga á tölfræðilegum þáttum er varða urðarjökla og urðar- tungur á Tröllaskaga. Sjá má að dreifing urðartungna og urðarjökla á Tröllaskaga er í stórum dráttum hliðstæð dreifingu slíkra fyrirbæra á virkum (og fyrrum virkum) sífrerasvæðum í fjöllum er- lendis.12–14,33, 39 Mynd 4 má túlka sem svo að langtíma landmótun sýni þrálát ein- kenni „alpajökla“ sem hafa verið þykk- astir í dalbotnum næst miðju skagans 3. mynd. Útbreiðsla urðarbingja og urðartungna á Tröllaskaga. Byggt á korti (teikning 6.1) í ritgerðinni Frerafjöll27. – Distribution of rockglaciers and related debris bodies in the Tröllaskagi peninsula (valley and cirque glaciers light blue)27. Ágúst Guðmundsson 2000. 145 Ritrýnd grein / Peer reviewed

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.