Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 2023, Side 75

Náttúrufræðingurinn - 2023, Side 75
5. mynd. Útbreiðsla og stærð hettumáfsvarpa í Eyjafirði árið 2020. – Distribution and size of Black-headed Gull nesting sites on the Eyja- fjörður monitoring area in 2020. Á Gálmaströnd, frá Arnarnesi í norðri suður að Ósi við Hörgá, fjölgaði varppörum í heild úr 146 í 193 (24%). Hettumáfar urpu á þremur stöðum bæði árin 2015 og 2020 en þó ekki að öllu leyti þeim sömu. Nýr varpstaður bættist við austan við Freyjulund, þá fjölgaði verulega við tjörn norðaustan við Spónsgerði (svonefnda Dauðatjörn), pörum fækkaði við Arnarnes og nú var ekkert varp við Hörgá neðan við bæ- inn Ós. Svipaður fjöldi hóf að verpa við Freyjulund (35 pör) og voru áður við Ós (38 pör), svo má vera að það varp hafi flutt sig í heild. Í þetta sinn urpu engir hettumáfar inni í Hörgárdal. Langstærsta varpið í Eyjafirði (374 pör) var nú í Krossanesborgum á Ak- ureyri sem er friðaður fólkvangur. Langflest pörin urpu í sefkraganum umhverfis Djáknatjörn vorið 2020 (8. mynd), en það hefur rúmlega tvöfaldast frá 2015 og aldrei áður verið jafn stórt. Vorið 2018 voru 357 pör í Krossanes- borgum.7 Varpið við Hundatjörn í Naustaflóa á Akureyri stóð nánast í stað milli talninga en þar var fuglalíf vaktað ár- lega á árunum 2008-2010 en eftir það á tveggja ára fresti. Fjöldi varppara var mestur vorið 2012 (128 pör), 94 pör 2014, 81 par 2015, 93 pör 2016, 71 par 2018 og 75 pör 2020.8 Í óshólmum Eyjafjarðarár norðan gamla þjóðvegar urpu hettumáfar á þremur aðskildum stöðum, alls 259 pör og þar varð 58% aukning frá 2015.6 Inni í Eyjafjarðarsveit fjölgaði varp- pörum við Kristnestjörn milli 2015 og 2020 úr 33 pörum í 51 (55%). Vorið 2015 urpu 163 hettumáfspör neðan við Brúna- laug í Eyjafjarðarsveit og 68 pör neðan við Laugaland þar skammt norðan við, samtals 231 par. Vorið 2020 voru 259 pör neðan við Brúnalaug en aðeins 10 neðan Laugalands, alls 269 pör. Fjölg- unin á þessum tveimur nærliggjandi svæðum var samanlagt 16%. Ef farið er út með Eyjafirði að austan- verðu er fyrst komið að hettumáfsvarpi við Tungutjörn á Svalbarðseyri. Það hefur verið nokkuð stöðugt frá alda- mótum, að meðaltali 53 pör (45-62 pör). Vorið 2020 varp 51 par við tjörnina. Í Höfðahverfi eru 16 varpstaðir hettumáfa þekktir frá árinu 1990. Hettu- máfum fækkaði stöðugt á þessu svæði frá því sem mest var 271 par vorið 1990 niður í 18 pör 2015. Vorið 2020 voru 34 pör á fjórum stöðum á svæðinu í heild og fjölgunin 89% frá 2015. 6. mynd. Heildarfjöldi hettumáfspara á vöktunarsvæðinu í Eyjafirði á tímabilinu 1990 til 2020. – The total number of Black-headed Gull pairs in Eyjafjörður during the period 1990 to 2020. Ár / Year 0 500 1000 1500 2000 2500 Fj öl di v ar pp ar a / N os b re ed in g pa irs 1985 1990 1995 2000 2005 2010 2015 2020 2025 163 Ritrýnd grein / Peer reviewed

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.