Mímir - 01.07.1987, Page 5

Mímir - 01.07.1987, Page 5
skapast sjálfsmynd þjóðar og þjóð sem ekki þekkir sjálfa sig nokkuð vel verður ekki þjóð til lengdar. Að því leyti held ég að markmið ís- lenskukennslunnar sé „þjóðlegt“, ef svo má að orði komast. Ég lít svo á að íslenskunámið sé fyrst og fremst starfsmenntun, meginmarkmið þess að þroska og þjálfa fólk í ákveðinni fræði- grein. Og ég held að það gildi bæði á B.A.- og cand.mag.-stigum. Þegar námsskipulagi var breytt fyrir tveimur árum kvörtuðu margir nemendur yfir því að kjarnakúrsum skyldi fjölgað og þá kom upp sú spurning hvers vegna þyrfti að skylda nemend- ur sem t.d. hefðu einkum áhuga á bókmennta- fræði til að taka málfræðikúrsa. Var ekki rétt- lætingin sú, að deildin útskrifaði menn með réttindi til kennslu í báðum greinum og því þyrftu þeir að kunna skil á hvoru tveggja? Eiríkur: Ég held að það sé nú ekki eina rétt- lætingin. Það er alltaf talað um að íslenska sé ein grein, og að ekki sé hægt að fást eingöngu við íslenskar bókmenntir eða íslenska málfræði án þess að hafa einhverja nasasjón af hinu. Hins vegar býst ég við að þetta sé sú réttlæting sem er auðveldast að beita. Nú, þetta með starfsmenntunarhlutverkið, það má ekki gera of mikið úr því, en auðvitað verður að horfast í augu við það að þetta er eina menntunin sem er í boði fyrir þá sem ætla að kenna íslensku í framhaldsskólum, þar sem Kennaraháskólinn menntar bara kennaraefni fyrir grunnskólann. Mér hefur alltaf fundist að það þyrfti að taka svolítið meira tillit til þessa, því það er ekkert gert sérstaklega fyrir þá sem ætla sér að verða kennarar. Matthías: Þarf þá ekki að breyta fyrirkomu- laginu? Leggja niður uppeldisfræðina sem sér- stakt fag, eða draga hana inn í hinar einstöku greinar. Eiríkur: Jú, ég held það. Við getum ekki litið fram hjá því að við eigum líka að mennta kennara, eða mennta fólk sem er hæft til að kenna greinina. Svo bæta menn náttúrulega einhveiju við sig í kennslu og uppeldisfræði. Höskuldur: Það fyrirkomulag sem nú er, með B.A.-stig og kandídatsstig að því loknu hentar kannski ekkert sérstaklega þessum þætti sem varðar kennaraefni, því nú fá menn rétt- indi sem kennarar í framhaldsskólum með því að ljúka B.A.-prófi og síðan uppeldis- og kennslufræðum. Ég held að margir reki sig á það að þeir þyrftu gjarnan meiri undirstöðu í greininni sjálfri heldur en þeir fá í B.A.- náminu, þótt það nýtist að sjálfsögðu. Kandídatsnámið hefur aftur á móti verið snið- ið meira fyrir fræðimenn en kennara. Og það er spurning hvort þarna vanti ekki eitthvert millistig. Reyndar var það aldrei hugmyndin að þeir sem lykju B.A.-prófi fengju réttindi til kennslu í framhaldsskólum, en með lögum um embættisgengi kennara fór þetta svona. Matthías: Og þess eru dæmi núna að há- menntaðir menn í faginu hafi engin réttindi á þessu sviði á sama tíma og fólk með slarkandi lágmarksmenntun hefur þau réttindi. Bjarni: Ég vil bæta því við að ég hef lengi verið þeirrar skoðunar að hlutur uppeldis- og kennslufræða í náminu hefur verið of mikill. Nemendur þurfa að taka 30 einingar til þess að fá réttindi til kennslu og þannig hefur fræðileg þekking í greinum borið minna vægi en þessi uppeldisþáttur. Eruð þið hinir sammála því? Finnst ykkur vera of mikið lagt upp úr uppeldisfræðunum? Höskuldur: Það er spurning hvort ekki ætti í staðinn fyrir það fyrirkomulag sem nú er að hafa kannski tveggja ára nám að loknu B.A.- prófi þar sem kennslufræði væri einhver hluti, kannski ekki 30 einingar heldur eitthvað minna. .. ritúal hjá nemendum hvers tíma að tala um afturúrhátt kennara sinna ...“ Hvað með þróun síðastliðin 10—15 ár, í kennsluháttum, kennslugögnum og kennsluað- ferðum? Bjarni: Mér sýnist að undanfarin ár hafi þróunin verið í þá átt að fyrirlestrahald hefur vikið að töluverðu leyti fyrir umræðum. Þetta er það sem ég vil kalla engilsaxneska kerfið og skandinavíska reyndar líka. Ég er sjálfur mjög 5

x

Mímir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Mímir
https://timarit.is/publication/1937

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.