Mímir - 01.07.1987, Side 9

Mímir - 01.07.1987, Side 9
vandræði með bókakost, og sérstaklega ef mað- ur ætlar að fara að skrifa eitthvað, kannski síð- ur þegar maður er að kenna. Það hendir oft að tilteknar bækur eru ekki til, eða þau tímarit sem maður ætlar að nota, og það er eiginlega orðið ómögulegt fyrir einstaklinga að kaupa allar þessar þækur því þær eru orðnar svo dýr- ar. Hafa kennarar einhver áhrif á bókakaup Háskólabókasafns? Höskuldur: Já, þeir geta haft það, en ég held reyndar að mjög margir kennarar hafi gefist upp á því. Fyrir nokkrum árum voru menn mjög áhugasamir um að stuðla að því að þóka- safnið fylgdist með og keypti bækur, en það voru engir peningar til og það var ekki til neins að vera að koma með einhverja lista, og þá bara hættu menn að standa nokkuð í því. En mér skilst að það sé eitthvað að birta til í þessu. A.m.k. fékk maður að vita af því síðastliðið sumar að nú væri lag, nú væri hægt að kaupa einhverjar bækur og jafnvel tímarit, sem ekki hefur verið lengi. Nú er búið að setja af stað nýtt happdrætti sem á að fjármagna tækja- og bókakaup skilst mér, og það seldist víst upp á nokkrum dögum. Svo það virðist eitthvað vera að rofa til. Eiríkur: Það virðist ganga mjög hægt. Mér var líka sagt í haust að nú væru til peningar til að kaupa bækur. Nú, ég pantaði þó nokkrar bækur fyrir stúdenta til þess að hafa til hlið- sjónar í kúrsum sem ég er að kenna núna. Mér er sagt að þær hafi verið pantaðar í nóvember, en þær hafa ekki sést ennþá. Bjarni: Já, það er rétt að ástandið er mun betra núna en oft áður; allt í einu hefur maður fengið beiðni um að benda á bækur til kaupa. Þetta var gjörsamlega óþekkt áður, þá gekk maður bónleiður til búðar ef maður vildi kaupa bækur, nema í undantekningartilfellum. Svo að staða Háskólabókasafns hefur batnað í ár. En vegna margra ára sveltis, þá eru miklar eyður í bókaeign safnsins og einkum í miðalda- fræðum, og sérstaklega í sambandi við heilagra manna sögur. Við erum vel birgir í miðalda- fræðum sem snerta beinlínis innlent efni, og það stafar m.a. af því að bókasafn Finns Jóns- sonar rann inn í safnið og söfn ýrnissa ágætra manna. „Þetta er ekki gagnrýnisvert heldur Iofsvert.“ Hvað segið þið um þá gagnrýni sem heyrst hefur að vaxtarbroddur íslenskra fræða sé erlendis? Bjarni: Nú þarf ég að vera langmáll. Fyrst er þess að geta að spurningin er orðuð á dálítið sérstakan hátt, því hún gerir ráð fyrir að það sé gagnrýnisvert ef vaxtarbroddur íslenskra fræða sé erlendis. Það þarf ekki að vera gagnrýnis- vert. Ég vil benda ykkur á þá staðreynd að allt frá því að farið var að leggja stund á íslensk fræði hefur vaxtarbroddur þeirra verið að meira eða minna leyti erlendis. Það þarf ekki annað en nefna nöfn manna eins og Heuslers, Knuts Liestöls, Magnúsar Olsens, Hallvards Lies, Peters Hallbergs o.s.frv.; þetta eru bara nokkur nöfn sem tengjast bókmenntafræðinni. Ég er síður en svo að gera lítið úr afrekum ís- lenskra fræðimanna genginna kynslóða. En vaxtarbroddur hefur alltaf verið einhver erlendis og vonandi verður það framvegis. ís- lendingar hljóta alltaf að vera fullir þakklætis ef ágætir vísindamenn eru að fást við rann- sóknir á þessum fræðum. Nú, spurninguna mætti kannski orða öðruvísi, og spyrja þá hvort enginn vaxtarbroddur sé á íslandi. Og það er náttúrulega umræðuefni sem nrá deila um. En ég vil nú benda á að við höfum t.d. Árnastofn- un sem gefur reglulega út bækur, handrit á vís- indalegan máta. Þannig að það verður ekki sagt annað en að það sé einhver vaxtarbroddur í út- gáfum að minnsta kosti. Kennararnir láta nú endrum og eins eitthvað frá sér fara, nema Matthías, hann hrúgar þessu frá sér núna á meðan hann er ungur. Þetta er þáttur í vextinum. Hitt er aftur annað mál hvort ekki mætti vera meiri dugur og þróttur í þessari fræðimennsku. Ég get alveg verið sam- mála því. Og þá mætti spyrja sem svo; Hvað veldur því að við erum kannski ekki jafn miklir þátttakendur í þessum vexti eins og við vildunr 9

x

Mímir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mímir
https://timarit.is/publication/1937

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.