Mímir - 01.07.1987, Síða 14

Mímir - 01.07.1987, Síða 14
prófessora mæla sig við aðra umsækjendur á ákveðnum fresti? Bjarni: Ég skal ekki segja, það má vel vera, en eins og mér finnst málið vaxið þá mæli ég með því að Bjarni Guðnason hafi æviráðningu. Þú nefndir sem galla að viðkomandi stirðni í starfi en kost að hann öðlist meiri reynslu og þekkingu; er þetta ekki þversögn? Bjarni: Nei það er ekki þversögn. Menn geta stirðnað í vissum atriðum, sem fylgir aldrinum, menn geta stirðnað í mannlegum samskiptum og orðið „úldnir pungar“, leiðinlegir. En þeir geta vaxið að þekkingu í fræðunum. Höskuldur: Þetta kemur líka svolítið inn á kjaramálin því að eitt af því sem hefur gert störf hjá ríkinu eftirsóknarverðari en ella og vegur svolítið upp á móti þessum launakjör- um, er að opinberir starfsmenn hafa haft meira öryggi heldur en þeir sem vinna hjá einkafyrir- tækjum, þar sem þau fyrirtæki geta farið á hausinn o.s.frv. Og það yrði mun erfiðara fyrir ríkið að manna þessar stöður ef þetta gilti ekki. Bjarni: Nú og svo vil ég bæta hér við að ef fram kemur ungt fólk, karlar og konur, sem er efnilegt, þá á góður háskóli að geta veitt því einhverjar stöður; góður skóli sem er í vexti á að geta séð um að efnilegt fólk komist að við störf í skólanum og þar með yrði eðlileg endur- nýjun. „Konurnar yfirtaki fljótlega íslensk fræði“ Það er ljóst að mikiö karlaveldi ríkir inn- an íslenskudeildarinnar ef við lítum á fastráðna kennara (sbr. orð Bjarna: „úldnir pungar“). Hverjar eru ástæður þess og er breytinga að vænta? Saknið þið ekki kvenlegra áhrifa í deildinni? Bjarni: Jú vissulega, vissulega. En það er á þessu ósköp eðlileg skýring sem er sú að konur sóttu ekki nám í íslenskum fræðum fyrr en eftir síðasta stríð. Þær voru sérstakt fyrirbæri kon- urnar sem birtust í deildinni. Fyrsta konan sem lauk kandídatsprófi var Karólína Einarsdóttir og ætli það hafi ekki verið í kringum 1950, ég man það ekki nákvæmlega. Síðan fjölgaði þeim smátt og smátt. Það segir sig sjálft að karlmenn eru sjálfkrafa háskólakennarar af því að þeir höfðu lagt stund á þetta nám, ekki konur. En núna er sennilega drjúgur meirihluti nemenda konur og hlutur þeirra meðal kennara á eftir að aukast verulega. Karlmönnum fækkar stöðugt í íslenskunámi, þeir vilja vera í bókhaldi og arðsemi, mér skilst það sé þróunin. En ég held að það sé ekki gott að hafa annað hvort karla eða konur við þessi fræði, það verða að vera þæði karlar og konur. Þú ert sem sagt viss um að þetta breytist? Bjarni: Já, ég held að það leiði af sjálfu sér. Þetta er ekkert mat á körlum og konum; þetta Ieiðiraf kynskiptingunni í greininni sjálfri. Höskuldur: Nú er t.d. mikill meirihluti á B.A.-stiginu konur. En er það eins á Cand.- mag. stigi? Bjarni: Já, ég held það. Eiríkur: Það er síður í málfræðinni. Ég held að það séu allt önnur hlutföll á Cand.mag- stigi heldur en á B.A.-stigi. En ef við lítum t.d. á stundakennara í málfræðinni þá eru talsvert margar konur í þeim hópi. .. að virkja sköpunarhæfileika í manneskjunni..“ I vetur hefur verið boðið upp á námskeið í ritlist. Hver er afstaða ykkar til þess? Sam- ræmist það markmiði kennslunnar? Nú kom það ekki fram í svari við fyrstu spurningunni að við ættum að framleiða skáld í þessu námi. Höskuldur: Þetta tengist náttúrulega fyrstu spurningunni líka og öðru því sem við ræddum um skipulag námsins. Það er ekki víst að þetta ritlistarnámskeið falli mjög vel inn í skipulagið eins og það er núna. Ef við hugsum um B.A.- stigið sem svona grundvallarþekkingu eins og Bjarni sagði, eða til að kenna fólkinu að lesa, eins og Matthías sagði, þá er þetta náttúrulega hvorugt af því. Þetta er svona frekar einhvers konar starfsnám. Maður gæti þá frekar hugsað sér að það ætti við sem einhvers konar viðbót við B.A.-stigið, ef fara ætti eftir einhverri svona skiptingu. Og menn fengju þá t.d. að taka þetta í staðinn fyrir uppeldis- og kennslufræði. 14
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Mímir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mímir
https://timarit.is/publication/1937

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.