Mímir - 01.07.1987, Síða 31

Mímir - 01.07.1987, Síða 31
able gap between words and things, signs and referents. The whole notion of „sign and re- ferent“ has been rejected by the French structuralists and their followers as to materia- listic and simpleminded. Signs do not refer to things, they signify concepts, and concepts are aspects of thought, not of reality. This eiegant and persuasive formulation has certainly provided a useful critique of naive realism, vulgar materialism, and various others -isms that can be qualified with crippling adjectives. But it hasn’t exactly caused the world to turn into a concept. Even semioticians eat and per- form their other bodily functions just as if the world existed solidly around them. The fact that the word ,,boulangerie“ has no referent does not prevent them from receiving their daily bread under that sign. As Borges put it: The world, alas, is real; I, alas, am Borges.6 Scholes heldur síðan áfram með því að ítreka að ekki sé hægt að útkljá um tengsl orða og hluta í þessu samhengi. En hann viðurkenn- ir að þessar tvær stefnur séu í málinu og að stríðið um veruleikann sé jafnframt stríð um orð. í deilunni um gildi hugtakanna er enginn sigurvegari, og Borges sjálfur þarf meira að segja að halda áfram að skilgreina tilveru sína. Vísunin (re-presentation) eða sem sé bilið milli hugtaks og raunveruleika, er ekki lokun á raunveruleika, eins og Scholes gefur tilefni til að halda, heldur hinn eini mögulegi aðgangur að honum: Táknin brúa þetta bil. Tekið skal skýrt fram að bilið er alltaf til staðar og að stundum getur verið æði langt útí bakarí. Skólarnir Ógerlegt er að skera úr um hvor þeirra eigi meira tilkall til að teljast upphafsmaður tákn- fræðinnar, Peirce eða Saussure. En eftir þeirra daga hafa komið fram ýmsar stefnur og fræði- menn, sem kenna sig við táknfræði. Einn þeirra er Roland Barthes, sem stundum er tal- inn vera holdgervingur táknfræðinnar. Það voru Goðsögur (Mythologies) hans frá 1957, sem komu á formgerðarstefnunni, og gerðu táknfræðina fræga á Vesturlöndum. Barthes notaði hugtakið merkingarauki (konnota- tion),x sem á við merkingu þá sem bætist við upphaflegan merkingarkjarna (denotation) táknsins. Með því lagði hann grundvöll að nýj- um skilningi á hugmyndafræðilegum og goð- sögulegum formgerðum, og taldi hann þær aukaafurð nokkurra grunntákna. Þetta hafði svo mjög mikil áhrif á hugmyndagagnrýnina svonefndu. Nefna má Louis Hjelmslev og glossematik- ina, en Roland Barthes nýtti sér táknhugtak hans, auk þess sem glossematik hafði mikil áhrifinnan málvísindanna. Eftir tíma Hjelmslevs og Barthes verður myndin ennþá þokukenndari. Ein elsta stefnan er Pragskólinn, en þar var Jan Mukarovsky forvígismaður.1,1 Hann sagði að fagurfræðileg fyrirbæri væru aðalviðfangsefni fagurfræðinnar, en slík fyrirbæri voru í huga hans sama eðlis og táknmiðið í kenningu Saussure. Stofnendur Pragskólans hugsuðu um margt svipað og A.J. Greimas, sem síðar reyndi að afmarka frásagn- arþáttinn í textum. Með rannsóknum sínum á tvískiptnum (díalógískum) skáldsögum, og á jörfagleði eða karnívalmenningu miðalda sá Rússinn Michail Bachtin fyrir margar af niðurstöðum er síðar komu fram í sjónarhornagreiningu. Einn af mörgum textafræðimönnum, sem orðið hafa fyrir áhrifum frá Bachtin, er Julia Kristeva, svo sem sjá má af hugtaki hennar, intertextualité. Enn fremur mætti nefna fjölda franskra tákn- fræðinga og ótal Breta og Bandaríkjamenn. Nokkrir menn hafa sérhæft sig í undirgreinum táknfræðinnar. Meðal þeirra eru kvikmynda- táknfræðingurinn Christian Metz og dýratákn- fræðingurinn Thomas A. Sebeok, auk Michaels Riffaterre, C. Bureau og annarra sem keppa um titilinn „táknfræðingur ljóðlistar- innar”. Og svo mætti lengi telja. Síðast en ekki síst skal nefna Umberto Eco, fyrsta prófessor í táknfræði í heiminum, en hann er höfundur ijölda kennslubóka í fræðun- um um táknið. Ein nýjasta kynning hans á táknfræði er reyndar skáldsagan og metsölu- bókin Nafn rósarinnar, II nome della rosa. 31
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Mímir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mímir
https://timarit.is/publication/1937

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.