Mímir - 01.07.1987, Blaðsíða 32

Mímir - 01.07.1987, Blaðsíða 32
Það er til lítils að ætla sér að gera grein fyrir öllum þeim skólum og stefnum sem falla undir hugtakið táknfræði. Svo margt er nú kennt við táknfræði að við sjálft liggur að orðið sé að glata merkingu sinni. En grundvallarhugmynd- ir táknfræðinnar eru mönnum engu að síður ennþá tilefni til innblásturs. Með tilkomu sálgreiningarinnar verður myndin fjölbreyttari og enn áhugaverðari. Sál- greining Freuds, og þá sér í lagi endurtúlkun Jacques Lacan á henni hefur haft ómetanlega þýðingu fyrir táknfræðina, einkum í Evrópu. Atferlisfræðin, og að hluta til hin bandaríska ego-sálfræði, hefur aftur á móti verið uppistað- an hjá bandarískum táknfræðingum, þegar þeir fást við ítök málsins í einstaklingnum. Af þessari upptalningu má álykta að kynn- ing á táknfræði byrji með útlagningu á sígild- um kenningum um táknið og tvær hliðar þess, því næst komi yfirlit yfír stefnur innan greinar- innar og loks sé endað með huglægri skilgrein- ingu á táknfræðinni út frá því hvaða sviði áhugi manns beinist að. Er táknfræðin vísindi? Hvert tákn er að sjálfsögðu mjög afmörkuð stærð, og það sem fræðimenn beina sjónum sínum aðallega að eru vensl táknanna, tilurð merkingarinnar (signification), fremur en tákn- ið (sign) sem óbreytanleg stærð. Táknfræðin er ekki vísindi í hefðbundnum skilningi ef með því er átt við að hún þurfi að hafa afmarkað viðfangsefni og tilteknar aðferð- ir til að beita á þetta viðfangsefni. Eins og fyrr segir eru í rauninni engin takmörk fyrir því hvað er hægt að skilgreina sem tákn og Iesa sem slíkt. Samt sem áður er það lágmarksskil- yrði að táknin séu ekki algjörlega tilviljana- kennd eða algjört einsdæmi. Táknin, sem eru viðfangsefni táknfræðinnar, verða annars vegar að vera menningarfyrirbœri (culturally recognized) og hins vegar tengd lykli (systematically coded).12 Þau tákn sem tákn- fræðingar athuga þurfa með öðrum orðum að miðast við lykla — og þá málfræðireglur — og vera þekkjanleg sem hluti af sameiginlegri menningu. Þrátt fyrir þessar takmarkanir eru viðfangsefnin óþrjótandi. Um þetta segir Peirce eftirfarandi: „But what“, some listener (...) may say, „are we not to occupy ourselves at all with earth- quakes, droughts and pestilence?“ To which I repiy, if those earthquakes, droughts and pesti- lences are subject to laws, those laws being of the nature of signs, then, no doubt being signs of those laws they are thereby made worthy of human attention; but if they be mere arbitrary brute interruptions of our course of life, let us wrap our cloaks about us, and endure them as we may; for they cannot injure us, through they may strike us down.1 •1 Annað dænti: Einstaklingur reynir að búa til sitt eigið tungumál, sinn eigin málheim, sem felur í sér marga lykla. Slíkt tungumál þarf ekki að vera áhugavert frá sjónarmiði táknfræðinn- ar, nema því aðeins að það sé jafnframt hluti af ákveðinni menningu. Ef táknfræðin er ekki vísindagrein í hefð- bundnum skilningi geta menn spurt hvort hún sé sérsvið innan annarrar vísindagreinar,14 eða hvort hún sé aðferð til að vinna með merking- arkerfi er gengur þvert á venjuleg fög. En þetta kemur varla heim og saman við það að hún er notuð á mörg mismunandi fög og með mis- munandi aðferðum. Margt er óljóst um stöðu táknfræðinnar, en hér skal aðeins bent á að hún hefur verið þeim hvatning sem leggja stund á hefðbundnar vís- indagreinar, bæði hug-, þjóðfélags-, náttúru- og raunvísindi. Spurningin um hvort táknfræðin sé vísindi segir meira um hvernig við hugsum um vísindi en um táknfræðina.15 Hvað gerir táknfræðingur? Til þess að gera ekki hlutina of dularfulla, mætti kannski spyrja: Hvað gerir táknfræðing- ur? í staðinn fyrir að spyrja hvað táknfræði sé. Það gerði Maya Pines, hress blaðamaður frá New York Times árið 1982, þegar hún ætlaði að skrifa grein um táknfræði.16 Hún bað nokkra táknfræðinga um að skilgreina þetta sérsvið sitt með dæmum. Þar fyrir utan spurði 32
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Mímir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mímir
https://timarit.is/publication/1937

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.