Mímir - 01.07.1987, Page 61

Mímir - 01.07.1987, Page 61
2 2.2 Sinnum meira í íslenzkri málfrœði (1937:54) segir Björn Guðfinnsson: Töluatviksorðin eru aðeins 4: tvisvar, þrisvar, tvívegis, þrívegis. 1 stað töluatviksorðs er oft notað þf. eða þgf. et. eða ft. af nafnorðinu sinn ásamt töluorði, t.d. eitt sinn, einu sinni, tveim sinnurn, í þriðja sinni o.s.frv. Björn minnist ekki á orðalagið tvisvar sinn- um og þrisvar sinnum. Kannski honum hafi þótt það þvílík rökleysa. Stefán Einarsson (1945) nefnir það ekki heldur en ýmsar aðrar málfræðibækur frá fyrra hluta þessarar aldar gefa þetta orðalag sem dæmi og taka það gott og gilt. Nú er alþekkt úr reikningi þegar margfaldað er, að sagt er að ein tala sé önnur sinnum sú þriðja. Halldór Briem (K. í f. 1915:7) skilgreinir svo: ..., margföldunarmerkið x eða . er þýðir sinn- um eða margfaldað með, ... En ekki hafa allir verið alveg sáttir við það og t.a.m. segir Ólafur Ólavíus (1780:48): §.61. Þá er margfalldnar verda tolur tvær hver með annarri, og haft er þar til þetta atqvædi sinnum, sem 3 (þrim) sinnum 5 (edr þrisvar 5), þad kallast ad leida tolu til annarrar, og athofn siá heitir leidsla. § . 62. Auk þessa hefir túnga vor miog stutta og náqvæma málsgrein ad ávísa med talnanna margfolldun edr leidslu, hellst enna einfolldu, þvíad í stadinn þess ad margfallda med 2, 3, 4, 5, 6, 7, 8, 9, x- kollu ver ad tvífallda, þrefallda, fiórfallda, fimfallda % ítem tíufallda, %. hundr- adfallda, þúsundfallda. og mun eg þessi atqvædi sídarmeirr á þvísa lund rita: 2fallda, 3fallda, 4fallda. lOf. 100f.%. En hvaða merkingu hefur það þá að segja að ein stærð sé svo og svo mörgum sinnum stærri (eða minni) en önnur? Ef x er þrem sinnum stærri en y ætti þá ekki að gilda: x = y + 3y? Væri til dæmis ekki eðlilegra að segja að talan fimmtán væri tveim sinnum hærri en talan fimm þar sem munur þeirra er tvöföld lægri talan? Fleiri virðast hafa hnotið um þetta orða- lag (Halldór Briem, 1912:72): 56. Með efnisþunga líkama er átt við þá tölu, er sýnir, hve mörgum sinnum líkami sá, sem um er að ræða, er þyngri en vatn það, er fyllir jafn- stórt rúm* . .. *) Eptir hugsuninni, sem í þessu er, væri rjett- ara að orða þetta þannig: Með efnisþunga líkama er átt við þá tölu, er sýnir, hve mörgum sinnum líkami sá, sem um er að ræða, er eins þungur og vatn það, er fyllir jafnstórt rúm. Þannig er einnig komist að orði í öðrum mál- um, svo sem dönsku, ensku og fleiri málum, en í íslensku er það ekki vanalegt, og mun því ekki þykja rjett vel viðkunnanlegt. Halldór beygir sig því undir málvenjuna þótt hann sé ekki alls kostar sáttur við hana og þar sem orðalagið x er z-sinnum meira en y kemur fyrir hjá honum hefur það merkinguna x = zy. Fyrirrennari hans, Ólafur Stephensen, orðaði þetta líka svona án nokkurra athugasemda (1785:113): ..., til dæmis: ef eg deili 12 med 4, þá sýnir qvótinn 3 mer: at 12 seu 3sinnum stærri enn 4, Öll þau dæmi sem ég hef enn séð í rituðu máli um orðalagið hafa fyrrgreinda merkingu. T.a.m. þegar Björn Jónsson (1912:6) talar um lagarílát sem eru 10 sinnum stærri og 100 sinn- um stærri en mælieiningin mál þá eru þau málið tífalt og hundraðfalt. Dæmið úr Nýjum félagsritum hér á undan (1. kafli) segir líka að ef sami hlutur kostar á einum stað 3 pund en á öðrum 16 pund þá er hluturinn rúmlega 5 sinnum dýrari á síðarnefnda staðnum. En gegnir sama máli þegar sagt var og er, að ein tala sé svo og svo oft minni en önnur. Eins og margfaldað er þegar farið er upp á við virð- ist sem svo að þeir sem á annað borð geta sagt og skilið að x sé z-sinnum minni en y túlki það sem að y/z = x; t.d.: 6 er 5 sinnurn minni en 30, 30/5 = 6. Þarna væri þó e.t.v. rökréttara að gilti að: x = y - zy en málið fer þó ekki alltaf eftir því sem rökrétt gæti talist. I Tugamáli Björns 61

x

Mímir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Mímir
https://timarit.is/publication/1937

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.