Mímir - 01.07.1987, Blaðsíða 74

Mímir - 01.07.1987, Blaðsíða 74
1 ífsstefnu, hvaða hlutverk hún eigi að gera að sínu í lífinu. Á hún að njóta frelsis, óháð öðrum? Á hún að „fljúga út í heim“ og njóta ástar og listar? Eða á hún að taka við húsmóð- urhlutverkinu á föðurjörð sinni, giftast æsku- vininum Sveinbirni Stefánssyni, fæða af sér nýja kynslóð og viðhalda þannig ættinni? Það er ljóst að langanir hennar sjálfrar standa frekar til hins fyrrnefnda, en faðir hennar, fóstra og allir úr nánasta umhverfi óska henni hlutskiptis eiginkonunnar og hús- móðurinnar. Skylduræknin á sterk ítök í ísól, hún vill síst af öllu særa sína nánustu. Á henni hvílir líka mikil ábyrgð þar sem hún er einka- barn föður síns. ísól sér þessi tvö hlutverk fyrir sér sem ósætt- anleg. Það getur ekki farið saman, í hennar huga, að vera í húsmóðurhlutverkinu og njóta um leið frelsis og „flugs“. Hún tákngerir þessi andstæðu hlutverk í mynd Hinnar norrœnu móður annars vegar og Svansins hins vegar. í hugleiðingum sínum um frelsið og listina samsamar hún sig svaninum, þessum sterka og volduga fugli. Og aðrir sjá hana einnig sem svan: Hvað var hann að hugsa? Vildi hann brjóta þessa sterku vængi - sökkva þessari fannhvítu álft sem flaug til norðurs, hlýðin sínum dular- fullu örlögum? (bls. 114). Þessi orð eru hugsanir rússnessks tónskálds sem ísól kynntist þegar hún var á heimleið frá útlöndum á skipi. Með samsömun ísólar og svansins í huga er vert að minnast atviksins úr 1. kafla bókarinnar þar sem ísól var gefin dauð álft (sjá hér að framan). Hin norræna móðir er hins vegar holdi klædd mýtan um hina óumbreytanlegu og allt- umveíjandi Móður. Sú hugmynd að barneignir geti kornið í stað ófullnægðra langana hjá kon- um, breytt óhamingju í hamingju, harmi í sælu, skýtur oft upp kollinum í sögunni. Þegar ísól heimsækir nýbakaða móður, sem var óhamingjusamlega gift, sér hún gjörbreytta manneskju, ánægða og hamingjusama móður. Og þá skýtur upp í huga hennar mynd hinnar norrænu móður: Sigrún hafði unnið afrek í kyrþey. Nú komu sigurlaunin: Þessi fallegi og hrausti sonur. Voru ekki allir stærstu sigrar konunnar unnir í kyr- þey? Isól var sem hún sæi yfir aldaraðir — sæi hina norrænu kyrrlátu konu koma út úr myrk- viði forsögunnar með barn í faðmi, bjarta og hrausta, fáláta og trúa. Aldir liðu — umhverfið breyttist, hættir og heimkynni. En hin norræna móðir breyttist ekki. Eins og goðborin vera leið hún gegnum óskapnað og æði, fram til kristni — allt fram á þennan dag. Geislar stöfuðu af björtu hári, svala mannvits og blessun trú- mennsku lagði frá bláum augum. Allt óx — allt blessaðist, hvar sem hún fór. (bls. 233). En ekki er Isól fyrr búin að dásama þannig hlutverk hinnar norrænu móður og komin út úr húsi Sigrúnar, en hún heyrir kvak í lofti og sér tvo svani fljúga yfir (bls. 238). Þannig kem- ur höfundur sífellt togstreitunni til skila, iðu- lega á snilldarlegan hátt. ísól gerir sér grein fyrir því að svanurinn á litla von í baráttunni við hina norrænu móður. Þegar hún horfir á eftir svönunum fljúga burt takast andstæðurnar á í huga hennar: .. . hún elskaði þá af öllu hjarta og allri sál, fann sig í ætt við ástblindar sálir þeirra. En gæti hún fylgt þeim eftir? Það yrðu naumast örlög hennar. Hún var alin upp til þess að dást að hinni norrænu móður, er var nær almáttug í þögn sinni og þreki. Henni mundi hún fylgja, af veikum mætti. Lífið hafði þegar ákvarðað henni veg. Þann veg mundi hún ganga. Aldrei fljúga til hafs eins og þessir sterku svanir, er hún sá hverfa í kvöldljómann — aldrei. (bls. 239, skáletranir mínar.) Eins og sést á þessari tilvitnun er bælingin á góðri leið með að verða fullkomnuð. Isól beyg- ir sig undir það sem hún kallar örlög og ákvörðun Iífsins, að tilheyra hinum þögla hópi norrænna mæðra. Það er athyglisvert að hún skynjar þessi „örlög“ kvenna aldrei sem kúgun eða vísvitaða viðleitni til að halda hlutverkum kvenna og karla aðskildum. Guðrún Bjart- marsdóttir hefur bent á að þannig sé þessu farið í öllum verkum Huldu: Konur Huldu eru hins vegar nánast aldrei kúgaðar af neinum ákveðnum persónum, hvorki foreldrum né eiginmönnum. Þeim er 74
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Mímir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mímir
https://timarit.is/publication/1937

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.