Mímir - 01.07.1987, Qupperneq 80
Passaðu þig, Stína litla, að verða ekki eins og
hún móðir þín. Hún kann ekki að fljúga, þess
vegna vængstýfði hún mig. Vængstýfði . .. (bls.
76).
Kristín sem vissi ekki hvort hún ætti að láta
hugsanir nætur eða daga ráða lætur einnig
vængstýfa sig en hún gerir það með bros á vör;
allar ákvarðanir eru með því marki brenndar
að útiloka aðrar og sama er hvort Kristín velur
út frá því sjónarmiði. Þegar hún velur ástina
hafnar hún um leið frelsinu eins og VII. kafli
bókarinnar sýnir svo vel. Kaflinn gerist inni í
eidhúsi þar sem systurnar Svana og Kristín
sitja. Kristín þykist vera að lesa Hlutskipti
manns og er titillinn táknrænn fyrir hugar-
ástand hennar. Hvert verður hlutskipti hennar?
í eldhúsinu er suðandi fiskifluga sem fer ákaf-
lega í pirrurnar á Kristínu. Flugan hamast í
glugganum og vill komast út. Og myndin af
flugunni sem leitar að útgönguleið fléttast sam-
an við hugsanir stúlkunnar sem einnig er að
leita sér að leið. Að lokum slær Kristín fluguna
með bókinni; flug og hamagang flugunnar má
lesa sem tákn fyrir togstreituna sem Kristín á í
og með því að slá fluguna í stað þess að hleypa
henni út er hún í raun að bæla útþrá sína. Þar
með hefur Kristín valið sér hlutskipti. Inn í
þessa frásögn fléttast hugsanir Kristínar um trú
og um guð biblíunnar sem ekki sé guð kvenna
(bls. 72). Þegar Kristín síðan pakkar niður fyrir
suðurförina syngur hún og hefur „gleymt öllu
um árekstra dags og nætur, að minnsta kosti í
bili“ (bls. 142). Þannig veltur lífið áfram, hver
einstaklingur velur eina braut og verður að láta
aðrar ófarnar.
Sagan sýnir hjónabandið sem haft á frelsi
einstaklingsins en einnig er undirstrikað
hvernig það veitir öryggi og samhygð ef vel
tekst til eins og hjá Petru og Begga og Jóni og
Þórunni. Petra og Beggi hafa þolað saman sætt
og súrt og ýmislegt andstreymi hefur Petra orð-
ið að sætta sig við vegna mistaka hans. Sú
hugsun hvarflar þó ekki að Petru að hún hefði
betur gengið í gegnum lífið án Begga. En í raun
er það ekki hjónaþandið sem bindur fólk held-
ur er eitthvað afl að verki sem manneskjurnar
ráða ekki við en gerir þær háðar öðrum; þetta
afl er ástin sem tekur fram fyrir hendurnar á
skynsemi fólks og áætlunum. Ast Steina til
Svönu, ást Svönu til Gústa, jafnvel ást Oddu til
föður Leifa; ástin stjórnar lífi þessa fólks og
flækir það og fjötrar þótt ekki sé um hjónaband
að ræða.
Konur sögunnar eru með ýmsu móti og á
ýmsum aldri og í fari þeirra eins og annarra
persóna birtist tvíræðni. En konurnar eiga sér
sameiginlega reynslu, þær þekkja allar mis-
ræmi óska manna og veruleikans, vita hversu
litlu einstaklingar ráða í lífi sínu. Þegar Kristín
háir sína innri baráttu sér hún þær fyrir sér
allar sem eina:
En andlit Svönu er í sólglampandi rúðunni,
verður að andliti mömmu, Oddu, Línu, og þær
horfa á hana með þessu samblandi af vorkunn
og samúð, yppta aðeins öxlum, útréttir lófar
sem falla niður, lokast. Þær horfa á hana úr
rúðunni og brosa þessu brosi sem er ekki bros
heldur eitthvað allt annað. Það eru töfrar í
þessum brosum, djöfullegir kvengaldrar sem
laða og ógna í senn, það finnur Kristín, and-
styggileg, sjálfsánægð viska sem hún kærir sig
ekki um,.. . (bls. 76).
Og ímynd allra þessa kvenna, og þeirra
kvenna sem lifðu áður, er kona hússins, vofan.
Þótt húsið verði rifið heldur hún áfram að vera
til eins og áður því eins og hún segir við Gullý:
„Þeir vinna ekki á mér með vélum“ (bls. 148)
og síðan óma í huga Gullýjar endurtekin orð
konunnar: „Ég er alltaf hér“ (bls. 148).
Það er tæplega rétt að tala um andstæður í
Eins og hafið heldur ætti fremur að tala um
hliðstæður eða öllu heldur sveiflur í sögunni.
Líf manna einkennist af sveiflum sem koma
misjafnlega ört en koma eigi að síður, það er
ófrávíkjanlegt. Því líf manna er eins og hafið að
því leyti, það er ýmis kyrrlátt og friðsælt,
óstýrilátt og villt eða ögrandi og seiðandi. En
fyrst og síðast, segir þessi bók okkur, að lífið sé
eins og hafið — margbreytilegt og órætt.
Sigurrós Erlingsdóttir.
80