Mímir - 01.06.1996, Síða 18

Mímir - 01.06.1996, Síða 18
ur með útrétta arma og innyfli skepnunnar flæða útúr kviði hennar. Þá má fyrir neðan manninn greina fugl sem kannski er að búa sig til flugs en til hliðar er nashyrningur (?) á stjái. Það er eitthvað afar einkennilegt við þetta hellismálverk enda er ósamrýmanlegum fyrirbærum blandað saman frá sjónarhóli nútímamanns sem sér fátt sameiginlegt með kynlífi og eyðileggingu. Stelling mannsins minnir á hinn krossfesta en eitt er þó gjörólíkt með þeim; maður þessi hefur reistan getnaðarlim á meðan kynfæri Krists eru alltaf ósýnileg (hafi hann þá nokkur haft). Myndin lýsir því bæði nautn og sársauka, sársaukanautn sem nær yfir losta og andstæðu hans í senn. Mannfuglinn sam- samast helsködduðu dýrinu á stundu sem fæstum þykir kynferðisleg nú á dögum, stundu líkamlegr- ar sundrunar; dauði hans er ægilegur í ímyndun okkar en um leið ærslafenginn og blygðunarlaus. Hellismálverkið í Lascaux er fyrsta sjálfsímynd karlmannsins; þannig hefur hann upplifað tilveru sína löngu áður en siðmenningin óf sig um hvatir hans og tilfinningar. Síðan þá hafa sjálfsímyndir komið og farið. Menn hafa feykst á milli tákn- gerða yfirborðsins, búið til um þær háturnaða heimspeki og djúpsetta list, en vitað með sjálfum sér um hellana hið innra og í djúpum jarðar því öðru hverju hafa þeir þrátt fyrir öfluga varnar- hætti opnast inní list og tungumál. Tilfinningalíf manna hefur á þessum tíma fyllst mótsögnum sem sjaldan er leyst úr á marktækan hátt heldur lifa þær með þeim og verða að öllum jafnaði flóknari en efni standa til. Ástæðan er oft og einatt fólgin í þrýstingi arfhelgra hugmynda um hvað sé eðlilegt í fari manns. Sá sem víkur frá réttri meðalhegðan og opnar hella sína uppá gátt svo hver og einn fái litið myndheim þeirra verður að tákni um hættu- lega ónáttúru sem nauðsynlegt er að byrgja inni í myrkrinu til að óeðlið smiti ekki tilveru hinna heilbrigðu. Það útrýmir öfugeðlinu að sjálfsögðu ekki, það heldur áfram að vera til, en ógninni má kannski gleyma um stundarsakir uppi í dagsljósi yfirborðsins, samfélagi þagnargildanna. Sannleikur hellislistamannsins varð fyrir óra- löngu að andsannleika sem reynt hefur verið að útiloka með margvíslegum ráðum svo sem sjá má af því að lostinn hefur löngum tengst ljótleika, því sem er saurugt, jafnvel glæpsamlegt, því sem til- heyrir frumstæðu mannlífi, spilltri náttúru, sjúk- legum öfgum. Lostinn er að sögn það sem meiðir, nauðgar og myrðir, það sem afmennskar mann- eskjuna, hann er allt það sem okkur ber með réttu að forðast. Hér er samt um einstaklega mannlegt fyrirbæri að ræða því menn hafa þrumað á þrá- reipum frá ómunatíð hverjar sem aðstæður þeirra voru. Afstaða þeirra til eigin ástríðna hefur á hinn bóginn einkennst af skinhelgi og skelfingu, þeir hafa reynt að koma á þær reipum skynsemi og þekkingar, rekið þær niður í rökkurhella sálarlífs- 16
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Mímir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mímir
https://timarit.is/publication/1937

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.