Mímir - 01.06.1996, Síða 72

Mímir - 01.06.1996, Síða 72
VAÁoUp NOHaaavU' ið tröll en uppruni þess orðs, eins og reyndar margra annarra, er mönnum ennþá nokkur ráð- gáta.3 Hvað er hvað? Til skýringar orðinu gefur íslensk orðsifjabók eft- irfarandi orð: jötunn, risi, risakvendi, ófreskja, galdrakind, fjölkynngisvera.4 Við þetta getum við bætt orðum eins og: skessa, þussi eða þurs, berg- búi, flagð og gýgja.5 Þessi orð eru nokkurs konar samheiti yfir orðið tröll, þau fela í sér svipaða merkingu en þó ekki alveg þá sömu. Orðin risi og risakvendi taka t.d. aðeins tillit til annars kynsins en orðið tröll getur falið í sér bæði kyn. Hér er þó tvennt ofar öðru sem vert er að taka eftir. Orðið jötunn er notað sem samheiti yfir tröll og í orðun- um galdrakind og fjölkynngisvera er vísað til ákveðins valds sem tröllin ráða yfir. Þau eru göld- rótt. í Hugtökum og heitum í norrœnni goðafrœði gerir Rudolf Simek nokkra grein fyrir notkun þessara hugtaka.6 Hann bendir á að orðin jötunn, þurs og tröll eigi við um sama fyrirbærið en þau tvö síðastnefndu hafi haft neikvæðari merkingu en hið fyrsta. Sú merking hafi myndast áður en kristni var lögtekin og stafi því ekki eingöngu af andúð kristinna manna á þessum verum. Orðið þurs kemur fyrir í Skírnismálum þar sem það er notað um miskarún sem rist er jötunmeynni Gerði og virðist vera tilvísun í einhvers konar „ósiðleg- ar“ kynlífsathafnir.7 Ennfremur segir Simek: Svo er að sjá sem menn hafi einnig talið ára og púka sem ollu veikindum til þursa og eigi sú hug- mynd rætur sínar að rekja til norrænnar miðalda- hjátrúar þar sem þursar voru einkum álitnir geta valdið konum skaða á líkama og sál.8 Einar Ólafur Sveinsson tekur í sama streng og bendir á að í flestum bókmenntagreinum frá sagn- ritunaröld falli orðin jötunn og tröll saman.9 Þann- ig fer Þór í Austurveg til að berja tröll og úlfurinn, afkvæmi jötnanna sem eltir sólina í Völuspá, er í „trolls hami“. Sama á við í fornaldarsögunum. í Hjálmþéssögu og Ölvis10 eru orðin tröll, jötunn og risi notuð á víxl um eitt og sama fyrirbærið auk þess sem persónum Islendingasagna er stundum líkt við jötna og tröll.11 Einar Ólafur telur sig þó sjá ákveðinn mun milli jötna goðafræðinnar og trölla þjóðsögunnar. Þjóðsögur af tröllum telur hann hafa verið til þegar á sagnritunaröld. Jötnarnir séu stórmenni sem búi í höllum og eigi glæsilegar dætur á meðan tröllin séu á frummannsstiginu, hellisbúar klæddir dýraskinni. Þennan vanda vill Einar leysa með því að gera ráð fyrir sameiginlegri rót sem báðar verur séu sprottnar af. Ef hægt væri að sjá lengra aftur í tímann. Þykir mér líklegt, að bilið milli þessara tveggja laga mundi minnka, þangað til að síðustu kæmi að óaðgreind- um sögum sem hefðu nokkuð af hvorutveggja.12 Þessi munur sem Einar Ólafur dregur fram, milli stórmennis og hellisbúa, er að líkindum aðeins yfirborðsmunur sem getur einfaldlega verið sprottinn af því að ákveðnar tegundir pers- óna hæfa mismunandi bókmenntategundum. Goðsagnir segja frá Ásum sem eru æðstu verur heimsmyndarinnar. Verða þær ekki að eiga sér verðuga andstæðinga sem eru þess megnugir að spegla eiginleika þeirra og undirstrika mátt? Þó finna megi gamansögur innan norrænnar goða- fræði, sem ef til vill draga úr helgi þeirra, þá er svið þeirra ævinlega voldugra en hinna alþýðlegu þjóðsagna. í þjóðsögunum hafa tröllin útlit frum- mannsins og híbýlin hafa breyst úr höll í helli. En það er vegna þess að í þjóðsögunum er tröllum ekki ætlað að spegla hin helgu goð heldur eru það venjulegir menn eins og kotbændur, prestar og vinnumenn sem kljást við þau. 70
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Mímir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mímir
https://timarit.is/publication/1937

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.