Mímir - 01.06.2005, Blaðsíða 10
Minningarorð
Matthías Viðar Sæmundsson 1954-2004
Matthías Viðar Sæmundsson, dósent í íslenskum
bókmenntum, lést 3. febrúar 2004 eftir hetjulega
baráttu við ólæknandi sjúkdóm, tæplega fimmtugur
að aldri. Hann var fæddur 23. júní 1954, sonur
Guðrúnar Árnýjar Guðmundsdóttur húsmóður
og Sæmundar Bergmanns Elimundarsonar
sjúkraliða og kaupmanns. Matthías ólst upp
á Selfossi hjá móðursystur sinni, Jóhönnu
Guðmundsdóttur matráðskonu og eiginmanni
hennar, Sigurði Sigurðssyni verkamanni. Að lokinni
grunnskólagöngu árið 1970 hélt hann til Reykjavíkur
og hóf nám í Menntaskólanum við Hamrahlíð. Síðar
sagði hann svo frá í skemmtilegri sjálfslýsingu sem
enn er aðgengileg á vefnum (http://www.hi.is/
-mattsam/inng.htm) að meiri tími hefði farið í það
hjá sér að stúdera maóisma og leika á trompet en
lesa skólabækurnar og mæta í tíma. Hann lauk þó
náminu á fjórum árum eins og ráð var fyrir gert. Að
sögn hans sjálfs tóku nú við „rótlausir áratugir, ég
gifti mig einhvernveginn, kenndi krökkum í Ólafsvík
einn vetur, skildi, flæmdist síðan í Háskólann þar
sem ég lauk prófum í almennri bókmenntafræði
og íslenzkum bókmenntum árið 1980, jafnframt
því sem ég stúdéraði um hríð í Montpellier. Eftir
það tóku við kennsla í fjölbrautaskólum, trúskipti,
greina- og bókaskrif, vinna við ýmsa fjölmiðla, dvöl
í Rómarborg, störf lektors og dósents í íslenskum
bókmenntum, sambönd og rannsóknarferðir, uns
heill aldarfjórðungur var liðinn eins og hendi væri
veifað."
Matthías var ráðinn lektor við íslenskuskor árið
1985 og varð dósent árið 1991. Hann var án efa
einn áhrifamesti og frumlegasti túlkandi okkar á
fræðasviði íslenskra bókmennta síðari alda. Afköst
hans og hugmyndaauðgi voru með ólíkindum og
eftir hann liggja yfirgripsmikil rit um bókmenntir
og hugarheim íslendinga allt frá lærdómsöld og
fram á okkar daga. Framan af ritaði hann einkum
um módernisma og sagnagerð 19. og 20. aldar, en
síðar helgaði hann sig að mestu 18. aldarfræðum,
auk rannsókna á galdraöldinni. Fyrsta rit hans,
Mynd nútímamannsins: Um tilvistarleg viðhorf
ísögum Gunnars Gunnarssonar, kom út 1982.
Fjórum árum síðar birtist rit hans Ást og útlegð:
Form og hugmyndafræði ííslenskri sagnagerð
1850-1920. Greinasafnið Myndir á sandi: Greinar
um bókmenntir og menningarástand kom út 1991,
Galdrar á íslandi: íslensk galdrabók ári síðar og
þá vöktu kaflar Matthíasar í 3. bindi íslenskrar
bókmenntasögu 1996 verðskuldaða athygli.
Hann breytti um margt sýn manna á íslenska
bókmenntasögu og dró fram þætti sem legið höfðu
í láginni, ekki síst hið villta, öfgafulla og órökræna
sem hefur verið snar þáttur í mannlegri tilveru á
öllum tímum, þó að þeir sem trúa á skynsemina
eigi stundum erfitt með að viðurkenna það. Helsta
viðfangsefni hans síðustu misserin var ritun
ævisögu Héðins Valdimarssonar og kom fyrsta
bindi hennar, Héðinn, Bríet, Valdimarog Laufey:
Fjölskylda og samtíð Héðins Valdimarssonar, út
að honum látnum haustið 2004 og er frumlegt og
óvenjulegt verk eins og margt sem frá Matthíasi
kom. Er þá ótalinn fjöldi greina og bóka sem eftir
hann liggur, auk þess sem hann sá um útgáfur á
bókmenntatextum frá ýmsum öldum íslenskrar
bókmenntasögu, m.a. Ljóðmælum Kristjáns
Jónssonar Fjallaskálds (1986) og Píslarsögu séra
Jóns Magnússonar (2001) sem hann fylgdi úr hlaði
með afbragðsgóðum ritgerðum um höfundana og
hugarheim þeirra.
Matthías lét til sín taka á fleiri sviðum og vann t.d.
ötullega að netvæðingu fræðanna á síðari árum.
Hann var stofnandi vefritsins Kistunnar og hafði lag
á því að höfða til almennings með skrifum sínum,
enda hafði hann lifandi áhuga á öllum sköpuðum
hlutum. Fræðunum miðlaði hann af ástríðu og
sannfæringarkrafti hins máttuga töframeistara og
margir yngri fræðimenn sóttu innblástur til hans.
Hann varð þekktur langt út fyrir raðir háskólamanna
og umtalaður og dáður. Ekki spillti það fyrir að
Matthías var í einu orði sagt glæsimenni - hár og
grannur, dökkur á brún og brá, vel eygður og röddin
hljómfögur og djúp. Hann klæddist iðulega svörtu
og bar oft með sér byronskan uppreisnaranda,
þó að hann væri jafnan háttvís og einstaklega
hlýr við nánari viðkynningu. Nokkrir vinir og
8