Mímir - 01.06.2005, Side 21

Mímir - 01.06.2005, Side 21
sem hefðu kynferðislega löngun til barna. Eins og áratug fyrr var samasemmerki sett á milli Megasar og sögupersóna hans, hann var sjálfur afgreiddur sem pervert og barnaníðingur rétt eins og þegar almannarómur þóttist vita allt um sukklíferni hans á áttunda áratugnum þegar útigangsmennirnir voru allsráðandi í textum hans. Vilji menn átta sig á hvaða tökum Megas tekur viðfangsefni sín er kjörið að skoða sjónarhorn í textunum, en Skafti Halldórsson gerði það að viðfangsefni sínu í tímaritsgrein. Þar segir hann Ijóðheim Megasar hæðinn og oft kaldan. Þjóðfélagssýn Megasar birtist í því að í kvæðum hans er sjónarhornið hjá þeim al-lægst settu. Oftar en ekki úr afkimum samfélagsins og sögumenn hans eru, með orðum Skafta: „oft persónur sem á einhvern hátt hafa gefist upp við að falla inn í lífsmynstur auðvaldskerfisins og hrakist út í útjaðar samfélagsins." (Skafti Halldórsson, 1978). Sjónarhorn í bókmenntaverkum varðar „þá stöðu sem höfundur markar sér [...], hvaðan hann horfir á atburði og persónur og með hvaða hætti lesanda er veittur aðgangur að hugarheimi verksins.“ (Örnólfur Thorsson, 1983). En þar eð það er einatt önnur persóna en sögumaður sem horfir á atburði og persónur getur stundum verið gott að greina á milli hans og sjónbeinanda, þess sem beinir sjónum sínum að einhverju. í fyrstu persónu frásögn er sá sem mælir, sögumaður, einatt sjónbeinandi. Ef frásögnin er í endurliti þar sem sögumaður lítur yfir farinn veg og segir frá sjálfum sér yngri er sjónbeinandinn þó persónan eins og hún var þegar atburðirnir gerðust. í þriðju persónu frásögnum kann svo vitundarmiðjan að vera sjónbeinandinn meðan sá sem talar í þriðju persónu er sögumaður (Þorleifur Hauksson, 1994:131-5). Staða sögumanns gagnvart persónum, atburðum og þeim heimi sem textinn miðlar tengist því sem kallað hefur verið sjónarmið. Það varðar það hvernig frásögninni er miðlað með tilliti til einstakra persóna og takmarkast af nútíð persónanna, á hvað er horft, hjá hvaða persónu höfundur tekur sér stöðu auk þess sem það vísar til þess gildismats eða lífsskoðunar sem frásögnin miðlar til lesenda (Þorleifur Hauksson, 1994:135-42). í textum Megasar verðum við þó að hafa þann fyrirvara á að hann bindur persónur sínar ekki alltaf við tíma heldur renna oft aldirnar saman í eitt. Reglan hjá Megasi er að sögumaður/ Ijóðmælandi er sjónbeinandi og tilheyrir illa liðnum þjóðfélagshópum. Þó eru undantekningar þar á, til dæmis textinn um Mættu, ástandsstelpuna. Textinn er unninn upp úr grein í Öldinni okkar: „...Mætta segir, að fundum sínum og fyrsta hermannsins, sem mök hafði við hana, hafi borið saman á þann hátt, að er hún var á leið heim til sín kl. 22, hitti hún hermann, ertók hana tali, og fór með hana upp í herbergi það, er hún bjó í. Kveðst hún hafa látið að vilja hermannsins, er vildi greiða henni 30 krónur, en hún sagðist ekki hafa viljað taka við peningum, ekki fundizt það þess vert. Eftir þetta var Mætta alltaf öðru hvoru með enskum hermönnum og leyfði þeim að hafa mök við sig, síðast í gærkvöld á gistihúsinu X ... Mætta hefur aldrei tekið peninga af þeim hermönnum, sem hún hefur haft mök við“ (Öldin okkar 1931-50, 1975:174). Mælandi kvæðisins talar í fyrstu persónu. Það er endurminningafrásögn og mælandi rifjar upp tilfinninguna sem fór um hann þegar hann las um Mættu í barnæsku. Sjónbeinandi kvæðisins er því ungur drengur um miðja 20. öldina. í augum þess sem segir frá er Mætta enginn vandræðagripur.8 Textinn er nokkurs konar málsvörn Megasar fyrir kynhegðun sem fordæmd er af samfélaginu og helst má ekki fjalla um opinberlega nema til hneykslunar. íslensk yfirvöld voru fremur afdráttarlaus í fordæmingu sinni á þeim stúlkum sem voru í tygjum við setuliðsmenn. Textinn er sambland glettni og dauðans alvöru, hann er hylling til hinnar lauslátu smádísar (Árni Óskarsson, 1998). Mætta er Embludóttirin sem áttaði sig á því til hvers hún var fyrst og síðast gerð, í rauninni ekki nein sérstök persóna heldur hugmynd, óháð tíma og rúmi. Ljóðmælandi rifjar upp hvernig hann leit á stúlkuna sem ungur drengur sem sá ástandsstelpuna á allt annan hátt en hinir fullorðnu. Á meðan hinir fullorðnu áfelldust hana, dáðist hann að henni og hann þakkar Mættu fyrir að miðla sér þeim fiðringi sem fór eins og notalegur rafstraumur um barnskropp hans forðum. Textaáhrifin verða öfug, greinin sem textinn er unninn upp úr er ekki áhrifavaldur, frekar textinn sjálfur sem varpar gagnrýnu Ijósi á þann þankagang sem ól t.d. af sér „Ástandsnefndina11.9 Texti 8. Um Mættu má !esa ( bók Hrafns Jökulssonar og Bjama Guðmarssonar Ástandinu. (16. kafla bókarinnar sem ber heitið „Mætta kveðst hafa látið að vilja hermannsins“ er skýrslan birt í heild sinni og í stuttu máli rakið hvað varð um stelpuna sem kölluð var Mætta. 9 Vilmundur Jónsson landlæknir ritaði dómsmálaráðherra bréf, dagsett 11. júlí (1941) sem fjallaði um „saurlifnað I Reykjavfk og stúlkubörn á glapstigum“. í bréfinu segir að athuganir sem lögreglan I Reykjavlk lét framkvæma hafi „flett ofan af svo geigvænlegum staðreyndum um þessi mál, að ekki má kyrrt vera. Er það sök fyrir sig, að hér er nú vitað um kvenfólk í tuga tali á allra lægsta þrepi skækjulifnaðar... Hitt er viðbjóðslegast, ef niðurstöður lögreglunnar um það eru á rökum reistar, að ólifnaður 19
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148

x

Mímir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mímir
https://timarit.is/publication/1937

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.