Mímir - 01.06.2005, Side 38
Dæmigerð 30 feta skemmtiskúta frá seinni hluta 20. aldar, búin
einu mastri.
Ágætar lýsingar á gerð og búnaði gömlu
seglbátanna er að finna í endurminningum
Erlends Björnssonar frá Breiðabólsstöðum (Jón
Thorarensen 1945), í lýsingu síra Þórðar Ólafssonar
(1936) á fiskveiðum Reykvíkinga á nítjándu öld og í
öðru bindi ritverks Lúðvíks Kristjánssonar (1982) um
íslenska sjávarhætti.
2.2 Orð og hugtök
Ætla má að við lok skútualdar hafi orð og hugtök,
sem þróast höfðu í málinu allt frá landnámi og
sérstaklega tengdust seglbátunum, smám saman
horfið úr orðaforða landsmanna. Mennirnir sem
síðastir stunduðu seglbátasiglingar dóu og hin nýja
kynslóð skútumanna tengist þeim ekki með beinum
hætti. Orðaforðinn fluttist því ekki beint á milli
kynslóða heldur hafa nútímaskútumenn þurft að
koma sér honum upp með öðrum hætti.
Athyglisvert er að skoða orðaforða skútusiglinga-
manna nú á dögum og bera hann saman við þau
orð sem skútukarlarnir notuðu á nítjándu öldinni
og skoða líka orðtökin og hvort menn leggja sömu
merkingu í orðin þá og nú. Einnig er forvitnilegt
að líta á hvað hefur gerst í þeim tilvikum þar sem
nýr búnaður, sem ekki á sér hliðstæðu í gömlu
skútunum, kallar á nýtt íslenskt heiti.
2.3 Orðaforði fyrr og nú
í þessari ritgerð eru skoðuð um 50 orð og orðtök
sem eiga sérstaklega við um seglabúnað,
seglameðferð og siglingu með seglum. Sum eru
algeng í munni skútufólks nú á dögum, önnur
óalgeng en skiljast samt vel og svo eru orð og
orðtök sem ekki skiljast lengur þrátt fyrir að þau
eigi vel við enn þann dag í dag.
Við val orðanna var ákveðið að sneiða hjá orðum
sem almennt eiga við um báta, sjóferðabúnað eða
siglingar enda beinist athugunin sérstaklega að
orðum sem ætla má að hafi fallið út úr orðaforða
íslendinga við lok skútualdar. Ekki er heldur fjallað
um orð sem ekki eiga lengur við um báta nú á
dögum. Þau orð sem urðu fyrir valinu tengjast
annars vegar reiðanum og seglunum og hins vegar
verklagi við meðferð segla á siglingu.
2.3.1 Landnámsmennirnir
Mörg orðanna og orðtakanna má rekja allt aftur
til fyrstu alda íslandsbyggðar, eins og m.a. kemur
fram í fornmálsorðabókum (Cleasby & Vigfússon
1957, hér eftir skammstafað CV, Fritzner 1954).
Þetta eru nafnorð eins og reiði, sigla, rá og skaut
og sagnir eins og beita, rifa og hefla. Langskip og
knerrir landnámsmanna voru seglskip búin rá og
reiða og norrænir menn voru jafnan taldir vera í
36