Mímir - 01.06.2005, Page 75

Mímir - 01.06.2005, Page 75
fyrsta sinn í sumarbúðir. Fjölskyldumeðlimirnir hafa einnig hæfileika til að hlæja að sjálfum sér. Amma dreki sem er föðuramma strákanna, er ekkja eftir afa þeirra sem var stofnandi mjólkurbús á Suðurlandi. í einni heimsókninni þangað þarsem hún gefur starfsmönnunum mynd af afanum halda þeir henni heilmikla veislu og gefa ömmu dreka vei af kaffi og koníaki: [...]Svei mér þá, sagði amma hreykin. Ég var bara orðin vei hífuð. Strákarnir störðu á ömmu. Ég ætla bara að vona að þú hafir ekki sest upp í jeppann og ekið í bæinn, sagði pabbi við ömmu. Nei, ég gisti bara hjá honum Sigfúsi á Stórahvoli. Mér þykir þú vera farin að lifa lífinu, sagði pabbi kíminn. Fyrst drekkurður þig fulla og svo sefurðu hjá honum Sigfúsi á Stórahvoii. Amma dreki skellihló. Það er betra seint en aldrei, sagði pabbi við ömmu. Var hann ekki alltaf að biðja þín, hér á fyrri árum? O, það held ég, sagði amma hress. En hann Sigfús á Stórahvoli hefði nú lítið haft að gera með mig. Þetta er svoddan dauðans rola.[...]46 Amma getur bæði gert grín að sjálfri sér og vonbiðlinum sem hefur ekkert i hana að segja. Strákarnir eru þeir einu sem ekkert skilja í gríninu enda ennþá of ungir og saklausir fyrir svona neðanbeltisspaug. Það virðist einna algengast í íslenskum barnabókum þar sem kímni gætir, að hún snúist á einn eða annan hátt um misskiining eða einhvers konar misræmi sem eigi sér rætur í tungumálinu. Kannski má tala um hefð í þessu sambandi, því þar sem kímnin kemur fram er mjög oft um að ræða misskilning barna á orðum og orðasamböndum, því sem þau iesa og það sem þau heyra. í slíkum tilfellum eru þau sjaldnast meðvituð um að það sem þau segi eða geri sé skoplegt á nokkurn hátt eins og má sjá af dæmunum hér að framan, bæði úr bókunum um Gvend Jóns og Jón Odd og Jón Bjarna. í bókum Guðrúnar birtist sakleysi barnanna og hrekkleysi einna helst í þessum dæmum og þau virðast eilítið upphafin í Ijósi þessa sakleysis. Öðru máli gegnir um bækurnar sem fjallað verður um í næsta kafla, þar sem kímnin birtist á annan hátt en í barnabókum fyrri ára. Um Elías Árið 1983 gáfu Auður Haralds og Valdís Óskarsdóttir út fyrstu Elíasarbókina sem bar einfaldlega nafnið Elías. Bókin sló í gegn og í 46 Guðrún Helgadóttir 1980, bls. 34. kjölfarið fylgdu fjórar aðrar sem Auður skrifað ein og Brian Pilkington myndskreytti. Bækurnar fjalla um drenginn Elías sem býr einn með foreldrum sínum sem eru brúarsmiður og tannsmiður. í byrjun fyrstu bókarinnar eru þau að flytja til Kanada til tveggja ára, svo að pabbinn fái vinnu við brúarsmíði þar sem ekki er slegist um starfskrafta hans á íslandi. Elías á tvær ömmusystur. Önnur þeirra, Hilda er vænsta kona og róleg sama hvað á dynur. Hin systirin, hún Magga móða (Magga móðursystir mömmu) er vægast sagt erfið í samskiptum og ósátt við að missa drenginn úr landi. Fyrsta bókin fjallar að mestu leyti um undirbúning flutninganna og erfiðleikana við að fá Möggu til að sætta sig við orðinn hlut. í annarri bókinni er fjölskyldan komin til Kanada eftir talsverðar hrakningar á flugvöllum og í háloftunum. Elías notar sumarið til að kynnast umhverfinu. Hann eignast indjánavininn Jón og byrjar í skóla um haustið. Magga móða kemur í heimsókn og fer ekki aftur heim því hún hefur kynnst Misja, rússneskum nágranna fjölskyldunnar sem hún trúlofast svo. Þriðja bókin fjallar að mestu leyti um gestapláguna mikiu, þegar fjölskyldan fær íslenska næturgesti til sín í nokkra daga sem þau þekkja ekkert. Mæðginin reynast vera hin erfiðustu, frek, leiðinleg og dónaleg og á endanum er það Elías sem kemur þeim í burtu með hjálp kanadískra skriðdýra. Seinni hlutinn fjaliar um ævintýralega útilegu sem endar á því að Misja eiginmaður Möggu drekkur aðeins of mikinn vodka og tekur skógarbjörn heim með sér við litlar vinsældir. Björninn stingur þó fljótlega af til skógar. f fjórðu bókinni er pabbi Elíasar sendur til Sikileyjar til að smíða þar brú. Þrátt fyrir kröftug mótmæli viðstaddra ákveða Magga og Misja að koma með í þessa mánuði sem smíðin á að taka og á endanum fer öll fjölskyldan. Á Sikiley á Magga óvart þátt í því að handsama bankaræningja og Misja villir á sér heimildir sem harmonikkuleikari keisara sem var uppi áður en Misja sjálfur fæddist. Ekkert verður af brúarsmíðinni í bili og í leiðindum sínum taka foreldrar Elíasar upp á því að fjölga mannkyninu frekar, Elíasi til hrellingar. Hann treystir þeim alls ekki fyrir öðru barni, minnugur eigin uppeldis og ákveður að taka málin í sínar hendur. í fimmtu bókinni eru þau komin aftur heim til íslands og Elías eyðir miklum tíma í að hafa áhyggjur af mömmu sinni sem honum finnst sofa of mikið og borða of lítið til að litli bróðirinn geti mögulega þrifist í bumbunni. Hann skiptir því á gömlum ísskáp og námskeiði í meðferð ungbarna hjá nágrannakonunni til að geta haft umsjón með uppeldi bróður síns sem svo reynist vera systir þegar til kemur. Síðasta bókin endar á fæðingu litlu systur og uppgötvun Elíasar á því að hann sé orðinn stór. Hann heitir því þó jafnframt að týna aldrei barninu í sjálfum sér. 73
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148

x

Mímir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Mímir
https://timarit.is/publication/1937

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.