Mímir - 01.06.2005, Side 76

Mímir - 01.06.2005, Side 76
Elíasarbækurnar eru skrifaðar í fyrstu persónu og sjónarhornið er að öllu leyti barnsins. Sögusviðið er heimilið og nánasta umhverfi, bæði á Islandi og í nýja landinu Kanada. Aðalpersónur eru Elías og foreldrar hans, þau Elva og Guðmundur. Aukapersónur eru Magga og Hildur, Misja, Simbi vinur Elíasar á íslandi og Jón vinur hans í Kanada. Bækurnar eru byggðar upp af litlum atvikum úr daglega lífinu sem gerast í tímaröð. Sögurnar eru samtímaleg skáldverk og prakkarasögur ef taka skal mið af öllum uppátækjum Elíasar. Sögutíma má þekkja af ýmsum smáatriðum, eins og til dæmis teikningunum, þar sem fatnaður stráksins, umhverfi, tómstundir, heimilistæki fjölskyldunnar gefa vísbendingar um tímann. Atvinna foreldranna er nútímaleg, pabbinn er brúarverkfræðingur og mamman tannsmiður og mjög meðvituð um rétta tannhirðu. Einnig er minnst á Kermit frosk í Prúðuleikurunum47 og barnaþáttinn Húsið á Sléttunni48 í bókinni Elías á fullri ferð, sem setur bækurnar nokkuð vel niður í tíma. Atburðarásin flýtur áfram á gamansemi og bröndurum sem hverfast margir hverjir um Möggu frænku og hversu erfið hún er, en líka um foreldrana sem Elías hefur gott samband við en finnst samt að hann þurfi að hafa auga með svo þau fari sér ekki að voða. Elías er lítill fullorðinn, það er hann sem bjargar málunum þegar foreldrar hans hafa komið sér í klípu og hann leiðir þeim oft fyrir sjónir hvernig best sé að standa að hlutunum. Hann er líka eins konar móralskur vörður þeirra sem minnir þau á að hreinskilni og heilindi borga sig þó svo það geti kostað tímabundin tilfinningauppgjör í fjölskyldunni. Gott dæmi um það er þegar Magga gerist of ráðrík og hjálpsöm við flutningana til Kanada en enginn þorir að ræða það hreinskilnislega við hana nema barnið Elías.49 Bækurnar eru hressilegar og skemmtilegar en kímni og orðheppni Elíasar er samt fremur fullorðinsleg fyrir hans aldur og reyndar má kannast við ýmis höfundareinkenni þegar kemur að gamanseminni og kaldhæðninni. Bækurnar um Elías eru ólíkt eldri bókunum sem hér er fjallað um, farsakenndar og líkt og samfelldur brandari frá upphafi til enda. Þær líkjast mjög að því leyti öðrum verkum Auðar Haralds sem þó eru ætluð fullorðnum, með einni undantekningu sem er unglingasagan Baneitrað samband á Njálsgötunni (1985). Sú þótti nýjung í unglingabókaútgáfu á sínum tíma og þá helst vegna stíls hennar. Kímnin sem einna helst snýst um Möggu móðu og foreldra Elíasar, er persónulegri en oft áður í íslenskum barnabókum. Magga er vægast sagt erfið, en á þann hátt að hún kæfir fjölskyldu sína í umhyggju. Hún er talsvert ýkt erkitýpa af 47 Auður Haralds 1985, bls. 7. 48 Auður Haralds 1985, bls. 27. 49 Auður Haralds 1983, bls. 73-75. 74 íslenskum eldri borgara, er dauðhrædd við útlandið sem Elías og foreldrar hans ætla að flytja til og sannfærð um að þau séu dauðadæmd fórnarlömb erlendra glæpamanna. Allt er alvont í útlandinu og ómögulegt að nokkrum geti liðið sæmilega þar nema að taka með sér íslenskt góðgæti, fánastöng og gærur. Sögur Möggu af vondu útlöndunum verða æ rosalegri eftir því sem nær dregur flutningunum: „Það er sko ekkert betra í útlöndum. Ég veit um konu sem bjó rétt hjá Kanada. Hún sagði sjálf að það væri svo kalt þar að ef hún færi út og drægi andann þá frysu í henni lungun." „Hélt konan þá niðri í sér andanum þegar hún fór út?“ spurði ég. „Hún fór ekkert út,“ sagði Magga. „Hvernig fékk hún að borða?“ spurði ég. „Hver keypti í rnatinn?" Magga herti prjónið og þóttist vera að telja. Ég vissi að hún var að hugsa um að segja að konan hefði ekkert borðað. „Hún borðaði ekkert allan veturinn," sagði Magga.50 Foreldrar Elíasar eiga það stundum til að vera viðutan og gleymin. Helsta áhyggjuefni Elíasar er að þegar nýja systkinið fæðist muni foreldrar hans endalaust vera að gleyma því hér og þar og er sannfærður um að þrátt fyrir alla galla Möggu hafi hún eflaust bjargað lífi hans sjálfs oft á dag: [...]Hún hefur hringt og spurt: „Hafið þið gefið Elíasi litla að borða?“ „Elías?“ hefur mamma þá svarað. „Hvaða Elíasi?“ „Blessuðu litlu barninu ykkar!“ hefur Magga ólmast. „Ó, því!“ hefur mamma þá hrópað. „Heyrðu, Guðmundur, ætli þessi hávaði í svefnherberginu sé í honum Elíasi, þú manst, þessum litla með bleyjuna sem við erum alltaf að hitta hérna?“[...]51 Kímnin í bókunum um Elías snýst að miklu leyti um Möggu móðu og viðbrögð hennar við öðru fólki. Magga er sveitaleg íslensk ömmusystir Elíasar og margt af gamanseminni snýst um hvernig hennar hugsunarháttur er öðruvísi en annarra sem leiðir gjarnan til misskilnings og árekstra. Elías og foreldrar hans eru að flestu leyti sammála í viðbrögðum sínum við Möggu og því hversu erfið hún er. Þess vegna eru allar umvandanir um að sýna henni þolinmæði hálf máttlausar. Skopið sem hverfist um Möggu verður því hálf eineltislegt á köflum, þó svo hún sjálf virðist ekki vita af því, er það fremur lítillækkandi og Magga er alltaf auðvelt skotmark. Þegar Magga ákveður að koma í 50 Auður Haralds 1983, bls. 40-41. 51 Auður Haralds 1987, bls. 53.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148

x

Mímir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mímir
https://timarit.is/publication/1937

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.