Mímir - 01.06.2005, Page 77

Mímir - 01.06.2005, Page 77
heimsókn til Kanada og fer ekki aftur heim iíst Elíasi ekki á blikuna. Honum líst heldur ekki á blikuna þegar hún fer allt í einu að haga sér mjög undarlega og mamma heldur því fram að hún sé veik. Eiías leitar ráða hjá mömmu Jóns vinar síns og lýsir sjúkdómseinkennunum sem felast aðallega í því að Magga virðist ekki lengur hafa krafta til að rífast og skammast yfir smámunum: Mamma Jóns fór að skellihlæja. Mér fannst þetta ekki fyndið. „Elías minn,“ sagði hún og lagði höndina á höfuðið á mér, „veistu hvað ég held að sé að henni Möggu?“ „Nei, hvað? Er það banvænt?" spurði ég. „Neineinei, það er meira að segja mjög hollt og hressandi," sagði mamma Jóns og brosti. „Ég held að hún sé ástfangin." „Hún Magga skass? Aldrei!" „Ég held það nú samt. Spurðu bara mömmu þína, það er örugglega það sem hún á við þegar hún segir að Magga sé veik.“ Alla leiðina heim tautaði ég: „Magga skass ástfangin. Magga gribba. Magga norn. Magga grýla ástfangin." Nei, það gat ekki verið.52 í þessu og svipuðum dæmum kemur helst í Ijós lítillækkandi kímni í bókunum. Magga er svo mikil gribba að Elías trúir ekki að hún geti orðið skotin í honum Misja. Þrátt fyrir það er það hann sem ver hana þegar foreldrar hans sýna álíka barnaleg viðbrögð og hann sjálfur áður. Elías er lítill fullorðinn og hefur oftast þroska til að skoða málin frá fleiri hliðum. Þó eiga bæði hann og foreldrar hans til að sýna mikinn hroka og yfiriæti gagnvart Möggu og öðrum, sérstaklega pabbinn sem er ekkert alltaf að passa sig á því hvernig hann talar um aðra fyrir framan Elías. Viðhorf Elíasar eru því kannski ekki bara hans heldur litast einnig af því sem fullorðnir segja í kringum hann. Nágrannarnir geta líka verið aðhlátursefni en yfirleitt er grínið meinlaust. Eftir eitt verslunaræði pabba Elíasar þarf Elías að hlaupa til allra í blokkinni því að pabbi hafði gleymt því að eini ísskápurinn þeirra hafði verið seldur áður en þau fluttu til Kanada og í íbúðinni var aðeins sá sem leigendurnir höfðu skilið eftir og var nógu lítill til að komast fyrir í meðalvasa. Elías hendist út um alla blokk og endar á að fara [...] með pokann í fóstur til frú Emelíu á fimmtu hæðinni. Hún hvíslaði að mér að hún skyldi fela hann vandlega fyrir manninum sínum. Emelía lætur alltaf eins og maðurinn hennar sé stórhættulegur. Samt eru kominn minnst tíu ársíðan hann bakaði pönnukökurnar fyrir skátamótið. Og það var varla honum að kenna að hann ruglaðist pínulítið og stillti þvottavélina á suðu, þegar hann hrærði pönnukökudeigið í 52 Auður Haralds 1985, bls. 99-100. henni. Og deigið bakaðist allt í grjótharða köku innan í þvottavélinni og þau urðu að henda henni. Emelía er voðalega langrækin.[...]53 Hér er ekki efast um réttmæti þess að pönnukökudeig sé hrært í þvottavélum, aðeins að hitastigið hafi ekki verið heppilegt! Uppátæki Elíasar leiða aldrei til refsingar foreldranna. Stundum bjargar hann þeim og geðheilsu þeirra jafnvel þó svo að aðferðir hans geti verið umdeilanlegar. Elías er alltaf kurteis og kemur vel fyrir, en líkt og í sögunum um Jón Odd og Jón Bjarna þar sem þeir verða fyrir árásum afgreiðslumanns í leikfangabúð, þarf hann stundum að takast á við fullorðið fólk sem sýnir honum dónaskap og yfirgang. Elías missir samt aldrei andlitið og sýnir fyllstu kurteisi á móti, en lætur vanþóknun sína í Ijós í kaldhæðnum athugasemdum, þó svo að meiningin komist ekki alltaf til skila. Stundum þarf þó að ganga skrefinu lengra. Þegar þau fá ókunna næturgesti frá íslandi reynir heldur betur á þolinmæðina þar sem fjölskyldan sýnir ofurmannlegan siðferðisstyrk í viðureigninni við gestina sem eru hreinlega að gera þau brjáluð með frekju og tilætlunarsemi. Engin leið virðist að losna við þau, ekki síst vegna þess að foreldrar Elíasar kunna ekki við að segja konunni meiningu sína og að lokum verður Elías að taka til sinna ráða því geðheilsa fjölskyldunnar er í húfi: [.. ,]Mér fannst ég bíða í marga daga, en loks heyrði ég í henni. Fyrst heyrðist bara ómurinn af þessu venjulega nöldri í henni, en svo gargaði hún. Síðan hætti hún að garga til að geta öskrað. Alveg gasalega hraust kona, hún Guðlaug, þetta voru glæsileg öskur. Þegar ég heyrði að mamma og pabbi voru vöknuð við lætin í henni, fór ég fram. [...] „Hvað gengur nú á fyrir þessari konu?“ urraði pabbi. „Ætli það sé ekki padda inni í stofunni, þau eru eitthvað voðalega stressuð yfir pöddum," sagði ég. Pabbi kipptist til. „Þú hefur þó ekki sett pöddur inn til þeirra, Elías?“ „Ég? Mér hefði sko aldrei dottið í hug að setja pöddur inn til þeirra," svaraði ég. Og það var alveg satt. Pöddur eru svo litlar. Það gat allt eins verið að hún hefði ekki komið auga á nokkrar pínulitlar pöddur.j...]54 Skriðdýrin reyndust vera 18 saklausir snákar, sem Guðlaug kom svo sannarlega auga á en sýndi samt ekki fararsnið á sér fyrr en gefið var í skyn að þeir væru ætlaðir í matinn næsta dag. Foreldrum Elíasar þótti aðferðin fullgróf en höfðu þó kímnigáfu fyrir atvikinu eftir á, hlógu eins og vitlaus að Guðlaugu 53 Auður Haralds 1987, bls. 49-50. 54 Auður Haralds 1985, bls. 62. 75
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148

x

Mímir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Mímir
https://timarit.is/publication/1937

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.