Mímir - 01.06.2005, Page 85

Mímir - 01.06.2005, Page 85
helstu hugmynda í lexíkalskri hljóðkerfisfræði (LH) eru eftirfarandi (sbr. Þorstein G. Indriðason 1994, bls. 66-67): (13) I LH er gert ráð fyrir því að hljóðkerfisfræðin hafi aðgang að öllum hlutum málfræðinnar, og horfið erfrá hefðbundinni aðgreiningu málfræðihlutanna. Málfræðin skiptist þess í stað í orðasafn og það sem utan þess er (setningahluta o.fl.), en sú skipting endurspeglar þá staðreynd að orðhlutum er raðað saman til þess að mynda orð í orðasafni og orðum er raðað saman til þess að mynda setningar utan orðasafnsins [...] í LH er enn fremur gert ráð fyrir því að orðasafnið sé lagskipt og í hverju lagi verki orðhluta- og hljóðkerfisreglur. Virkni þeirra er síðan stjórnað af ákveðnum skilyrðum sem í gildi eru þar [...] virkni hljóðkerfisreglna er lítil í efri lögum orðasafnsins (nær setningarhluta) en eykst eftir því sem neðar kemur í orðasafnið (fjær setningarhluta). Þegar [virt] (virkt) verður [virkt] má væntanlega líta svo á að orðið virkur sé fært á milli laga í orðasafninu eða að beygingarendingunni sé bætt við á öðru stigi en venjulega. Hér er samspil hljóðkerfis og orðhlutakerfis orðið greiðara og gagnvirkara en í upphaflegu kenningunum og það rímar að vissu leyti betur við þau dæmi sem hér hafa verið til athugunar. Engu að síður er á huldu hvað knýr af stað tilfæringar af þessu tagi. Einnig hefur verið gagnrýnd sú almenna krafa innan LH að hljóðkerfisleg orðasafnsbinding („lexíkalísering") sé ákvörðuð á morfólógískum stigum í orðasafninu (sbr. Kristján Árnason 1992). Röksemd gegn því er sú viðtekna skoðun að orðasafnið hýsi fleiri þætti en orðhlutalegar upplýsingar (orðasambönd geta t.d. verið lexíkalíseruð) og þess vegna séu „morphologization" og orðasafnsbinding ekki endilega það sama. Kristján bendir á að með því að setja samasemmerki þarna á milli séu menn t.d. að segja að beyging eins og í tölu (u-hljóðvarp) sé „lexíkalíseraðri" en t.a.m. samsetning á borð við framburður (ekki u-hljóðvarp) en merkingarlega virðist hið síðarnefnda einmitt vera lexíkalíseraðra. Kristján telur því að hljóðkerfisfræðin sé ekki lexíkalíseruð í þessum skilningi heldur á þann hátt að í orðasafninu séu geymdar reglur um hljóðgerð orðhluta. Skal nú vikið að því.12 12 Þorsteinn G. Indriðason (1994, bls. 121-123) fjailar t.d. sérstaklega um u-hljóðvarp (sem virka hljóðkerfisreglu eins og hefðbundnir generatífistar) (anda lexikalskrar hljóðkerfisfræði. Miðað við hugmyndir hans um fjórfalda lagskiptingu orðasafnsins (t.d. bls. 148) verkar u-hljóðvarp (lagi 1 (þar sem „viðskeyting l“ fer fram) og í lagi 2 (þar sem beygingin fer fram). U-hljóðvarpið verkar síðan ekki 4.2 Morfófónemík Kristján Árnason (1985) ræðir almennt um samverkan og mörk „orðhlutakerfis" (e. morphology) og „hljóðkerfis" (e. phonology) og fjallar síðan um u-hljóðvarp í því Ijósi. Segja má að umfjöllunin sverji sig í ætt við „náttúrlega regluhljóðkerfisfræði“ (e. natural generative phonology) en hún seilist ekki eins langt og hefðbundin generatíf greining eftir afstæðum formum. Þessi nálgun gerir sérstakan greinarmun á „sjálfvirkum" eða náttúrlegum hljóðferlum, þ.e. hreinum hljóðkerfisreglum, og orðhlutalega háðum eða „morfófónemískum" reglum sem eiga sér gjarna undantekningar (sbr. Clark & Yallop 1995, bls. 402-403). Kristján bendir á að sem táknkerfi hafi mannleg mál það hlutverk að forma merkingu. Formdeildum málsins (lesum í orðasafni og málfræðilegum einingum) fylgi síðan tilvísandi hljóðþættir og á þann hátt skarist „orðhlutakerfi" og „hljóðkerfi". Sambandið á milli þessara „hluta“ málkerfisins hefur fætt af sér sérstaka undirgrein í málfræði, þ.e.a.s. það sem á útlensku hefur verið kallað Morphonologie eða morphophonemics. Helstu viðfangsefni á því sviði hafa t.d. verið talin þessi (sbr. Kristján Árnason 1985, bls. 10 og 1992, bls. 6):13 (14) a. Die Lehre von der phonologischen Struktur der Morpheme; b. Die Lehre von den kombinatorischen Lautveránderungen, welche die Morpheme in Morpemverbindungen erleiden; c. Die Lehre von den Lautwechselreihen, die eine morhpologische Funktion erfullen Þetta gefur hugmynd um verkefnin sem við er að glíma á „morfófónemísku" sviði en vissulega er margt óljóst, t.a.m. í hverju munurinn á (14)b og (14)c liggur nákvæmlega. Varðandi aðgreiningu hljóðkerfis og orðhlutakerfis víkur Kristján (1985, bls. 11) að „tvöfaldri formun“ tungumála, þ.e. að annars vegar sé hljóðkerfisleg formgerð („structure in expression") og hins vegar hin málfræðilega formgerð, kerfi merkingarbærra eininga („structure in content"). Tungumál hafa ólíkan hátt á því hvernig þau koma málfræðilegu formdeildunum til skila (sbr. Kristján Árnason 1985, bls. 12). Sum hafa gjarna sérstaka formlega einingu fyrir hverja formdeild (lagi 3 (þar er gert ráð fyrir viðskeytta greininum) og 4 (þar eru viðskeyting II og samsetning) og heldur ekki utan orðasafnsins (sbr. Þorstein G. Indriðason 1994, bls. 128). Samkvæmt því er u-hljóðvarpið „djúplexikölsk" hljóðkerfisregla. 13 Tilvitnunin er frá Trubetzkoy (sjá nánar hjá Kristjáni). 83
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148

x

Mímir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Mímir
https://timarit.is/publication/1937

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.