Mímir - 01.06.2005, Page 96

Mímir - 01.06.2005, Page 96
Ævisagan Smásaga Höfundur Árni Thoroddsen Ég hafði farið á norræna ráðstefnu um ævisögur og sögulegar skáldsögur í þeim tiigangi að kynna nýju bókina mína og heyra það sem ýmsir rithöfundar og fræðimenn Norðurlanda kynnu að hafa fram að færa um hvernig farið væri að því að búa til heild úr brotum og ummynda lífi í skáldskap. Þetta hafði verið erfiður vetur hjá okkur fjölskyldunni og ekki laust við að ég vildi að ég gæti endurskrifað hann. Þegar kom að móttökunni um kvöldið var ég því veikari en ella fyrir víninu sem flæddi að vana út um allt og fram úr hófi. Atburðir kvöldsins eru nokkuð óglöggir í minni mér en ég man eftir að hafa talað nokkuð lengi við ameríska stúlku sem átti aðeins óljóst erindi á ráðstefnuna en var ofurfús að sýna hvað hún vissi um íslenska tungu og menningu - þó með nokkru mismæli- og minni sem ég var of nærgætinn til að leiðrétta. Vínið lét að lokum segja til sín en stelpan sat samúðarfull, traust og mjúk á sófanum á móti mér. Svo meðan verið var að leita að úlpunni minni í bjórrugluðu myrkrinu minnir mig að stutt samtal hafi borist inn í þann heim þar sem ég bjó einn: „Vad ár det dár för nágonting?" „Det ár min ryggsack.“ „Det ser ut som om han kommer att spy pá den.“ „Det ár min favorite författare, sá det spelar ingen roll.“ Samspil þessara orða og góðlátlegs brossins varð tii þess að ég bjóst ekki við neinni mótspyrnu né mætti þegar ég lagði síðan höndina vínþunga á háls hennar, renndi henni niður eftir bakinu og gaf svo til kynna með látbragði að hún ætti að setjast upp í leigubílinn hjá mér. Ég var sem sagt niðurdreginn eftir erfiðan vetur og efast um að mikið af því sem ég hafði ætlað mér með því að bjóða henni heim á hótelið hafi gerst þá nótt. Ég man helst eftir að hafa blaðrað lengi á einhverju samblandi af ensku, sænsku og íslensku og orðið nokkuð brugðið þegar ég komst að því að hún var jafngömul elstu dóttur minni. Þegar morgnaði fékk ég beiskt bragð í munninn eftir smekklaust framhjáhaldið ofan í logandi timburmenn. Ég settist við púltið og krotaði spaklegar athugasemdir tii að leggja fram við pallborðið þann dag, beið þess að hún færi að sýna á sér fararsnið en kvaddi svo annars hugar, klapp á öxl til að vísa henni á dyr en „kannski sjáumst við einhvern tímann á íslandi" þótt mér hafi reyndar boðið við tilhugsuninni. Sem betur fer lét hún ekki sjá sig á ráðstefnunni seinni daginn, þar sem ég reyndi allóútsofinn og timbraður að vera gáfulegur og mælskur. Að lokinni ráðstefnunni hvarf ég heim til konu, barna, anna og áhyggja hins daglega lífs. Þremur mánuðum seinna barst til mín bréf: Hæ. Þetta ersú bandaríska í Svíþjóð. Takk fyrír síðast, ég er að skrifa um þig ævisögu. Hún var á leiðinni til íslands til að safna efni í þessa bók og vildi endilega hitta mig. Ekki er ofmælt að segja að mér hafi verið bilt við þessi tíðindi. Ég hef ætíð reynt að verja einkalíf mitt að því leyti sem þrengsli íslensks samfélags og staða ættar minnar leyfir. Það hefur hlotið athygli hjá gagnrýnendum hve lítið ber á eigin reynslu og endurminningum í bókum mínum og ég er hálfstoltur af því að vera kominn yfir fimmtugt án þess að hafa fallið fyrir þeim þrýstingi sem ríkir meðal íslendinga að drífa sig í sjálfsævisöguna. Reyndar vonast ég til að deyja ævisögulaus og vinna mér þar með sérstöðu meðal íslenskra rithöfunda. Auðvitað fannst mér iíka hálffrekt að þessi manneskja sem þekkti mig varla frá Adam skyldi dirfast til að skrifa um mig að mér fornspurðum. 94
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148

x

Mímir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Mímir
https://timarit.is/publication/1937

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.