Mímir - 01.06.2005, Page 114

Mímir - 01.06.2005, Page 114
að lokum vel líka að starfa sem hirðskáld kristins konungs þrátt fyrir vísu hans sem fyrr er tilfærð. Skýrast kemur þetta þó fram í úrskurði Þorgeirs á þingi og átakalausri gildistöku gerðar hans. Þannig veitir þetta erindi vísbendingu um að höfundur þess hafi verið íslendingur, hvort sem hann hefur verið höfundur kvæðisins alls eða ekki. Sé kvæðið allt skoðað sem heild að þessari vísu meðtalinni og litið á höfundinn í verkinu fremur en höfundinn í holdinu þá rennir þetta stoðum undir hugmyndir um að kvæðið sé íslenskt. Vissuiega má í þessu Ijósi skoða alla spásögnina um Gimlé sem kvæðið gerir rækilega skil. Hún virðist þó koma verr heim við spádóm um kristnitöku en vera fremur spádómur um nýtt kerfi fjölgyðistrúar. Það bendirtil þess að hugmyndin um Gimlé sé eldri arfsögn. Þó er mögulegt að í henni felist einnig allegórísk frásögn um hvernig menn sáu fyrir sér nýja uppbyggingu eftir hrun samfélagsins en hér verður ekki gerð atlaga að því að skýra þann merkingarauka. Vættir sátu hjá Sé lýsing völunnar í lokaerindi Völuspár rauntímasýn bendir það til þess að kvæðið sé samið rétt fyrir kristnitöku. Þó gæti þetta verið listræn blekking því aðrir hlutir benda til þess að hún sé þegar um garð gengin. Bjartsýnt viðhorf til framtíðar hefur þegar verið nefnt og það gæti hæglega verið byggt á reynslu höfundar, sem sér að veröldin er þrátt fyrir slæmar væntingar alls ekki svo slæm. Það sem styður þetta er sú staðreynd að hvergi í spánni er minnst á þátt annarra vætta en goðanna. Skv. Ólafi Briem9 var vættatrú síst óalgengari á íslandi og Noregi í heiðni en goðadýrkun. Ýmsar heimildir og menjar eru til um tignun álfa og landvætta. Þessi dýrkun virðist hafa haldið óáreitt áfram eftir að bannað var að blóta goð. í Kristna rétti á 12. öld er því aðeins lagt bann við að ákalla heiðnar vættir en ekki goð, væntanlega vegna þess að þess var ekki þörf lengur. Sé Völuspá ort nokkrum árum eða áratugum eftir kristnitökuna af manni, sem hana upplifði, þá er ekki að furða að vættir þær sem „lifðu af“ hafi ekki verið þátttakendur í hinni allegórísku frásögn af skapadægri heimsins sem undir yfirborðinu reynist vera þjóðfélagsbyltingin kristnitaka. Heimildir Bugge, Sophus. 1867. Norræn fornkvæði. Islandsk samling af folkelige oldtidsdigte om Nordens guder og heroer, almindelig kaldet Sæmundar Edda hins fróða / udgiven af Sophus Bugge. Universitetsforlaget, Christiania. (Óbreytt endurprentun: 1965.) Bæksted, Anders. 1976. Goð og hetjur í heiðnum sið. Örn og Örlygur, Reykjavík. Einar Ólafur Sveinsson. 1962. Islenzkar bókmenntir í fornöld. Almenna bókafélagið, Reykjavík. Ólafur Briem. 1945. Heiðinn siðurá Islandi. Bókaútgáfa Menningarsjóðs, Reykjavík. Sigurður Nordal. 1993. Fornar menntir III. Almenna bókafélagið, Kópavogi. Vésteinn Ólason. 1992. Goðakvæði. Islensk bókmenntasaga. Mál og menning, Reykjavík. 9 Ólafur Briem 1945, 4. kafli. 112
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148

x

Mímir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Mímir
https://timarit.is/publication/1937

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.