Mímir - 01.06.2005, Síða 124

Mímir - 01.06.2005, Síða 124
Athyglisvert er þá að skoða karlkynslýsingarorðið grannur hér að ofan í þessu Ijósi þar sem a er í stofni og u \ endingu en ekkert hljóðvarp verður þar. Ekki er annað að sjá en áðurnefnd regla sé þverbrotin þar. Eiríkur telur hins vegar eðliiegar skýringar vera á því að hljóðkerfisreglan virki ekki í slíkum dæmum, en komið verður inn á það í 3.2 hér á eftir. Öðruvísi horfir við í nf. et. og ft. barn - börn að mati Eiríks, sbr. dæmi (7) hér á undan, og einnig í nf. kvenkynslýsingarorðsins grönn en þar koma einnig fyrir víxlin a : ö án þess að u sé í næsta atkvæði á eftir. Víxlin við slíkar aðstæður telur hann þá beygingarlega skilyrt þegar ekkert I umhverfinu virðist geta skýrt breytinguna frá a til ö, engar hljóðlegar ástæður sjáanlegar á sama hátt og t.d. í þgf. orðanna í (7) þar sem ástæður hljóðavíxla liggi I augum uppi. í slíkum orðum sé greinilega um að ræða beygingarlega skilyrt hljóðavíxl. En er þetta mergur málsins? Er þá eðlilegt að telja tvenns konar ástæður liggja að baki sömu hljóðavíxlum innan jafnvel sama beygingardæmis, sbr. t.d. barn - börn - börnum í (7)? Kristján Árnason (sbr. 1985, 1992, 2001) er einn þeirra sem hefur dregið þessa skilgreiningu mjög í efa. Að hans mati er ekki rétt að gera ráð fyrir tvenns konar hljóðvarpi með þessum hætti þar sem litið sé á u-hljóðvarpið annars vegar sem beygingarlega skilyrt og hins vegar sem hreint hljóðferli. Hann telur enga ástæðu til að gera greinarmun þar á milli: „A much more plausible assumption is that u- umlaut is one and the same thing throughout: a mapping relation (a morphophoneme) between forms with a and forms with ö (with ö as the unmarked value in the umlauting environments). This relation serves as a primary exponent of plurality vs. singularity in the case of barn vs. börn, but as a secondary one in dat. pl. börnum(1992, bls. 9) Ljóst er af framansögðu að grundvallarmunur er á sjónarmiðum málfræðinga um það hvers eðlis u-hljóðvarpið er. Þetta atriði verður til frekari umfjöllunar I næsta kafla þar sem skoðað verður hvort telja beri u-hljóðvarpið virkt í nútímamáli. 3.2 Er u-hljóðvarpið virkt í nútímamáli? Eins og áður var komið inn á hefur löngum verið fjallað um u-hljóðvarp sem forsögulegt hljóðferli sem hafi skilið eftir sín spor í málinu en verkun þess sé ekki lengur fyrir hendi. í seinni tíð hefur á hinn bóginn borið á öndverðum skoðunum I anda generatífrar hljóðkerfisfræði í þá veru að gera ráð fyrir því að u-hljóðvarp sé lifandi regla í nútímamálinu sem leiði hljóðfræðileg yfirborðsform af baklægum grunnformum. Eiríkur Rögnvaldsson er einn þeirra sem gerir ráð fyrir því (sbr. 1981, 1993) að u-hljóðvarp sé virk hljóðkerfisregla í málinu, þ.e. að þegaru stendur í eftirfarandi atkvæði breyti það a í ö. Tvennt skal einkum nefnt hér sem Eiríkur telur vera sterka röksemd fyrir því að um virka hljóðkerfisreglu sé að ræða í íslensku: a) Hann bendir á að a standi aldrei í næsta atkvæði á undan u innan orðs (með undantekningum sem hann tilgreinir, sjá síðar). Ef a er í grunnformi orðs, komi alltaf ö (stundum u ef atkvæðið er áherslulaust) í stað þess ef u er í næsta atkvæði á eftir.1 b) Eiríkur telur einnig u-hljóðvarp í tökuorðum og nýyrðum rökstyðja eindregið þá kenningu að um virka hljóðkerfisreglu sé að ræða. Hann telur t.d. tvímyndir eins og banönum - bönunum; kastölum - köstulum vera gott dæmi um það og telur auðvelt að skýra þessar myndir ef gengið er út frá virkri hljóðkerfisreglu þar sem a verður ö I öðru atkvæði fyrir áhrif frá u \ endingu I þgf. ft.. Síðan sé valfrjálst hvort beitt sé veiklun (vowel reduction) sem breyti áherslulausa ö-inu í u, sem svo veldur hljóðvarpi þannig að a í áhersluatkvæði breytist í ö. Afleiðslan samkvæmt Eiríki er þá svona (1993, bls. 80): (8) baklæg gerð u-hljóðvarp veiklun u-hljóðvarp yfirborðsgerð #banan+um# #banön+um# #banun+um# #bönun+um# [bö:nynYm] #banan+um# #banön+um# [ba:nönYm] Áður var minnst á karlkynsorð eins og garður, maður og grannur sem við fyrstu sýn virðast ekki koma heim og saman við hugmyndir generatífista um virkni u-hljóðvarpsins. Af hverju verða þau ekki *görður, *möður\ *grönnur úr því að a er í stofni og u er í næsta atkvæði á eftir? Hvað verður um hina „virku“ hljóðreglu þá þar sem öll skilyrði u-hljóðvarps virðast vera fyrir hendi? Generatífistar (sbr. t.d. Eiríkur 1981) líta svo á að yfirborðsmynd endingarinnar -ur í slíkum dæmum sé leidd af baklægu -r-i. Síðan er gert ráð fyrir reglu sem skýtur inn [y] á milli -r í bakstöðu og rótaratkvæðisins (ef það endar á samhljóði). Gert er ráð fyrir því að u-innskotsreglan verki á eftir u- hljóðvarpinu, að öðrum kosti myndi innskots-u-ið 1 Hann afgreiðír (sömu andrá tilvik eins og barnum og farðu og segir mörk nafnorðs og viðskeytts greinis í fyrra tilvikinu og mörk sagnstofns og persónufornafns í síðara tilvikinu gilda sem orðaskil. Af þeim ástæðum sé u-hljóðvarpið ekki virkt í slíkum orðmyndum. 122
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144
Síða 145
Síða 146
Síða 147
Síða 148

x

Mímir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mímir
https://timarit.is/publication/1937

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.