Mímir - 01.06.2005, Síða 137
með í könnuninni. í öðru lagi eru ekki öll nöfn frá
2001 með í könnuninni, heldur eru þau tekin úr
ákveðnum verslunarkjörnum frá stöðunum.
4.1 íslensk og erlend nöfn
Áður en umfjöllun um nafnaflokkana hefst skulum
við skoða hvernig fyrirtækjanöfnin skiptast niður í
íslensk og erlend nöfn eftir árum.
Nöfnin frá árinu 1961 eru samtals 345. Af þeim
eru 24 erlend nöfn. Dæmi um erlendu nöfnin eru
Kemikalia, Hárgreiðslustofan Viola og Vibro. Ef
bæirnir eru skoðaðir hver fyrir sig kemur í Ijós að
allsstaðar eru innan við 10% nafnanna erlend. í
Reykjavík eru tekin fyrir 188 nöfn. Af þeim eru 18
erlend. í Kópavogi voru 52 fyrirtæki og þar af voru
þrjú með erlendu nafni. í Hafnarfirði voru skráð
106 nöfn, þar af voru þrjú erlend nöfn. Nöfnin frá
árinu 2001 eru samtals 240. Þá varfjöldi erlendra
nafna kominn upp í 102. Eftir bæjum skiptast nöfnin
þannig: í Reykjavík (Kringlunni) eru 160 fyrirtæki,
þar af eru 73 sem heita erlendu nafni. í Kópavogi
(Smáralind) eru 76 fyrirtæki og 33 bera erlent nafn. í
Hafnarfirði (Firði) eru 26 fyrirtæki, en fjöldi erlendra
nafna sker sig úr hópnum, aðeins 5 fyrirtæki
heita erlendum nöfnum. Hlutfallsmunurinn sést á
súluritinu:
Hlutfall fyrirtækja með erlendum nöfnum
Reykjavík Kópavogur Hafnarfjörður
4.2 Mannanöfn
Árið 1961 voru nöfn í þessum flokki langflest,
samtals 157. Dæmi um nöfn úr þessum flokki eru
Verzlun Bergþóru Nýborg, Bræðurnir Ormsson, G.
Ólafsson og Rafmagnsverkstæði Hjalta Elíassonar.
Árið 2001 voru nöfn í þessum flokki orðin 28.
Nöfn frá árinu 2001 eru t.d. Þráinn skóari, Hanz,
Jack & Jones og Gullsmiðja Óla.
í Reykjavík árið 1961 var þessi flokkur stærstur,
innihélt 79 nöfn. Einnig var þessi flokkur stærstur
í Kópavogi, hann taldi 26 nöfn, sem er helmingur
nafnanna þar. Sömu sögu er að segja frá
Hafnarfirði, þar eru 53 nöfn í þessum flokki, eða
helmingurinn.
Árið 2001 voru 20 nöfn frá Reykjavík í þessum
flokki. Svipaða sögu er að segja frá Kópavogi, þar
inniheldur flokkurinn 10 nöfn. í Hafnarfirði voru tvö
nöfn í þessum flokki.
Hlutfall mannanafna
Samtals Reykjav. Kópav. Hafnarfj.
4.3 Örnefni og staðir
Samtals Reykjav. Kópav. Hafnarfj.
Örnefni og staðarnöfn voru 57 árið 1961. Dæmi
um nöfn í flokknum eru Efnagerðin Kaldá,
Hafnarfjarðarbíó, Edinborg og Fossvogsbúðin.
Alls voru 17 nöfn í þessum flokki árið 2001. Dæmi
um nöfn frá 2001 eru Sparisjóður Hafnarfjarðar,
Hekla og Nóatún.
Árið 1961 voru 26 nöfn í þessum flokki
í Reykjavík. í Kópavogi var þessi flokkur
næststærstur, innihélt 13 nöfn, sem eru fjórðungur
allra nafnanna og voru þau öll íslensk. í Hafnarfirði
var þessi flokkur einnig næststærstur, í honum voru
18 nöfn.
Árið 2001 eru 10 reykvísk nöfn í þessum flokki.
135