Mímir - 01.06.2005, Page 140
Starfsannáll Mímis
Veturinn 2004-2005
Höfundur
Þórgunnur Oddsdóttir
Á aðalfundi Mímis þann 6. apríl 2004 var kjörin
sú stjórn sem fór með völd skólaárið 2004-2005.
Hana skipuðu: Lára Kristín Unnarsdóttir
formaður, Sigurrós Eiðsdóttir gjaldkeri, Þórgunnur
Oddsdóttir ritari og María Björk Guðmundsdóttir
meðstjórnandi. Á haustfundi Mímis í september
2004 var kosið í þau embætti sem ekki tókst
að manna á aðalfundinum og þar var Oddur
Ástráðsson kosinn nýnemafulltrúi í stjórn. Þessi
fríði flokkur gengur í daglegu tali undir nafninu
Mímismafían og hefur ráðið lögum og lofum í
félagslífi íslenskunema í vetur.
Stjórnin byrjaði veturinn með trompi og bauð
ísienskunemum upp á skúffuköku og mjólk í
anddyri Árnagarðs fyrsta skóladaginn. Þessi leikur
var sérstaklega til þess failinn að lokka nemendur
í félagið og heppnaðist bragðið ágætlega því 50
limir skráðu sig. Þetta var ekki það eina sem var
í boði í nýnemavikunni því á öðrum kennsludegi
var boðið upp á skoðunarferð um leyndardóma
Árnastofnunar þar sem kuklið í kjallaranum var
dregið fram í dagsljósið. Nýnemavikan endaði svo
með látum föstudaginn 10. september en þá var
farið í hina árlegu ferskmennagöngu og nýnemar
í íslenskuskor boðnir velkomnir í skólann með
viðeigandi hætti. Ferskmennin mættu í Árnagarð
þar sem stjórnin tók á móti þeim með bjór í
bréfpoka og kenndi þeim að þekkja helstu kennileiti
í Árnagarði og á Háskóiasvæðinu. Gangan endaði
niðri í bæ, nánar tiltekið á Prikinu, þar sem eldri
nemar biðu og fjörið hélt áfram fram á rauða nótt.
Laugardaginn 2. október mættu íslenskunemar
hressir og kátir fyrir utan Árnagarð og lögðu í hina
árlegu haustferð. Ferðin var á menningarlegum
nótum og byrjuðum við á því að heimsækja hús
skáldsins að Gljúfrasteini. Þar var vel tekið á móti
okkur og við fengum leiðsögn um húsið og nánasta
umhverfi. Að því loknu skunduðum við á Þingvöll
að hætti forfeðranna og nutum haustblíðunnar
þar. Veðrið var ágætt, stillt og skýjað og Þingvellir
skörtuðu sínu fegursta. Við skoðuðum safnið í
þjónustumiðstöðinni, röltum um Aimannagjá og
stilltum okkur upp fyrir myndatöku við Öxarárfoss.
Þegar hungrið var farið að segja til sín (og það
sagði snemma til sín því sumir höfðu ekki vit á að
taka með sér nesti) voru grillgræjurnar teknar fram
og útilegustemmingin tók völdin. Stjórnin grillaði
pyisur sem sumir vildu kalla pulsur (í næstu ferð
verða grillaðar lambasneiðar til að komast hjá
slagsmálum) og var öllu skoiað niður með íslensku
brennivíni að gömlum sið. Gítarinn góði var að
sjálfsögðu með í för, hann var tekinn fram þegar líða
fór á daginn og fagur söngur íslenskunema ómaði
um Þingvallasveitina. Að lokum var haldið í bæinn
og var Sigurrós gjaldkeri svo væn að bjóða öllum
heim tii sín svo stuðið gæti haldið áfram.
Þann 6. nóvember héldu Mímisliðar í skálaferð.
Að þessu sinni var gist í Alviðru í Ölfusi og
þótt hópurinn væri ekki stór var fjörið mikið.
Gríðarleg rigning kom í veg fyrir að stjórnin
gæti sýnt grillhæfileika sína og í staðinn var
framreiddur matur innandyra enda stórt og gott
eldhús á staðnum. Aiviðra er hús Landverndar
og þar er oft tekið á móti skólahópum. í hillu
í stofunni fundum við möppu með alls konar
leikjahugmyndum fyrir grunnskólabörn og gleðin
var ólýsanleg þegar í Ijós kom að þar var að finna
leiðbeiningar fyrir málfræðileiki. Yfir matnum var
því farið í málfræðileiki sem vöktu bæði kátínu og
keppnisanda. Þegar leið á kvöldið fóru leikirnir hins
vegar að breytast. Einhverjum fannst sniðugt að
búa til ógeðisdrykk og neyða aila til að drekka af
honum (já, sjónvarpið hefur líka áhrif á þroskaða
og vel gefna háskólanema), öðrum fannst upplagt
að gera fimleikaæfingar í garðinum og einhverjir
Ijóstruðu upp sínum dýpstu leyndarmálum í
vafasömum leikjum þar sem bannað var að
Ijúga eða draga undan. Að lokum sofnuðu allir í
einni flatsæng á gólfinu og vöknuðu (mis)hressir
morguninn eftir. Þegar búið var að skúra og pakka
saman var farið í sund í Hveragerði og svo heim að
læra því námið tekur jú líka sinn tíma.
138