Lögfræðingur - 01.01.1899, Blaðsíða 89
Yfirlit yfir löggjöf í útlöndum.
89
hefnr lieimild til að kveða á um sótthreinsun á liúsum
og fötum andlátans.
II. Norvegur.
11) Lög 9. maí 1896 ákveða, að kenna skuli í barna-
skólum í sveit biblíusögur og kver, norsku, reikning, skript,
söng, landafræði, sögu, náttúrufræði, aðalatriði heilbrigð-
isfræðinnar og um áhrif og háska af nautn áfengra drykkja.
Ennfremur á að kenna að minnsta kosti eitt af þessum
greinum: handavinnu, teikningu eða leikfimi.
12) Lög 9. maí 1896 um sams konar efni ákveða, að
veita skuli í barnaskólum í kaupstöðunum nokkuð meiri
fræðslu í þessum námsgreinum, svo og í fleiri námsgrein-
um.
13) Lög 6. júní 1896 um meðferð vanhirtra barna á-
kveða, að setja skuli forráðanefnd í hvern hrepp (sveita
og bæja). í nefndinni eiga að vera 7menn: hjeraðsdóm-
ari, prestur og 5 kosnir menn. þ>essi nefnd á að gjöra
ráðstafanir um börn, innan 16 ára aldurs, sem vanrækja
skóla eða hegða sjer illa, sem eru vanhirt og illa uppalin,
eða sem sýna siðleysi eða glæpsamlegt atferli. Nefndin
getur látið setja þess konar börn í nauðungarskóla, kom-
ið þeim fyrir hjá góðu fólki, í barnaheimili eða skólaheim-
ili, þar sem börnin eru undir aga, og þau fá fullnægjandi
kennslu. Nefndin getur tekið foreldravald af foreldrum
barnsins og sett því forráðamann.
14) Lög 6. júní 1896 um hvalaveiðar kveða á um frið-
un hvala, um hvalaveiðar og hvalleifar. Um hvalleifar er
svo ákveðið, að þær skuli flytja hálfa mílu á sjó út, nema
því að eins að þær 'sjeu ætlaðar til að vinna úr þeim; en
þá skal geyma þær í byrgjum, sem sjeu vel held.