Lögfræðingur - 01.01.1899, Blaðsíða 92
02
Yfirlit yfir löggjöf i útlöndum.
falin skattheimtumönnum ríkisins. Laun presta eiga að
minnsta kosti að vera 2400 kr., og auk þess húsakynni
eða þtíknun fyrir þauogjörðí sveitum. Vottorð úr kirkju-
bókum kostar 50 aura, ef það er handa einum manni, en
1 kr., ef það er handa fleiri mönnum. Tíund til presta
og ýmsar aðrar ískyhlur á jörðum má leysa af jörðunum
með 20faldri upphæð þeirra.
26) Lög 14. júlí 1897 um prestssetur. I sveitum eiga
prestar að jafnaði að hafa jörð, og þar sem þær vanta,. á
að jafnaði að kaupa þær til prestakallanna. Prestar eiga að
lialda húsunum við, en þegar þarf að byggja þau af nýju,
á að veita lán til þeirra gegn afborgun af prestakallinu'.
Álag greiðist eigi fyrir fyrningu, heldur að eins fyrir hirðu-
lauslega meðferð. Um umsjtín prestssetra og úttektir þeirra
eru nákvæm ákvæði.
27) Lög 14. júlí 1897 ákveða, að árgjöld á jörðum
(jarðargjald, korngjald, o. s. frv.), skuli árgjaldsláti hafa
heimild til að leysa af jörð sinni, hvort sem ársgjaldstaki
er ríkissjóður, prestaköll, stofnanir eða einstakir menn.
28) Lög 14. júlí 1897 um afnám konungstíundar og
kirkjutíundar og um stofnun kirkjusjóða ákveða, að tíund-
irnar skuli eptirleiðis greiða með ákveðinni peningaupp-
hæð. þ>essar tíundir á að leysa af jörðum innan 20 ára.
29) Lög 3. ágúst 1897 um kirkjur og kirkjugarða eru
nákvæm lög, Eptir þeim skulu söfnuðir eiga kirkjurnar
og bændakirkjur skulu söfnuðirnir taka að sjer innan 5
ára. Eigi má breyta kirkjum, rífa þær eða byggja án
konungsleyfls: kirkju má eigi byggja af nýju nema eptir
teikningu, er konungur samþykkir.
30) prjú lög 3. agúst 1897 um fiskiveiðarí Finnmörku
og norðurhluta Norvegs ákveða, að fiskimenn skuli kjósa